Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Komu tveimur fiskibátum til aðstoðar

Read Full Article →

Björgunarskip voru kölluð út tvisvar í gærkvöld og í nótt vegna fiskibáta sem lentu í vanda. Fyrra útkallið barst um klukkan átta í gærkvöld. Þá bilaði vélin í bát á miðjum Breiðafirði. Skipverjarnir tveir óskuðu eftir aðstoð við að komast til Hafnarfjarðar þangað sem leið þeirra lá. Björgunarskipið Björg frá Rifi fór af stað til hjálpar og tók bátinn í tog suður fyrir Snæfellsnes. Þar kom björgunarskipið Kristrún á Bjargi frá Akranesi á móti Björgu og aflvana bátnum. Kristrún tók við drættinum og sigldi með bátinn áleiðis til Hafnarfjarðar. Áætlað er að þangað verði komið um klukkan níu í dag. Þá verður aðgerðin búin að standa yfir í um hálfan sólarhring. Þetta var ekki eina verkefni björgunarskipa því Húnabjörg á Skagaströnd var kölluð út vegna fiskibáts á Húnaflóa um klukkan sex í morgun. Báturinn hafði þá dottið út úr sjálfvirka tilkynningakerfinu. Þegar Landhelgisgæslan hafði samband við skipstjórann kom í ljós að vélin var byrjuð að ofhitna. Hann ákvað því að drepa á vélinni og tókst það með því að loka fyrir eldsneytiskerfið. Þá var ekki lengur hætta á að kviknaði í bátnum en hann komst hvorki lönd né strönd. Húnabjörgin fór því eftir honum og tók í tog og er komin með hann í höfn á Skagaströnd.

Share this article