Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bergrún Snæbjörnsdóttir og Ingibjörg Turchi tilnefndar til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs

Read Full Article →

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2026 verða afhent í október. Þrettán verk eru tilnefnd frá öllum Norðurlöndunum fyrir listrænt gildi og spanna vítt svið ólíkra greina og tjáningar. Öll eiga þau það sameiginlegt að einkennast af nýsköpun og listrænum gæðum. Meðal tilnefndra verka eru allt frá barnaóperu til kvikmyndatónlistar, klassískrar tónlistar, popps og djass, auk efnis sem tekið er upp utan hljóðvera, nútímalegrar túlkunar á austurgrænlenskum trommudansi og norðursamískri jojkhefð í bland við rafrænar hljóðmyndir. Tónskáldin Bergrún Snæbjörnsdóttir og Ingibjörg Turchi eru tilnefndar fyrir Íslands hönd í ár. Handhafa tónlistarverðlaunanna verður afhent styttan Norðurljós á sérstakri verðlaunahátíð í tengslum við þing Norðurlandaráðs sem er að þessu sinni haldið í Helsinki í Finnlandi. Verðlaunin nema 300 þúsundum danskra króna. Verðlaun eru afhent í fimm flokkum: bókmenntum, kvikmyndum, tónlist, umhverfi og barna- og unglingabókmenntum. Í rökstuðningi dómnefndar segir að Bergrún Snæbjörnsdóttir sé fjölfaglegur listamaður sem blandi saman sígildri samtímatónlist, tilraunakenndri raftónlist og þáttum úr sviðslistum í verkum sínum. Stíll hennar sé stilltur en ákafur og áhersla lögð á gagntakandi hlustunarrými og nákvæma hljóðmyndun. Verk hennar Intraloper var frumflutt á Myrkum músíkdögum af Bergrúnu sjálfri og hinum virta þýska málmblásarakvartett Apparat. Þar hafi komið skýrt í ljós hve fær hún sé í stemningsríkum hljóðmyndum og fágaðri tónstýringu. Þetta sé vandlega mótað verk sem hefur fest Bergrúnu í sessi sem eina merkustu röddina á sviði íslenskrar framúrstefnu. Bassaleikarinn og tónskáldið Ingibjörg Turchi hefur verið mikilvirk á ýmsum sviðum íslensku tónlistarsenunnar eins og segir í rökstuðningi dómnefndar. Hún sé eftirsóttur session-spilari og hefur spilað með mörgum af ástsælustu listamönnum landsins, bæði á plötum og tónleikum. Stropha er önnur plata hennar og inniheldur hljóðmynd í mörgum þéttum lögum þar sem tónskáldið ögrar eigin listsköpun og byggir áfram á sínum flæðandi, melódíska og nánast leiðslukennda bassaleik. Þetta sé skínandi verk eftir „eitt mesta hæfileikabúnt Íslands“. Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 1965. Þeim er ætlað að vekja athygli á tónlistarsköpun og tónlistarflutningi sem telst hafa mikið listrænt gildi. Verðlaunin eru til skiptis veitt annars vegar núlifandi tónskáldi og hins vegar tónlistarhópi eða -flytjanda. Í ár renna verðlaunin til tónverks.

Share this article