Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 34 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Yfir 30 særðust í árásum Rússa Brynjólfur Þór Guðmundsson Rússar skutu hundruðum dróna og 22 eldflaugum að Úkraínu í nótt. Meira en 30 særðust í árásunum, að sögn úkraínskra embættismanna. 26 særðust í Dniepro og nágrenni. Fimm særðust í Ódesa, Kherson og Zapoizhzhia. Úkraínuher sagðist hafa skotið niður 546 rússneska dróna. Aftur á móti tókst aðeins að skjóta niður fjórar eldflaugar af 22. Björgunarsveitarmaður í rústum húss sem varð fyrir árás Rússa í síðustu viku. AP / Evgeniy Maloletka Fyrir 25 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Ræða samgöngur milli lands og Eyja Brynjólfur Þór Guðmundsson Samgöngur til Vestmannaeyja og nauðsyn ferjuáætlunar verða efni opins fundar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis heldur í dag. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra verður gestur fundarins. Fundurinn hefst klukkan þrjú í dag. Mikið verður um að vera í salarkynnum Alþingis í dag þar sem þingnefndir funda í gríð og erg áður en þingfundir hefjast á ný á miðvikudag. Hlé var gert á þeim í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Meðal þess sem gerist í dag er að utanríkismálanefnd fjallar um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður. Herjólfur í Þorlákshöfn. RÚV / Guðmundur Bergkvist Fyrir 59 mínútumÍÞRÓTTIR Jaðaríþróttir Bílar „límdir“ saman í úrslitarimmu í drifti Fyrsta umferð Íslandsmótsins í drifti fór fram um helgina. Úrslitaeinvígi í opnum flokki var afar athyglisvert. Fyrir 59 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Seldu ungmennum áfengi Brynjólfur Þór Guðmundsson Lögreglan á Akureyri fór á skemmtistaði og veitingastaði um helgina til að kanna hvort starfsemin væri alfarið í samræmi við lög. Flestir voru með sitt á hreinu en á einum stað var verið að selja fólki undir tvítugu áfengi og á öðrum var dyravarsla ekki í lagi. Helgin var með hefðbundnum hætti, nokkur minniháttar útköll tengd ölvun. Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur um helgina og fimm fyrir að keyra of hratt. Aðfaranótt laugardags var lögreglu tilkynnt um að maður með hníf væri að taka í hurðarhúna. Þegar að var gáð reyndist sá ótti ekki eiga við rök að styðjast. Lögreglustöðin á Akureyri. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Allt að 14 stiga hiti Útlit er fyrir bjart og hæglátt veður í dag. Hiti fer í allt að fjórtán stig. Austan til er þó útlit fyrir dálitla rigningu. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Mannréttindi Amnesty: Ógnvekjandi fjölgun aftaka í Íran keyrir upp fjölda skráðra aftaka Amnesty segir að hverfa þurfi aftur um 45 ár til að sjá fleiri aftökur í heiminum en á síðasta ári. Það megi helst rekja til mikillar fjölgunar líflátsdóma í Íran en fleiri ríki hafi einnig hert tökin. Fjöldi aftaka í Kína sé ekki innan talnanna. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Sund Spilar á gítar, lærir sögu og slær heimsmet Sundkappinn Snævar Örn Kristmannsson er heimsmethafi í flugsundi í flokki einhverfra. Hann hefur hins vegar í nægu að snúast utan laugarinnar þar sem nemur sögu í Háskóla Íslands og er klassískur gítarleikari. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína Hið minnsta tveir týndu lífi í öflugum jarðskjálfta Að minnsta kosti tveir fórust og eins er saknað eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir Guangxi-hérað í Kína laust eftir miðnætti að staðartíma. Fjöldi húsa hrundi og björgunarsveitir með leitarhunda eru að störfum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Lýðstjórnarlýðveldið Kongó Ebólufaraldur kominn til Úganda — Bandaríkin flytja sitt fólk brott Ásrún Aldís Hreinsdóttir og Markús Þ. Þórhallsson Ebólufaraldurinn sem upp er kominn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur nú náð til nágrannaríkisins Úganda. Rachel Rukwati var klædd í sóttvarnarbúning áður en hún fór inn á sóttvarnastöð fyrir ebóla-sjúklinga árið 2019. EPA / HUGH KINSELLA CUNNINGHAM Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur skilgreint þennan faraldur sem alþjóðlega lýðheilsuvá. Vel á þriðja hundrað smit hafa komið upp og um 80 manns eru talin hafa látist af völdum veirunnar, sem er af sérlega banvænum Bundibugyo-stofni. Bandarísk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að flytja fámennan hóp ríkisborga brott frá Kongó. Hópnum verður haldið í sóttkví þar sem talið er að hann hafi komist í snertingu við fólk smitað af ebólu. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin óttast að útbreiðslan sé meiri en skráð tilvik gefi vísbendingar um. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael Umdeild lög um dauðarefsingar gegn Palestínumönnum gengin í gildi Afar umdeild lög tóku gildi í gærkvöld sem heimila dauðarefsingu yfir þeim Palestínumönnum á Vesturbakkanum sem fremja hryðjuverk gegn Ísrael. Herdómsdómstólar fjalla um málin. Lögin þykja mismuna fólki grimmilega. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Þrír fluttir á slysadeild eftir árekstur á Breiðholtsbraut Þrír voru sendir með sjúkrabíl til skoðunar á slysadeild eftir að tveir bílar höfnuðu utan vegar á Breiðholtsbraut seint í gærkvöld. Ekki er vitað um líðan þeirra. Slökkviliðið var líka kallað til vegna bílhræs sem stóð í ljósum logum í Mosfellsbæ. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Andlát Dennis Locorriere annar aðalsöngvara Dr. Hook er látinn Dennis Locorriere, ein aðalsprauta og söngvari hljómsveitarinnar Dr. Hook, er látinn 79 að aldri. Hann hafði lengi glímt við nýrnasjúkdóm. Hljómsveitin naut mikilla vinsælda um tíma og tvær útgáfur hennar hafa komið fram á Íslandi. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump segir klukkuna tifa fyrir Írani sem þurfi snarlega að semja um frið Bandaríkjaforseti segir leiðtoga Írans þurfa að hafa hraðan á við að semja um frið í stríðinu sem skekið hefur Mið-Austurlönd og valdið umfangsmiklum orkuverðshækkunum. Íranir segja kröfur Bandaríkjamanna of ósveigjanlegar. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tvær herþotur skullu saman á flugsýningu Markús Þ. Þórhallsson Hér má sjá reyk stíga upp þaðan sem þoturnar skullu til jarðar. AP/Lisa Van Horne / Lisa Van Horne Tvær Boeing-herþotur skullu saman á flugsýningu í Idaho í Bandaríkjunum í dag. Áreksturinn varð í um tveggja kílómetra fjarlægð frá Mountain Home-herflugvellinum. Öllum fjórum sem voru um borð tókst að skjóta sér út í fallhífum og sakaði ekki samkvæmt fréttum bandarískra miðla. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Sérstakur erindreki Bandaríkjanna kom til Nuuk í dag Ríkisstjóri Louisiana og sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar í málefnum Grænlands kom þangað í dag. Hann er í för með sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku og mun meðal annars hitta formann landsstjórnarinnar. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Myndi aldrei kæra sig um að leiða meirihluta þar sem fordómar gagnvart minnihlutahópum eru liðnir Hildur Björnsdóttir segist ekki kæra sig um að leiða meirihluta þar sem rasismi eða fordómar gagnvart minnihlutahópum eru liðnir. Sanna Magdalena Mörtudóttir segir að áhyggjuraddir séu uppi í samfélaginu um myndun á mögulegri hægri stjórn. 17. maí 2026 kl. 21:53ÍÞRÓTTIR Körfubolti Njarðvík valtaði yfir Hauka og er Íslandsmeistari Njarðvík er Íslandsmeistari kvenna í körfubolta eftir stórsigur gegn Haukum, 95-70. Njarðvík spilaði glimrandi vel í kvöld og hefndi fyrir tapið gegn Haukum fyrir ári. 17. maí 2026 kl. 21:45INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nær 1.200 manns strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Ríflega 1100 borgarbúar strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, borgarstjóra Reykjavíkurborgar í nýafstöðnum sveitarstjórnarnkosningum. Við yfirferð kjörstjórnar kom sömuleiðis í ljós innsláttarvilla sem hafi þó engin áhrif. 17. maí 2026 kl. 20:43INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 „Það var mótvindur nánast frá fyrsta degi“ Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir að það hafi verið mikill mótvindur í kosningabaráttunni. Flokkurinn þurfi að gera betur og hlusta meira. Hann efast um að óvinsældir fráfarandi borgarstjóra hafi haft áhrif á gengi flokksins. 17. maí 2026 kl. 20:33ÍÞRÓTTIR Fótbolti Hólmar tryggði Valssigur með flautumarki Hólmar Örn Eyjólfsson reyndist hetja Valsmanna í kvöld er hann skoraði sigurmark í uppbótartíma gegn Breiðablik. Valur vann 3-2 sigur. Þá urðu Framarar fyrsta liðið til að taka stig af KR-ingum í sumar er liðin gerðu 2-2 jafntefli. 17. maí 2026 kl. 20:08INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Niðurstöðurnar ákveðið viðvörunarmerki fyrir forsætisráðherra Prófessor í stjórnmálafræði segir niðurstöður kosninganna viðvörunarmerki fyrir Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, sem hingað til hafi verið í miklum meðbyr. Flokkurinn þurfi að líta í eigin barm og endurskoða erindi sitt í sveitarstjórnum. 17. maí 2026 kl. 19:59INNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Farmenn hjá Eimskipum boða verkfall að nýju Farmenn hjá Eimskipum boða ótímabundið verkfall. Formaður samninganefndar þeirra segir ágreininginn m.a. snúa að starfsöryggi íslenskra sjómanna hjá Eimskipafélaginu, sem er að hluta skráð erlendis. 17. maí 2026 kl. 19:28ÍÞRÓTTIR Golf Aron og Perla unnu Reykjanesmótið Aron Snær Júlíusson og Perla Sól Sigurbrandsdsóttir unnu Reykjanesmótið á GSÍ mótaröðinni í golfi. Þetta er fyrsta mótið á mótaröðinni. 17. maí 2026 kl. 19:16INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reyndu að auka kjörsókn erlendra íbúa í Reykjanesbæ Líkt og í síðustu sveitarstjórnarkosningum var kjörsókn í Reykjanesbæ lægst allra sveitarfélaga. Formaður yfirkjörstjórnar segir sveitarfélagið hafa reynt að auka kosningaþátttöku íbúa í aðdraganda kosninga. 17. maí 2026 kl. 18:44ÍÞRÓTTIR Fimleikar Stjarnan tvöfaldur Íslandsmeistari Stjarnan varð Íslandsmeistari í hópfimleikum í kvenna- og karlaflokki. Nýstofnað lið Aftureldingar varð Íslandsmeistari í blönduðum flokki. 17. maí 2026 kl. 18:16INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsókn bætti við sig tveimur í Grindavík — bæjarbúum alvara með enduruppbyggingu Oddviti Framsóknarflokksins í Grindavík telur sig hafa fengið skýrt umboð til meirihlut