Innlent | mbl | 18.5.2026 | 13:43 Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Kristrún segir flokkinn hafa sett markið hærra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Sögulegur sigur Sjálfstæðisflokks „Sýnir skýran vilja bæjarbúa“ Reksturinn er helsta áskorunin Ákall kjósenda um breytingar Þessa meirihluta getur Hildur myndað » Fleiri tengdar fréttir Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir flokkinn þurfa að byggja aftur upp traust í borgarmálum. Það sé ljóst þrátt fyrir að flokkurinn hafi haldið sínum fimm fulltrúum í borgarstjórn. Hún taki það alvarlega að fólk með „jafnaðartaug“ hafi ekki greitt flokknum atkvæði að þessu sinni. Þetta kemur fram í færslu sem Kristrún birti á Facebook-síðu sinni fyrir skömmu, þar sem hún ávarpar landsmenn, en Samfylkingin fékk 18,3 prósent fylgi í borgarstjórnarkosningum á laugardag og er það versta niðurstaða flokksins í borginni frá upphafi. Frétt af mbl.is Versta niðurstaða Samfylkingarinnar frá upphafi Kristrún segist engu að síður þakklát fyrir hvert atkvæði og að árangurinn hafi verið ánægjulegur á landsbyggðinni. Bendir hún á að Samfylkingin hafi fengið næstmest fylgi á landsvísu í þessum kosningum. Fulltrúum í sveitarstjórnum hafi fjölgað um helming og séu þeir nú 38 talsins, en það sé næstmesti fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa frá stofnum flokksins. „Um leið er ljóst að heilt yfir settum við í Samfylkingu markið hærra enda höfum við mikinn metnað fyrir jafnaðarfólk í landinu. Svo virðist sem víða hafi fólk með jafnaðartaug ekki greitt okkar flokki atkvæði sitt í þetta sinn. Það tökum við alvarlega. Kjósendur hafa alltaf rétt fyrir sér.“ Oddvitar flokkana í ráðhúsinu á laugardagskvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson Frétt af mbl.is Þessa meirihluta getur Hildur myndað Þurfi að vinna traust í borgarmálum Segir Kristrún það á hennar ábyrgð að leiða og efla Samfylkinguna með forystufólki um land allt. Nú verði unnið í sameiningu að því að hlusta eftir vilja fólksins og leita leiða til að standa betur undir væntingum í næstu sveitarstjórnarkosningum, í hverju sveitarfélagi fyrir sig og á landsvísu. Þá óskar hún Sjálfstæðisflokknum góðs gengis í forystu í fjölmennustu sveitarfélögum landsins og segir Samfylkinguna leggja sig fram um að eiga gott samstarf en jafnframt veita kröftuga andstöðu við harða hægripólitík „sem kemur niður á vinnandi fólki og veikir það sem við eigum hérna saman á Íslandi,“ eins og hún orðar það í færslunni. „Í borgarmálum þarf Samfylking að byggja aftur upp traust. Þó að flokkurinn hafi haldið sínum fimm fulltrúum í borgarstjórn þá er þetta ljóst. Við tökum það til okkar. Þessi uppbygging hefst hjá nýrri forystu okkar í borginni strax í dag. Enda tekur tíma að vinna traust og það getum við aðeins gert með verkum okkar.“ Frétt af mbl.is Sér fyrir sér meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks Hristi upp í kerfinu Kristrún fer yfir að mikil endurnýjun hafi átt sér stað í Samfylkingunni á síðustu árum, fyrst í landsmálunum og nú einnig í sveitarstjórnum þar sem 18 af 19 oddvitum eru nýir. „Þetta er nýtt upphaf og ný kynslóð jafnaðarfólks – sem mun láta til sín taka á næstu árum eins og við höfum séð í landstjórninni. Verkefni okkar er enn að byggja upp sterkan jafnaðarflokk fyrir Ísland.“ Samfylkingin hristi upp í kerfinu og leiði breytingar í ríkisstjórn. „Þetta gerum við áfram af fullum krafti – í þágu þjóðar og með gildi jafnaðarmennsku að leiðarljósi. Lögum ríkisfjármálin, bætum samgöngur, höggvum á hnúta í orkumálum, eflum heilbrigðiskerfið, byggjum verknámsskóla, innleiðum réttlát auðlindagjöld, fjölgum íbúðum, tryggjum trausta stjórn á útlendingamálum, hlúum að eldra fólki og öryrkjum – svo nokkur dæmi séu nefnd.“ Frétt af mbl.is Hildur Björnsdóttir ræður för í borginni Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Sögulegur sigur Sjálfstæðisflokks „Sýnir skýran vilja bæjarbúa“ Reksturinn er helsta áskorunin Ákall kjósenda um breytingar Þessa meirihluta getur Hildur myndað » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þórir og Ómar til Vettvangs Ætla að taka Louvre í gegn Skrifaði undir nýjan samning við meistarana Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Sögulegur sigur Sjálfstæðisflokks Umræðan Kosið um viðræður Tækifæri nýrra sveitarstjórna um allt land Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stefnir í eins manns minnihluta í Grindavík Útiloka ekki samstarf Hildi liggur ekki lífið á Skrifuðum okkar handrit sjálf Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Þórir og Ómar til Vettvangs Ætla að taka Louvre í gegn Skrifaði undir nýjan samning við meistarana Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Sögulegur sigur Sjálfstæðisflokks Umræðan Kosið um viðræður Tækifæri nýrra sveitarstjórna um allt land Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur Björnsdóttir ræður för í borginni Leggja til ítarleg samningsmarkmið og breytta spurningu Þrír grunaðir um árás á eldri mann Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Nærri 1.200 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar Síðbúnar tölur röskuðu kosningavökum Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Pétur: „Mjög svekktur“ Bjarni Benediktsson mættur: „Hef fengið skammir“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ingibjörg Sólrún biður Guðmund afsökunar Rangur listabókstafur hjá Vinstrinu í Reykjavík Segir Guðmund Árna hafa átt að hugsa sinn gang fyrr Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi