Innlent | mbl | 19.5.2026 | 17:34 Ólíkar deilur á viðkvæmasta tíma ársins Þótt staðan sé snúin segir Ástráður örugglega alltaf hægt að finna einhverjar leiðir til þess að koma til móts við sjónarmið hvers annars. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/Árni Sæberg Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Kjaraviðræður Farmannastétt útrýmt með útvistun Segir aðferðir flugmanna „sorglegar“ Samninganefndir flugmanna og Icelandair funda „Jákvætt að menn séu að ræða saman“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni » Fleiri tengdar fréttir „Það voru fundir í báðum deilum í gær og það verða fundir í báðum deilum á fimmtudaginn. Ég veit að það eru samtöl og ég hef hvatt aðila til þess að eiga samtöl sín á milli og leita leiða og við höfum rannsakað svona möguleika í því,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari um yfirstandandi kjaradeilu Icelandair við flugmenn og flugvirkja. Að öðru leyti segir ríkissáttasemjari lítið hægt að segja opinberlega á þessu stigi. „Þetta er bara þannig, eðli málsins samkvæmt, að fólk er að reyna að ná saman eftir því sem það getur.“ Frétt af mbl.is Segir aðferðir flugmanna „sorglegar“ Engir gagnslausir fundir Áttu von á þéttum fundahöldum næstu daga? „Það fer alveg eftir fundarefninu. Við náttúrulega fundum eins oft, eins mikið og eins lengi eins og gagn er í en reynum að halda ekki gagnslausa fundi, það hjálpar engum.“ Ástráður segir deilurnar ólíkar en báðar snúnar á sinn hátt. Eins og komið hefur fram opinberlega er það afstaða félagsins að þörf sé á að breyta verulega þeim takti sem hefur gilt í sambandi við gerð kjarasamninga hjá Icelandair. í báðum tilfellum fallast félögin ekki á málflutning sem hafður hefur verið uppi opinberlega af hálfu Icelandair. Frétt af mbl.is Samninganefndir flugmanna og Icelandair funda Að fljúga inn í viðkvæmasta tíma ársins Helsta ferðatímabil Icelandair er að hefjast og má því segja að deilurnar séu í hámarki þegar félagið er að fljúga inn í viðkvæmasta tíma ársins. Ástráður segist halda að allir séu sammála um að mjög mikilvægt sé að það náist að leysa úr deilunum með friðsamlegum hætti. „Menn hafa auðvitað sameiginlegra hagsmuna að gæta að þetta fari ekki að skrúfast upp í einhverjar harðar aðgerðir. Ég held að það séu allir sammála um það en vandinn er að finna einhvern sameiginlegan flöt, eitthvað sem hægt er að byggja á.“ Segir Ástráður stéttarfélögin öll hafa goldið varhug við hugmyndum um að breyta einhverjum rekstrarformum og byggja á sínum forgangsréttarákvæðum til þess að gera kjarasamninga miðað við þær reglur sem gilt hafa á innlendum markaði. Segir hann kannski gæta tortryggni gagnvart hugmyndum um breytingar á því. Atvinnurekendur hafi þá lagt áherslu á það að þetta séu viðbrögð við þeirri stöðu sem samkeppnisaðilar þeirra hafa. Þótt staðan sé snúin segir Ástráður örugglega alltaf hægt að finna einhverjar leiðir til þess að koma til móts við sjónarmið hvers annars, „en við erum ekkert alveg komin þangað ennþá og ég veit ekki alveg hvað ég á að segja um það, ég held að það verði svolítið að koma í ljós.“ Frétt af mbl.is Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn Frétt af mbl.is Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Tengdar fréttir Kjaraviðræður Farmannastétt útrýmt með útvistun Segir aðferðir flugmanna „sorglegar“ Samninganefndir flugmanna og Icelandair funda „Jákvætt að menn séu að ræða saman“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Óvænt ákvörðun Pep Guardiola Ólíkar deilur á viðkvæmasta tíma ársins Bournemouth – Man. City kl. 18.30, bein lýsing Ófundinn eftir að hafa elt stúlku að skólalóð Mikið áfall fyrir unga Spánverjann Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tekur ákvörðun um framhaldið í kvöld Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Fundað í Grænlandsmáli: „Góður tónn“ HMS hafnar seinagangi og ætlar að skila áliti fljótlega Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Flestir strikuðu yfir Ásdísi Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Hildur ekkert haft samband Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Biðla til ökumanna að sýna þolinmæði vegna tafa Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Óvænt ákvörðun Pep Guardiola Ólíkar deilur á viðkvæmasta tíma ársins Bournemouth – Man. City kl. 18.30, bein lýsing Ófundinn eftir að hafa elt stúlku að skólalóð Mikið áfall fyrir unga Spánverjann Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ 25 punktar muni merja sigurinn á morgun „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Flestir strikuðu yfir Ásdísi Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Hildur ekkert haft samband Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Biðla til ökumanna að sýna þolinmæði vegna tafa Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi