Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, telur hækkun stýrivaxta óhjákvæmilega. Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnir á morgun næstu stýrivaxtaákvörðun. Fram kom í viðtali við Unu í hádegisfréttum að nýbirtar tölur um samdrátt í innlendri kortaveltu séu líklegar til að hafa áhrif ákvörðun Seðlabankans en hún varar þó við því að lesa í einstakar mælingar. Hún telur þetta ekki breyta stóru myndinni en að vaxtahækkun verði ef til vill minni en ella. Hún spáir 0,25 prósentustiga hækkun. Una segir að vísbendingar um kólnun breyti því ekki að verðbólga og verðbólguvæntingar hafi hækkað undanfarið. Því er líklegt að seðlabankinn líti svo á að stýrivaxtahækkun sé óhjákvæmileg. Aðalmarkmiðið að slá á verðbólguvæntingar Mæling í apríl sýndi að verðbólguhækkunin sé fyrst og fremst til komin vegna þátta sem tengjast hækkun olíuverðs. Una segir að vaxtahækkun slái ekki á utanaðkomandi verðbólgu en hafi áhrif á verðbólguvæntingar. „Þegar við sjáum verðhækkanir koma erlendis frá hefur það áhrif á væntingar fólks og það getur orðið til þess að verðbólga verði meiri. Þetta birtist til dæmis skýrt á vinnumarkaði. Það er eðlilegt að fólk krefjist meiri launa þegar það gerir ráð fyrir meiri verðbólgu. Það getur síðan aftur haft áhrif á verðlagningu fyrirtækja.“ Una segir að Seðlabankanum sé mikið í mun að ná verðbólguvæntingum niður. Það sé aðalástæðan fyrir spáðri stýrivaxtahækkun.