Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sextán nýir fulltrúar taka sæti í borgarstjórn

Read Full Article →

Mikil nýliðun verður í nýrri borgarstjórn, sextán fulltrúar kveðja og nýir koma inn í staðinn. Kynjaskipting borgarstjórnar er jöfn – 12 karlar og 11 konur. Yngsti borgarfulltrúinn er nýorðinn 26 ára en sá elsti er 65 ára. Hver koma ný inn? Bjarni Guðjónsson, Brynjar Níelsson, Rúnar Freyr Gíslason, Guðný María Jóhannsdóttir, Albert Guðmundsson, Sigrún Ásta Einarsdóttir og Bjarni Fritzson koma ný inn fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Pétur H. Marteinsson, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Stein Olav Romslö fyrir Samfylkinguna. Björg Magnúsdóttir og Róbert Ragnarsson fyrir Viðreisn. Silja Sóley Birgisdóttir fyrir Sósíalista. Ari Edwald, Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir og Lárus Blöndal Sigurðsson koma ný inn sem fulltrúar Miðflokksins. Tveir flokkar þurrkuðust út úr borgarstjórn, Píratar og Flokkur fólksins. „Ég er stolt af því sem ég hef áorkað á síðustu átta árunum og vona að það hafi verið borginni og borgarbúum til framdráttar. Mér líður eins og við höfum náð miklum árangri. Þetta er erfitt. Það er bara þannig,“ segir Alexandra Briem, fráfarandi borgarfulltrúi. Sigrún Ásta Einarsdóttir, sem var níunda á lista Sjálfstæðisflokksins, kemur ný inn í borgarstjórn. Hún segist alla tíð hafa haft trú á því að flokkurinn næði inn níu fulltrúum. „Ég hlakka til að takast á við verkefni sem framundan eru að breyta borginni. Strax,“ segir hún. Tveir flokkar þurrkast út í borgarstjórn Reykjavíkur eftir kosningar um síðustu helgi en sextán borgarfulltrúar koma nýir inn.

Share this article