Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.5.2026 | 9:21 „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar Vilhjálmur minnir á að hreinar vaxtatekjur viðskiptabankanna þriggja voru tæpir 170 milljarðar og hagnaður fjármálakerfisins í kringum 100 milljarða króna. Samsett mynd Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna 25 punktar muni merja sigurinn á morgun Var skárri en ekkert fyrir neytendur Spá 4,9% verðbólgu í maí » Fleiri tengdar fréttir Hvernig á að vera hægt að ná niður verðbólguvæntingum þegar helstu greiningaraðilar fjármálakerfisins spá stýrivaxtahækkunum nánast í hvert einasta skipti sem stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans liggur fyrir? Getur verið að fjármálakerfið í heild sinni tali verðbólguvæntingar hér upp úr öllu valdi? Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands og formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir þetta í samtali við mbl.is um ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Frétt af mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Neytendur bera fjármagnskostnað fyrirtækja „Það er aldrei hægt að gleðjast yfir því að álögur á fólk og fyrirtæki séu að aukast,“ segir Vilhjálmur. Hann telji það ekki vænlegt til árangurs sé markmiðið að ná niður verðbólgu í landinu vegna þess að aukinn fjármagnskostnaður fyrirtækja fari eðli málsins samkvæmt að hluta til aftur út í verðlag og þjónustu. Gríðarlegur fjármagnskostnaður fyrirtækja sé nokkuð sem honum þyki vanta meiri umræðu um vegna þess að á endanum séu það neytendur sem þurfa að standa undir þeim kostnaði. „Því að það hljóta að gilda sömu lögmál varðandi mikinn fjármagnskostnað eins og rök þessara sömu aðila fyrir því að launahækkanir hafi áhrif á verðlag og þjónustu.“ Verðbólga og stýrivextir á svipuðum stað frá aldamótum Enn fremur segir hann stóran hluta vandamálsins vera svokallaðar verðbólguvæntingar, sem séu meginástæðan fyrir því að verðbólga fari ekki niður. „Þá verða menn náttúrulega bara að skoða þetta í sögulegu samhengi. Frá aldamótum er meðaltalsverðbólga á Íslandi búin að vera í 5%, stýrivextir 7% og þetta er svona eiginlega á svipuðum stað og við erum í dag,“ segir hann og heldur áfram: „En helstu greiningaraðilar fjármálakerfisins, svokallaðar klappstýrur stýrivaxta ef þannig má að orði komast, gera ekki annað en að spá stýrivaxtahækkunum nánast í hvert einasta skipti sem stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans liggur fyrir. Hvernig í himninum á að vera hægt að ná niður verðbólguvæntingum þegar helstu greiningaraðilar fjármálakerfisins tala með þessum hætti? Ég bara spyr: Getur verið að fjármálakerfið í heild sinni tali verðbólguvæntingar hér upp úr öllu valdi?“ Frétt af mbl.is Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ Hreinar vaxtatekjur upp á 167 milljarða Þá minnir Vilhjálmur á að sömu aðilar og spá stýrivaxtahækkunum daginn út og daginn inn hafi skilað hreinum vaxtatekjum upp á 167 milljarða á síðasta ári. Hreinar vaxtatekjur viðskiptabankanna þriggja voru tæpir 170 milljarðar og hagnaður fjármálakerfisins í kringum 100 milljarða króna. „Það er sorg að vita að við búum í dásamlegu landi með öll þessi auðæfi sem við eigum, en einhverra hluta vegna náum við ekki að koma þessum tveimur þáttum sem skipta mjög miklu máli í lag. Það er annars vegar verðbólga og hins vegar vextir. Ef okkur myndi bera gæfa til þess að geta gert þetta eins og þau lönd sem við erum að bera okkur saman við, þá værum við ekki besta land í heimi heldur lang, langbesta land í heimi.“ Frétt af mbl.is 25 punktar muni merja sigurinn á morgun Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna 25 punktar muni merja sigurinn á morgun Var skárri en ekkert fyrir neytendur Spá 4,9% verðbólgu í maí » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar Á förum úr Garðabænum Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna Saga Sig og Villi naglbítur eiga von á barni Lokuðu flugvellinum í Litáen Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Útgangan oddvita til sóma Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Öryggistilfinning bæjarbúa undir Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Andlát: Elín R. Líndal „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Vara við svikapóstum í nafni Skattsins Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Öryggistilfinning bæjarbúa undir Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Nýjast á mbl.is » „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar Á förum úr Garðabænum Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna Saga Sig og Villi naglbítur eiga von á barni Lokuðu flugvellinum í Litáen Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ 25 punktar muni merja sigurinn á morgun „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Andlát: Elín R. Líndal „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Vara við svikapóstum í nafni Skattsins Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Öryggistilfinning bæjarbúa undir Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Andlát: Árni Tómas Ragnarsson

Share this article