Innlent | mbl | 19.5.2026 | 14:43 | Uppfært 16:58 „Við erum varla byrjuð að vinna“ Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík, segir Grindvíkinga enn vera í skýjunum með sigurinn í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Sigur Grindavíkur í Íslandsmóti karla í körfubolta gefur Grindvíkingum trú á enduruppbyggingu bæjarins, að sögn Péturs Hafsteins Pálssonar, framkvæmdastjóra Vísis í Grindavík. „Við erum varla byrjuð að vinna, erum bara að tala um leikinn. Það er alveg ótrúlegt hvað þessi sigur veitir íbúum í Grindavík því þetta er svo stór hluti af menningu bæjarins,“ segir Pétur í samtali við mbl.is. Grindvíkingar höfðu betur gegn Tindastóli í fjórða leik úrslitaeinvígisins á Sauðárkróki í gær og urðu þar með Íslandsmeistarar í körfubolta í fyrsta sinn í þrettán ár. Liðið og stuðningsmenn þess munu fagna sigrinum kl. 18 í Grindavík í kvöld. Miklu stærra en bara Íslandsmeistaratitill Pétur segir sigurinn hafa þýðingu umfram íþróttina fyrir samfélagið. En missir hefur einnig sett mark á bæði liðið og bæjarfélagið. „T veir öflugir stuðningsmenn hafa fallið frá á þessum tíma, Ólafur Þór Jóhannsson, pabbi þeirra bræðra í liðinu [Ólafs fyrirliða og Jóhanns Þórs þjálfara] og Stefán í Einhamri sem var einn dyggasti stuðningsmaðurinn. Þetta var svo miklu stærra en bara að vinna Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta,“ segir Pétur. Leikmenn Grindavíkur fagna sigrinum í gær. Ljósmynd/Jón Gautur Eins fallegt og hugsast gat Þá voru lykilleikmenn Grindavíkur, DeAndre Kane og Ólafur Ólafsson fyrirliði, ekki með í leiknum. Þrátt fyrir það unnu Grindvíkingar leikinn sem tryggði þeim Íslandsmeistaratitilinn og Pargo átti stórkostlegan leik með 48 stig. „Að hér séu ungir heimamenn með Pargo í broddi fylkingar, það gerði þetta eins fallegt og hugsast gat,“ segir Pétur. Frétt af mbl.is Grindavík meistari eftir sigur í Síkinu Óvissa ríkir enn í húsnæðismálum í Grindavík að sögn Péturs. mbl.is/Eggert Jóhannesson Óvissa í húsnæðismálum Íbúum fer nú fjölgandi og búa um fimm til sjö hundruð manns í Grindavík. Pétur, sem hefur verið gagnrýninn á aðgerðir fasteignafélagsins Þórkötlu, segir óvissu ríkja í fasteignamálum Grindvíkinga. Margir hafi ekki fengið skýrar upplýsingar varðandi húsnæði sitt fyrir sumarið. „Þetta er stærsta verkefni nýrrar bæjarstjórnar sem tekur nú við og hún mun berjast fyrir því að íbúar fái meiri stjórn á eigin málum. Við kunnum alveg að vera hérna og skapa okkur líf hér – með því öryggi sem er tryggt og er grunnurinn að öllu.“ Frétt af mbl.is Grindvíkingar ekki hafðir með í ráðum Hann segist bjartsýnn á að það takist að byggja aftur upp öflugt bæjarlíf. „Hérna er allt til alls og bærinn er í góðu standi. Hann er skuldlaus og atvinnulífið er í góðum blóma.“ Helsta hindrunin er kerfið sem takmarkar svigrúm íbúa til að taka eigin ákvarðanir að mati Péturs. „Við teljum okkur ekki fá að stjórna því sem við viljum stjórna og við ætlum að nýta þennan sigur til að berjast við það,“ segir Pétur að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Conte hættir enn einu sinni Framsókn og óháðir hefja viðræður við Viðreisn Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Jason yfirgefur enska félagið Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig HMS hafnar seinagangi og ætlar að skila áliti fljótlega Fundað í Grænlandsmáli: „Góður tónn“ Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Flestir strikuðu yfir Ásdísi Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Hildur ekkert haft samband Biðla til ökumanna að sýna þolinmæði vegna tafa Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Conte hættir enn einu sinni Framsókn og óháðir hefja viðræður við Viðreisn Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Jason yfirgefur enska félagið Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þessa meirihluta getur Hildur myndað 25 punktar muni merja sigurinn á morgun Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Segir aðferðir flugmanna „sorglegar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Flestir strikuðu yfir Ásdísi Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Hildur ekkert haft samband Biðla til ökumanna að sýna þolinmæði vegna tafa Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi