Aðeins tvennt er á dagskrá þingfundar í dag, þess fyrsta sem haldinn er eftir tveggja vikna fundahlé vegna sveitarstjórnarkosninga. Fyrst er óundirbúinn fyrirspurnatími. Stóra málið er þó seinni umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður. Fyrri umræðan fór fram á þremur dögum í mars og stóð yfir í um 22 klukkustundir. Meirihluti utanríkismálanefndar lagði til að spurningunni yrði breytt . Minnihlutinn mótmælti því að málið væri tekið út úr nefnd og sent til umræðu í þingsal. Þingfundur hefst klukkan þrjú. Alþingi kemur saman eftir tveggja vikna fundahlé.RÚV / Ragnar Visage