Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 6 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Lýðstjórnarlýðveldið Kongó 131 dauðsfall rakið til ebólu Brynjólfur Þór Guðmundsson Stjórnvöld í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó áætla að 131 hafi látist af völdum ebólu af þeim 513 sem talið er að hafi smitast. Áður hafði verið greint frá því að 350 hefðu smitast og 91 látist. Talsmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar greindi AFP-fréttastofunni frá því í dag að stofnunin hygðist halda neyðarfund til að ræða um veikina. Fundurinn verður haldinn síðar í dag. Ebóla hefur einnig greinst í Úganda. Líberískur hjúkrunarfræðingur sótthreinsar aðstöðu. EPA / AHMED JALLANZO Fyrir 34 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Rólegheitaveður með smá vætu Útlit er fyrir þokusúld eða dálitla rigningu en annars staðar verður hæglætisveður og bjart með köflum en skúrir á stöku stað. Fyrir 45 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Xi á að hafa sagt Trump að Pútín ætti eftir að iðrast innrásarinnar í Úkraínu Kínaforseti er sagður hafa tekið óvenjudjúpt í árinni á fundi með Bandaríkjaforseta með staðhæfingu um að Rússlandsforseti muni iðrast innrásarinnar í Úkraínu. Rússlandsforseti kemur til Kína í dag til fundar við forsetann og fleiri ráðamenn. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Stöðvaður réttindalaus á negldum dekkjum með röng skráningarnúmer Markús Þ. Þórhallsson Lögregla að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV / Vignir Már Eiðsson Eignaspjöll í úthverfi eru til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ökumaður sem lögreglumenn stöðvuðu í miðborg Reykjavíkur reyndist réttindalaus auk þess sem undir bílnum voru nagladekk og hann á röngum skráningarnúmerum. Skýrsla var rituð um málið að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar. Nagladekkjanotkun leiddi til kæru á hendur öðrum ökumanni í miðborginni. Innbrotsþjófar voru handteknir þar um slóðir við iðju sína og stungið í fangaklefa. Þar gistu tveir í morgun. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Víðfeðmir gróðureldar geisa nærri Los Angeles Markús Þ. Þórhallsson Umfangsmiklir gróðureldar kviknuðu í gærmorgun nærri úthverfi í bandarísku borginni Los Angeles og breiddust hratt út. Fremur hlýtt, þurrt og hvasst er á svæðinu sem kyndir bálið. Hér má sjá afleiðingar gróðurelda í Kalíforníu í ágúst 2025. EPA / ALLISON DINNER Yfirvöld skipuðu þúsundum íbúa bæja og úthverfa borgarinnar að yfirgefa heimili sín eða búa sig undir flótta. Í gærkvöld hafði eldurinn breiðst yfir fimm og hálfs ferkílómetra svæði og eyðilagt eitt íbúðarhús. Það jafngildir stærð Kársnessins og miðbæjar Kópavogs. Engar tilkynningar hafa borist um manntjón. Borgarstjórinn Karen Bass sagði á blaðamannafundi ólíklegt að gróðureldarnir næðu til Los Angeles-borgar sjálfrar. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Diaz-Canel varar Bandaríkin við alvarlegum afleiðingum hernaðaríhlutunar Markús Þ. Þórhallsson Miguel Diaz-Canel Kúbuforseti varar bandarísk stjórnvöld við því að allar atlögur að eyríkinu komi af stað blóðbaði með óhugnanlegum afleiðingum. Miguel Diaz-Canel Kúbuforseti flytur ávarp 16. apríl síðastliðinn. EPA / Ernesto Mastrascusa Forsetinn sagði þetta í færslu á samfélagsmiðlinum X og áréttaði jafnframt að Bandaríkjunum eða hvaða öðru ríki sem er stafaði engin hætta af Kúbu. Diaz-Canel birti færsluna í kjölfar þess að vefritið Axios sagði Rússa og Írana hafa sent kúbverskum yfirvöldum á fjórða hundrað árásardróna og að þau hygðust beita vopnunum gegn bandarískum skotmörkum. Þar voru sérstaklega nefnd herstöð Bandaríkjanna við Guantanamoflóa, bandarísk herskip og jafnvel Key West á Flórída. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Máli Musks gegn OpenAI vísað frá — vegna fyrningar Mál Elons Musk gegn bandaríska tæknifyrirtækinu OpenAI rann út í sandinn í gær þegar kviðdómur ákvað að beita fyrningarreglu og vísa því frá. Hann hafi beðið of lengi með málshöfðun. Krafa Musks var að fyrirtækið yrði óhagnaðardrifið. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Varnarmálanefnd þingsins ræðir mögulega ógn af drónaflugi Stjórnvöld víða hafa lýst áhyggjum af fjölþáttaógnum sem miða að því að veikja traust almennings og lama innviði. Drónaflug hefur verið álitið ein þeirra ógna og virtist steðja að Finnlandi fyrir helgi. Varnarmálanefnd þingsins fundar um málið í dag. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Orkumál Tímabundin heimild til kaupa á rússneskri olíu framlengd öðru sinni Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákveðið að framlengja á ný til þrjátíu daga sérstaka undanþágu frá banni við kaupum á rússneskri olíu. Hún nær aðeins til olíu um borð í skipum á siglingu og er ætlað að draga úr orkuskorti viðkvæmra ríkja. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Heilbrigðisyfirvöld hyggjast skima farþega við ebólu Bandarísk heilbrigðisyfirvöld telja litla hættu á að ebólufaraldur skjóti sér niður þarlendis. Þau hafa ákveðið að grípa til forvarna við landamærin, meðal annars með skimun og takmörkunum á komu erlends fólks frá svæðum þar sem faraldur geisar. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Vonast eftir góðum árangri af fundi forsetanna tveggja Rússlandsforseti heldur til fundar við Kínaforseta í dag, tæpri viku eftir að Bandaríkjaforseti kvaddi með virktum. Rússnesk stjórnvöld vonast til góðs árangurs af tveggja daga fundi leiðtoganna þar sem varnarmál og viðskipti verða meðal annars rædd. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Mannréttindi 47 aftökur í Bandaríkjunum í fyrra Bandaríkin eru meðal þeirra ríkja þar sem aftökur voru fleiri í fyrra en árið á undan. 47 manns voru teknir af lífi í Bandaríkjunum í fyrra, þar af 19 í Flórída. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump kveðst hafa hætt við stórfellda árás á Íran vegna vonar um friðarsamkomulag Bandaríkjaforseti segir leiðtoga bandalagsríkjanna við Persaflóa hafa hvatt hann til að hætta við að leggja til atlögu að Íran aftur. Unnið væri að samkomulagi um frið. Árás hefði verið í bígerð þar sem Íransstjórn hafnaði vopnahlésskilmálum hans. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Rjúpan nýtur góðs af lægð fálkans Fækkun fálka gæti orðið til þess að fjölgi í rjúpnastofninum. Árleg rjúputalning fór fram nýverið og virðist talsvert af fugli austan til. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Óljóst hvort og hvenær verði farið í framkvæmdir við Landeyjahöfn Innviðaráðherra vonast til að hægt verði að gera varnargarða við Landeyjahöfn, til að verjast sandburði og kanna möguleika á jarðgöngum til Eyja. Hann sat fyrir svörum um samgöngur til Eyja á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í dag. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Þrír látnir eftir árás unglinga fyrir utan mosku Þrír létu lífið í San Diego eftir að tveir unglingar hófu skothríð við mosku fyrr í kvöld. Árásarmennirnir eru einnig látnir. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fjögurra flokka meirihlutaviðræður hefjast í Norðurþingi Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Samfylkingin og Óskalistinn í Norðurþingi ætla að hefja formlegar meirihlutaviðræður á morgun. Þetta staðfestir Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi, í samtali við fréttastofu. Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar féll í sveitarstjórnarkosningum um helgina. Samfylkingin bætti við sig manni og Óskalistinn, nýtt framboð sem leggur áherslu á málefni austanbyggða í Norðurþingi, fékk einn mann inn. Þessi fjögurra flokka meirihluti ætti sjö fulltrúa af níu í sveitarstjórn Norðurþings. Listi Vinstri grænna og óháðra og Miðflokkurinn eiga hvort tveggja einn fulltrúa. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti „Það er ótrúlegt hvað ég er búinn að bíða lengi eftir þessu“ Leikmenn og þjálfari Grindavíkur voru nánast orðlausir eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í höfn á Sauðárkróki í kvöld. Liðsheildin og grindvíska samfélagið var mönnum ofarlega í huga. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Formlegar meirihlutaviðræður hafnar í Fjarðabyggð Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð hafa ákveðið að hefja formlegar meirihlutaviðræður um áframhaldandi samstarf flokkanna á komandi kjörtímabili. Núverandi meirihluti flokkanna hélt velli í sveitarstjórnarkosningunum. Fulltrúar flokkanna telja því eðlilegt að leita leiða til að halda áfram samstarfi undanfarinna tveggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu. Í henni segir að viðræður á næstu dögum muni snúa að sameiginlegri framtíðarsýn, verkefnum komandi kjörtímabils og útfærslu nýs málefnasamnings fyrir sveitarfélagið. Aðsend 18. maí 2026 kl. 21:10ÍÞRÓTTIR Körfubolti Grindavík Íslandsmeistari í fyrsta sinn í 13 ár Grindavík er Íslandsmeistari karla í körfubolta eftir sigur á Tindstóli í fjórða úrslitaleik liðanna á Sauðárkróki í kvöld, 109-102. Þetta er í fjórða sinn sem Grindavík vinnur titilinn en sá síðasti vannst árið 2013. 18. maí 2026 kl. 21:00ÍÞRÓTTIR Fótbolti Arsenal einum sigri frá titlinum Einar Örn Jónsson Arsenal vann Burnley í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, 1-0. Kai Havertz skoraði eina mark leiksins á 37. mínútu. Arsenal er nú með fimm stiga forskot á Manchester City, sem á leik til góða gegn Bournemouth á útivelli á morgun. Mistakist City að vinna þann leik er Arsenal meistari í fyrsta sinn síðan 2004. Vinni City á morgun ráðast úrslitin í lokaumferðinni komandi sunnudag. Arsenal sækir þá Crystal Palace heim á meðan City tekur á móti Aston Villa. Kai Havertz fagnar marki sínu gegn Burnley í kvöld. EPA / DAVID CLIFF 18. maí 2026 kl. 20:44MENNING OG DÆGURMÁL Leiklist Ormstunga tilnefnd til flestra Grímuverðlauna Tilnefningar leikverka og listamanna til Grímuverðlaunanna voru tilkynntar í dag. Ormstunga hlýtur flestar tilnefningar í ár, samtals tólf. Þar á eftir er sýningin Óresteia með tíu. 18. maí 2026 kl. 20:37INNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Höfum ekki tíma fyrir málþóf“ Utanríkisráðherra segir að afgreiðsla þjóðaratkvæðagreiðslunn