Innlent | mbl | 19.5.2026 | 16:36 Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Eyjólfur sat fyrir svörum. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/María Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Landeyjahöfn Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Nauðsynlegt að móta heildstæða áætlun Beint: Eyjólfur situr fyrir svörum Framlengja áætlunarflug til mánaðamóta Stefnt á að Herjólfur sigli til Landeyjahafnar » Fleiri tengdar fréttir Eyjamenn urðu margir fyrir vonbrigðum með svör innviðaráðherra á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í gær þar sem samgöngur á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar voru m.a. til umræðu. Á fundinum hafnaði Eyjólfur Ármannsson ráðherra því að gerð yrði úttekt á tapi sem fyrirtæki í Vestmannaeyjum hafa orðið fyrir vegna samgönguraskana það sem af er ári. „Ég held að við höfum mörg orðið fyrir vonbrigðum með viðbrögðin. Þetta hefur verið gríðarlegt högg fyrir samfélagið og auðvitað væri eðlilegt að það yrði skoðað,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, í samtali við mbl.is. Íris telur það ekki mikla kröfu að ríkið meti tjónið heldur sé það eðlilegt viðbragð svo allir séu á sömu blaðsíðu. „Við gerum okkur nokkurn veginn grein fyrir umfangi tjónsins en ég var hissa á að hann [Eyjólfur] var ekki tilbúinn að meta það.“ Mikið hefur mætt á Eyjamönnum það sem af er ári þar sem Landeyjahöfn hefur verið lokuð stóran hluta ársins en hefur nú nýlega verið opnuð. Þá er bilun í annarri vél Herjólfs sem dregur úr getu skipsins til að sigla í krefjandi aðstæðum. Frétt af mbl.is Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Sumarvertíðin byrjar í halla „Þetta eru óboðlegar aðstæður sem við höfum búið við í vetur og það veit ráðherrann. En svörin voru samt rýr í gær,“ segir Íris. Eyjólfur var spurður á fundinum hvort tjónið sem fyrirtæki hafa orðið fyrir vegna samgönguraskana yrði bætt. Svaraði Eyjólfur að það væri ekki hlutverk ríkisins að bæta tap fyrirtækja. Benti hann á að ekki væru neyðaraðstæður í gangi eins og í Grindavík. Spurð hvernig hljóðið sé í fyrirtækjaeigendum og öðrum Eyjamönnum eftir veturinn segir Íris að hljóðið sé þungt. „Hljóðið er auðvitað þungt en það er alltaf léttir þegar höfnin opnar. En við ætlum ekkert að gleyma okkur því þetta ástand mun koma aftur ef það verða ekki breytingar. Við sitjum enn þá uppi með tjónið eftir gríðarlega erfiðan vetur. Sumarvertíðin, sérstaklega hjá ferðaþjónustufyrirtækjum, byrjar í miklum halla eftir tekjuleysi vetrarins,“ segir Íris. Bætir hún við að ástandið í Landeyjahöfn hafi líka áhrif á vöruflutninga, landanir og lífsgæði íbúa sem sækja ýmsa þjónustu til Reykjavíkur. Frétt af mbl.is Nauðsynlegt að móta heildstæða áætlun Miklar samgönguraskanir hafa verið í vetur. mbl.is/Sigurður Bogi Áttu von á meiru Íris segir mikilvægt að viðbragðsáætlun sé til staðar þegar röskun verður á siglingu til og frá Vestmannaeyjum. „Það þarf að vera tilbúin áætlun um hvað á að gera ef dýpkunarskipið bilar, hvað á að gera ef Herjólfur bilar, hvað á að gera ef staðan í höfninni er erfið, þá hlýtur að vera hægt að bæta í flugið á meðan staðan er sem verst,“ segir Íris. „Samgöngur við Vestmannaeyjar eru á ábyrgð ríkisins og það verður að segjast eins og er að við áttum von á svörum við fleiri spurningum hjá ráðherranum í gær.“ Hún segir að Eyjamenn geri kröfu um að Landeyjahöfn verði kláruð og segir Íris að vonir séu bundnar við tillögur sem eru væntanlegar frá dönsku straumfræðistofnuninni DHI sem vinnur skýrslu um höfnina. Eyjólfur mun mæta á fund Vegagerðarinnar í Vestmannaeyjum 2. júní þar sem hann mun sitja fyrir svörum. Tengdar fréttir Landeyjahöfn Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Nauðsynlegt að móta heildstæða áætlun Beint: Eyjólfur situr fyrir svörum Framlengja áætlunarflug til mánaðamóta Stefnt á að Herjólfur sigli til Landeyjahafnar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Conte hættir enn einu sinni Framsókn og óháðir hefja viðræður við Viðreisn Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Jason yfirgefur enska félagið Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Segir aðferðir flugmanna „sorglegar“ „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Flestir strikuðu yfir Ásdísi Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Hildur ekkert haft samband Biðla til ökumanna að sýna þolinmæði vegna tafa Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Conte hættir enn einu sinni Framsókn og óháðir hefja viðræður við Viðreisn Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Jason yfirgefur enska félagið Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þessa meirihluta getur Hildur myndað „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Flestir strikuðu yfir Ásdísi Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Hildur ekkert haft samband Biðla til ökumanna að sýna þolinmæði vegna tafa Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi