Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Maður fer með miklu fleiri spurningar en maður mætir með“

  • What: An article in Heimildin discusses the increasing interest in Greenland and the desire of its inhabitants for freedom and peace.
  • Impact: The article explores the complex relationship between Greenland and Denmark, especially in light of Donald Trump's interest in acquiring the land.
Read Full Article →

Í dagblaði Heimildarinnar birtist greinin Landið sem enginn á . Tilefni skrifanna er að sótt er að Grænlandi úr ýmsum áttum en íbúar vilja frelsi og frið. Grænlendingar og Danir hafa staðið saman andspænis hótunum Donald Trumps um að eignast landið en flókið nýlendusamband þjóðanna er óuppgert. Auður Jónsdóttir og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamenn fóru til Grænlands ásamt Kjartani Þorgrímssyni ljósmyndara. Þau hafa síðan verið að teikna upp mynd af heimsókninni. Auður kíkti í Síðdegisútvarpið á Rás 2 og sagði Hrafnhildi Halldórsdóttur og Rúnari Róbertssyni frá ferðalaginu. Hvekkt í fyrstu í spennuástandi Auður hafði áður komið til Grænlands þegar hún ferðaðist til Sisimiut að taka þátt í sameiginlegu málþingi rithöfunda á frá Íslandi Grænlandi og Færeyjum. Hún segir að þessi heimsókn hafi verið frábrugðin þeirri því það hafi ríkt í landinu mikið spennuástand, óvissa eftir yfirlýsingar Donald Trumps Bandaríkjaforseta um mögulega innlimun Grænlands. Hún segir að fólk hafi tekið þeim með fyrirvara í fyrstu. „Við vorum í viku og það var mikið spennuástand. Maður fann á fólki að það var svolítið hvekkt og ekki eins til í að kjafta. Þau voru vör um sig en svo breyttist ástandið töluvert eftir að Trump sagði að hann ætlaði ekki að fara inn með vopnavaldi.“ Blaðamenn frá öllum heimshornum til svæðis Hún segir að fólk hafi verið hvatt til að safna neyðarbirgðum og búa sig undir ýmsielgt. „Við vorum að tala við fólk í Brugsen súpermarkaði, sem var að safna vistum,“ segir Auður en ítrekar að tónninn hafi breyst þegar Trump hafi sagst ekki ætlað að gera innrás. „Þetta róaðist svo aðeins í takt við umræðuna en þetta var mjög skrýtið ástand. Það voru ábyggilega meira en hundrað blaðamenn frá öllum heiminum og allir að reyna að finna fréttir og viðmælendur.“ Með nægar upplýsingar til að skrifa bók um ferðalagið Blaðamenn Heimildarinnar ræddu við marga á svæðinu og lærðu ýmislegt. Einhverjir opnuðu sig um áföll og Auður segir einkennandi fyrir grænlenskt samfélag að nánast allir hafi misst einhvern nákomin í sjálfsvígi. „Að meðaltali eru um 50 sjálfsvíg á ári í 56 þúsund manna þjóð. Um daginn frömdu sex manns sjálfsvíg á einum degi,“ segir Auður. Hún segir að þau hafi fengið nægar upplýsingar til að skrifa heila bók eftir ferðalagið. Það jákvæða við áhugann á Grænlandi sé að nú hafi kastljós beinst þangað og Danir í kjölfarið neyðst til að endurskoða afstöðu sína og biðjast afsökunar á til dæmis lykkjuhneykslinu. Hálfíslensk kona fékk lykkjuna án vitundar Blaðamenn töluðu meðal annars við hálfíslenska konu, Ingu Dóru, sem er ein þeirra sem fékk getnaðarvörnina án sinnar vitundar. Inga Dóra sem er hálfíslensk var í viðtali hjá okkur og er ein af þeim konum sem lykkju var laumað upp í. Hún áttaði sig ekki á því fyrr en hún var búin að reyna að eignast börn í nokkur ár. Flókin mynd til að kortleggja Hún segir flesta hafa talað um að þjóðir þurfi að standa saman og það þurfi að gera upp nýlendusambandið við Dani og afleiðingar þess, en á sama tíma segi margir að Grænland þrátt fyrir að vilja sjálfstæði séu þau ekki tilbúin. Danir borga um fimm milljarða árlega í velferðarkerfi og til Grænlands svo þetta er flókið. Plús það að Danmörk hefur fengið rosalega mikið frá Grænlandi. Að ætla að kortleggja þessa mynd er mikið, maður fer með miklu fleiri spurningar en maður mætir. Auður Jónsdóttir og blaðamenn á Heimildinni fóru á dögunum til Grænlands til að kynna sér betur daglegt líf í landinu. Þau tóku fjölmarga tali í þeim tilgangi til að fá skýrari mynd af því hvernig fólki líður í landi í skyndilegum brennidepli.

Share this article