Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, segir að setja þurfi skýr mörk í hælisleitendamálum í Reykjanesbæ. Miðflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn eru nú í meirihlutaviðræðum í sveitarfélaginu. Báðir flokkar voru með á stefnuskrá sinni að breyta þyrfti því hvernig staðið væri að móttöku hælisleitenda í sveitarfélagið. Vilhjálmur segir að lögð verði áhersla á að koma ekki á fleiri búsetuúrræðum og að íbúar sveitarfélagsins fylgi þeim reglum og siðum sem settir eru. Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, segir að sveitarfélagið taki ekki á móti fleiri hælisleitendum verði meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks myndaður, flokkarnir hafi báðir talað fyrir átaki í málaflokknum. Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, segir ljóst að samhljómur sé á milli flokkanna í þessum efnum, innviðirnir séu sprungnir og að Reykjanesbær hafi vegna þess ekki tök á að taka á móti fleiri hælisleitendum. Áherslumun flokkanna telur Gunnlaugur ekki mikinn, málefnaskrárnar séu skýrar og harmóneri saman, litið sé sérstaklega til þeirra í meirihlutaviðræðum. Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, segir að sveitarfélagið taki ekki á móti fleiri hælisleitendum verði meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks myndaður, flokkarnir hafi báðir talað fyrir átaki í málaflokknum.