- What: Festi opens its system to ethical hackers for security testing
- Impact: Icelandic company improves security by engaging ethical hackers
Festi hefur hafið samstarf við netöryggisfyrirtækið Defend Iceland sem felur í sér að opna stafræna innviði fyrirtækisins fyrir svokölluðum heiðarlegum hökkurum sem fá heimild til að prófa öryggi kerfa þess á ábyrgan og skipulagðan hátt. „Markmiðið er að efla fyrirbyggjandi öryggisvinnu og koma auga á veikleika áður en þeir geta leitt til netárása eða þess að viðkvæmar upplýsingar komist í rangar hendur,“ segir í tilkynningu. Um er að ræða svokallaða villuveiðigátt þar sem alþjóðlegt samfélag heiðarlegra hakkara fær tækifæri til að greina mögulega veikleika áður en þeir geta verið misnotaðir. Defend Iceland sérhæfir sig í að tengja fyrirtæki við slíka sérfræðinga sem tilkynna veikleika á ábyrgan hátt og stuðla þannig að auknu netöryggi í rekstrarumhverfi viðkomandi fyrirtækis. „Þetta er mikilvægt skref hjá okkur,“ segir Linda Kristmannsdóttir , forstöðumaður upplýsingatækni hjá Festi. „Við förum úr því að bregðast við í að fyrirbyggja og með því að vinna með Defend Iceland erum við að taka skýr skref í átt að enn öflugra og framsæknara öryggisumhverfi.“ Sameiginlegt markmið Festi og Defend Iceland er að efla stafrænt öryggi í heimi þar sem netógnir eru sífellt að þróast og tryggja að fyrirbyggjandi öryggi sé virkur þáttur í allri starfsemi til framtíðar. „Samstarf við fyrirtæki á borð við Festi er mikil viðurkenning á þeirri nálgun sem við hjá Defend Iceland höfum byggt upp. Þetta samstarf sýnir að íslensk fyrirtæki eru tilbúin að stíga fram og tileinka sér fremstu aðferðir í netöryggi,“ segir Theódór Ragnar Gíslason , framkvæmdastjóri og stofnandi Defend Iceland.