Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tólf­föld eftir­spurn í 72 milljarða evruút­gáfu ríkisins

Read Full Article →

Ríkissjóður Íslands gaf í dag út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, jafnvirði um 72 milljarða króna. Skuldabréfin voru gefin út með 34 punkta álagi á skiptavexti (mid-swap rate), samkvæmt tilkynningu Lánamála ríkisins. „Andvirði útgáfunnar verður varið í að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands og endurfjármagna útistandandi evrubréf sem er á gjalddaga í júní. Útgáfan er í samræmi við breyttar áherslur í stefnu í lánamálum sem miða að því að gefa árlega út á alþjóðamörkuðum.“ Eftirspurn nam ríflega 6 milljörðum evra eða rúmlega tólffaldri fjárhæð útgáfunnar, sem ríkið segir til marks um mikinn áhuga á útgáfunni. Fjárfestahópurinn samanstendur af eignastýringarsjóðum, bönkum, seðlabönkum, tryggingafélögum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Evrópu. Umsjón útgáfunnar var í höndum BNP Paribas, JP Morgan, Nomura og Deutsche Bank. „Frábærar viðtökur fjárfesta eru til marks um greiðan aðgang ríkissjóðs að alþjóðamörkuðum og viðurkenning á breyttri stefnu í lánamálum sem miðar að því að auka fyrirsjáanleika í reglubundinni útgáfu og ætti að óbreyttu að hafa jákvæð áhrif á fjármögnunarkjör ríkissjóðs. Það er líka ánægjulegt að sjá enn frekari dreifingu í fjárfestahópnum,“ segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Álagið lækkar frá síðustu útgáfu Vaxtakjör ríkissjóðs í þessu útboði eru umtalsvert betri en í síðustu útgáfu, en útgáfur ríkissjóðs eru verðlagðar með hliðsjón af skiptavöxtum (Mid-swap rate). Álagið á skiptavexti nú er 34 punktar en voru 42 punktar í síðustu útgáfu í maí 2025. Álagið á ríkissjóð hefur farið lækkandi á síðustu misserum þrátt fyrir óvissu og áskoranir á alþjóðavettvangi en haldist nokkuð stöðugt frá áramótum. Skuldabréfin bera 3,25% fasta vexti og voru gefin út til 5 ára á ávöxtunarkröfunni 3,352%. „Þrátt fyrir ýmsar væringar og óvissu á alþjóðamörkuðum, hefur vaxtaálag ríkissjóðs haldist nokkuð stöðugt. Staða efnahags- og ríkisfjármála er góð þrátt fyrir áskoranir. Staða Íslands er með ágætum í samanburði við það sem margar aðrar þjóðir eru að glíma við; góðar hagvaxtarhorfur, lækkandi skuldahlutfall ríkissjóðs og aukin fjölbreytni í útflutningi sem hefur endurspeglast í bættu lánshæfismati," segir Daði Már.

Share this article