Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Arnald Sölva Kristjánsson, lektor við hagfræðideild Háskóla Íslands, formann fjármálaráðs. Arnaldur Sölvi hefur setið í fjármálaráði frá febrúar 2023 og gegnt varaformennsku í ráðinu. Formaður fjármálaráðs er skipaður til fimm ára í senn af fjármála- og efnahagsráðherra að fenginni tilnefningu forsætisráðherra. Samhliða skipuninni undirrituðu Daði Már og Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, samkomulag um umgjörð starfsins. Samkvæmt því telst formennska Arnaldar Sölva í fjármálaráði hluti af akademísku starfi hans við Háskóla Íslands. HÍ styður við störf formanns Með samkomulaginu er tryggt að Háskóli Íslands styðji við þann hluta starfs Arnaldar Sölva sem tengist fjármálaráði og útvegi honum jafnframt aðstöðu til að sinna störfum sínum. Markmiðið er að skapa faglegri umgjörð um starfsemi fjármálaráðs, sem hefur það hlutverk að leggja sjálfstætt mat á stefnumörkun í opinberum fjármálum. Sjá einnig Fjármálaráð: Hallalaus fjárlög jafngilda ekki aðhaldi „Fjármálaráð gegnir mikilvægu hlutverki í að veita ríkinu aðhald. Þessi breyting styrkir stofnanaumgjörð ráðsins og eflir á sama tíma burði hagfræðideildar Háskóla Íslands til rannsókna í opinberum fjármálum,“ segir Daði Már í tilkynningu ráðuneytisins. Metur fjármálastefnu og fjármálaáætlun Fjármálaráð starfar samkvæmt lögum um opinber fjármál og er sjálfstætt í störfum sínum. Ráðinu er ætlað að tryggja að fram fari hlutlægt mat á stefnumörkun í opinberum fjármálum. Það leggur meðal annars mat á hvort fimm ára fjármálastefna og fjármálaáætlun stjórnvalda fylgi þeim grunngildum sem lög um opinber fjármál kveða á um. Í einföldu máli á fjármálaráð að veita óháð aðhald að ríkisfjármálum og leggja mat á hvort áætlanir stjórnvalda séu trúverðugar, sjálfbærar og í samræmi við lögbundin markmið.