Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Oftast strikað yfir nafn Guðmundar Árna

Read Full Article →

Strikað var yfir nafn Guðmundar Árna Stefánssonar, oddvita Samfylkingarinnar, 136 sinnum í nýafstöðnum sveitarstjórnarskosningum – meira en annarra frambjóðenda í Hafnarfirði. Þetta sýna tölur úr kosningaskýrslu yfirkjörstjórnar í Hafnarfirði. Útstrikanir höfðu ekki áhrif á niðurstöður. Guðmundur Árni ákvað að stíga til hliðar eftir að Samfylkingin missti töluvert fylgi í Hafnarfirði og tvo fulltrúa. Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, var næstur á lista en strikað var yfir nafn hans 45 sinnum. Þar á eftir var Kristín Thoroddsen, sem skipar annað sætið á lista Sjálfstæðismanna, með 23 útstrikanir. Hér fyrir neðan má sjá hve oft kjósendur strikuðu yfir nöfn frambjóðenda í Hafnarfirði.

Share this article