Innlent | mbl | 19.5.2026 | 20:11 Barnamálaráðherrar fari opinberlega með ósannindi Ingibjörg segist ítrekað hafa verið gaslýst opinberlega af Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra og af forvera hennar, Guðmundi Inga Kristinssyni. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna „Ég vil svara fyrir mig núna“ Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Engin úrræði og engin ábyrgð » Fleiri tengdar fréttir Ingibjörg Einarsdóttir, móðir sem leitaði með son sinn til Suður-Afríku í fíknimeðferð vegna úrræðaskorts hérlendis, segist ítrekað hafa verið gaslýst opinberlega af ráðherrum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, tvisvar af Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra og tvisvar af forvera hennar, Guðmundi Inga Kristinssyni, eftir að hafa sagt sannleikann um raunverulega stöðu barna með fjölþættan vanda og hvernig staðan á meðferðarúrræðum á Íslandi er í raun. Þessu greinir hún frá í aðsendri grein á Vísi . „Fyrst sagði Guðmundur Ingi að það væri ekki áfellisdómur yfir kerfinu að foreldrar þyrftu að leita með börnin sín í meðferð til Suður-Afríku. Hann sagði líka opinberlega að meðferðin þar stæðist ekki staðla sem giltu á Íslandi eða á Norðurlöndum, þrátt fyrir að hafa sjálfur viðurkennt að hafa ekki kynnt sér úrræðið í Suður-Afríku,“ skrifar hún. „Ég get þó staðfest eitt: Börnin eru edrú þar. Það hefur ekki alltaf verið raunin í úrræðum hér heima.“ Frétt af mbl.is „Þetta myndum við aldrei líða hér“ Frétt af mbl.is Mikill þroskamunur: „Þetta var svo fallegt mamma“ „Árangurinn hefur aldrei verið mældur“ Ingibjörg segir sannleikann vera þann að á Íslandi séu engin gæðaviðmið til fyrir fíknimeðferð barna. Því megi segja að ekkert gæðaeftirlit sé til staðar og þannig átti hún sig ekki á hvaða staðla Guðmundur Ingi vísar til, sem íslensku úrræðin uppfylla en ekki þau suðurafrísku. „Í skýrslu frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála kemur fram að meðferðarúrræði á vegum BOFS hafi aldrei verið árangursmæld. Samt er sífellt talað um „gagnreyndar aðferðir“. Þá spyr ég: Hvernig geta aðferðir kallast gagnreyndar ef árangurinn hefur aldrei verið mældur? Eru þær kannski gagnreyndar í að mistakast?“ skrifar hún og heldur áfram: „Við erum að setja viðkvæmustu börn landsins í úrræði sem við vitum í raun ekki hvort hjálpa eða valda skaða.“ Frétt af mbl.is Engin gæðaviðmið til fyrir „gagnreyndar aðferðir“ Í skýrslu BOFS kemur líka fram að innan þessara úrræða séu börn sem ættu í raun heima innan geðheilbrigðiskerfisins vegna alvarlegra geðrænna veikinda – ekki í úrræðum á vegum BOFS. „Það er líka áfellisdómur yfir kerfinu. Eins og ég hef áður sagt: Börn eru bókstaflega að brenna inni í kerfi sem á að bjarga þeim. Síðar sagði Guðmundur Ingi að neysla á Stuðlum væri „gamalt vandamál“. Það var einfaldlega ekki rétt og ég hef sannanir fyrir öðru,“ skrifar Ingibjörg enn fremur. Frétt af mbl.is Ráðherra um fíkniefnin: „Þetta var gamalt vandamál“ Frétt af mbl.is „Er ekki í neinum tengslum við raunveruleikann“ Frásögnum breytt eftir á „Núna kemur Inga Sæland fram í kommentakerfi og segir að það sem ég hafi sagt sé „BULL“ – í caps lock. Hún fullyrðir í fjölmiðlum að enginn biðtími sé eftir meðferð fyrir börn. Þessu er einnig haldið fram á vef Stjórnarráðsins,“ skrifar Ingibjörg þá um samskipti sín við núverandi mennta- og barnamálaráðherra í kommentakerfum samfélagsmiðla. Aftur á móti viti hún um barn í alvarlegri stöðu sem hafi ítrekað endað á bráðamóttöku og hafi nú beðið í tæpan mánuð eftir meðferð. Hún hafi tekið sérstaklega fram að staðan væri mismunandi eftir úrræðum, það væri ekki biðlisti í langtímameðferð fyrir drengi akkúrat núna en það væri biðlisti í grunnmeðferð. Þrátt fyrir það hafi því ítrekað verið haldið fram að engin börn biðu eftir meðferð. Frásögninni hafi svo síðar verið breytt og sagt að aðeins hefði verið átt við langtímameðferð. Það standist aftur á móti ekki ef horft sé á fyrri yfirlýsingar. Frétt af mbl.is Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Frétt af mbl.is „Ég vil svara fyrir mig núna“ Alvarlegt að ráðherra fari opinberlega með ósannindi „Mér finnst það mjög alvarlegt þegar barnamálaráðherrar fara opinberlega með ósannindi um jafn viðkvæman málaflokk,“ skrifar Ingibjörg. „Það lagar ekkert að neita raunveruleikanum. Þvert á móti grefur það undan foreldrum, börnum og öllum þeim sem reyna að benda á hvað sé raunverulega að gerast. Þetta er málaflokkur þar sem staðan er oft bókstaflega spurning um líf eða dauða. Sýnum þessum börnum og foreldrum þá virðingu að segja sannleikann eins og hann er. Hættum að sópa óþægilegum staðreyndum undir teppið. Það er ekki hægt að laga kerfi sem neitar að horfast í augu við eigin stöðu.“ Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna „Ég vil svara fyrir mig núna“ Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Engin úrræði og engin ábyrgð » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bournemouth - Man. City, staðan er 1:1 Barnamálaráðherrar fari opinberlega með ósannindi Setti kreditkortið í frægasta brunn Rómar Skrifaði undir í Fossvoginum Skúli Tómas krefst frávísunar Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert ASÍ og BSRB andvíg innviðafélagi Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Bournemouth - Man. City, staðan er 1:1 Barnamálaráðherrar fari opinberlega með ósannindi Setti kreditkortið í frægasta brunn Rómar Skrifaði undir í Fossvoginum Skúli Tómas krefst frávísunar Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir aðferðir flugmanna „sorglegar“ Lögreglustjórinn: „Ekkert að sjá við fyrstu sýn“ ASÍ og BSRB andvíg innviðafélagi 25 punktar muni merja sigurinn á morgun Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi