Innlent | Morgunblaðið | 20.5.2026 | 11:55 Við viljum finna skjól og öryggi Utanríkisráðherra segir dagsetningu kosninga í sumar byggða á hagsmunum Íslands í ólgusjó. mbl.is/Eggert Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB 49% Norðmanna andvígir inngöngu í ESB Vinnubrögðin vanvirðing við skyldu nefndarinnar Fella niður fund þótt 300 síður ESB-gagna séu óræddar Leggja til ítarleg samningsmarkmið og breytta spurningu Mótmæla hastarlegri afgreiðslu á ESB-tillögu » Fleiri tengdar fréttir Utanríkismálanefnd hefur afgreitt þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB, sem nú gengur til 2. umræðu. Morgunblaðið ræddi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra eftir ríkisstjórnarfund í gær og spurði fyrst hvort meirihlutaálit nefndarinnar gæfi ráðherra lausari tauminn en raunin var 2010. „Mér finnst það nú frekar skýrt um auðlindirnar, sjávarútveg, orku og landbúnað, þetta helsta sem við þurfum að gæta. Og alveg ljóst að framkvæmdastjórnin hefur gefið ákveðið fyrirheit um það sé eitthvað hægt að semja og við eigum náttúrulega að nýta það tækifæri. En ég vil sérstaklega draga fram að núna eru Evrópumálin að fara í gegnum þingið, öfugt við það sem gerðist þegar aðildarviðræður voru stöðvaðar. Ég er búin að fara tvisvar fyrir utanríkismálanefnd á opinn fund og forsætisráðherra í fyrsta sinn á opinn fund nefndarinnar, þannig að það er verið að vinna þetta eins gegnsætt og hægt er.“ 29. ágúst Nú er nokkuð liðið af maí og nokkur tímapressa á málinu, en af hverju þessi ógnaráhersla á 29. ágúst? „Við mátum það einfaldlega í ljósi hagsmuna Íslands. Upphaflega var miðað við vor eða haust 2027, en við teljum okkur vera í sterkri stöðu í ljósi þróunar heimsmála og eins að við þurfum að tryggja efnahagslegt öryggi okkar, þegar búið er að vopnvæða bæði viðskipti og tolla. Við viljum finna skjól gagnvart því og einnig tryggja öryggi okkar. Það er bara ágætt að við fáum að greiða atkvæði um samning, eins og Norðmenn hafa gert tvisvar. Það kemur ekki á óvart að stjórnarandstaðan sé með alls konar tafaleiki, ég hef líka verið í stjórnarandstöðu og þekki það allt. Þegar málið var rætt á þingi 2009 – og þá var verið að tala um beina aðildarumsókn, við erum að fara mildari leið – tók sú umræða aðeins fjóra daga í þinginu. Núna fær þingið nægan tíma til þess að ræða þetta vel, enda höfum við rætt þetta alveg frá því að ríkisstjórnin tók til starfa og enginn verið duglegri en stjórnarandstaðan að ræða Evrópumál. Ég virði stjórnarandstöðuna, hún á að veita aðhald. En það væri gaman ef aðhaldið væri einhvern tíma málefnalegt.“ Úlfurinn og ESB Er það allt ómálefnalegt? „Mér finnst rosalega mikið verið að kalla úlfur, úlfur út um allar koppagrundir. Í staðinn fyrir að við ræðum nákvæmlega um hvað þetta snýst og þetta snýst um það að halda áfram, klára samning, verja íslenska hagsmuni, tala fyrir þeim, setja fram ýtrustu kröfur þar sem við komum okkur saman um og þetta nefndarálit er bara ljómandi tæki í það. Ef við segjum já köllum við síðan okkar besta fólk í samninganefndina, vöndum til verka með nánu samráði við hagsmunaaðila. Þetta kunnum við Íslendingar, að þegar er mikið undir og við sjáum að það er hægt að ná ýmsu fram, þá erum við sameinuð um að vilja Íslandi allt.“ Ráðherra, lexían í sögunni er sú að það kemur alltaf úlfur. „Jú, en öll stóru skrefin okkar í alþjóðamálum hafa orðið til þess að úlfurinn hefur farið til annarra landa, ekki til okkar. Hvort sem það er NATO, EFTA, EES-samningurinn, öll þessi skref hafa verið farsæl fyrir íslenska þjóð. Þannig að ég treysti þjóðinni bara og vona að þjóðin segi já. Ég vona að þjóðin verði ekki hrædd, út frá röngum upplýsingum til þess að segja nei, eins og t.d. gerðist í Brexit. Og sagan á tíu árum sýnir að hagvöxtur jókst ekki eins og lofað var, stjórn á landamærunum batnaði ekki heldur og svo framvegis.“ Á þetta ekki allt við hinum megin Ermarsundsins líka? „Nei, nei, það fer bara… eða sko, það dásamlega við Evrópusambandið er að þótt það sé ríkjasambandi, þá eru þetta líka mismunandi þjóðir og það kann að vera hagvöxtur á einum stað meðan hann er minni á öðrum stað. Og það er sammerkt öllum sem hafa farið í Evrópusambandið að hagvöxtur og framleiðni hefur aukist, Pólland og aðrar Austur-Evrópuþjóðir eru gott dæmi um það…“ Hættu nú alveg, þau ríki voru að losna undan oki kommúnismans… „Já, já, en það er samt ekki sjálfgefið. Er allt fullkomið í ESB? Nei, það dettur mér ekki í hug að segja. En þarna er styrkurinn núna þegar heimurinn er að skiptast í valdsvæði margra stórvelda. Þá er mikilvægt að við séum með ríkjasamband, sem þorir að tala lýðræði, frelsi og mannréttindum, en einnig eðlilegri samkeppnisvernd og fjölbreytni í atvinnulífi, sem passar upp á það að hinir stóru geti ekki bara gleypt hina litlu. Eins og við Íslendingar kynntumst þegar við fórum í EES á sínum tíma. Við gátum alltaf sett okkur sjálf neytendaverndarlög eða almennileg samkeppnislög, en við gerðum það ekki fyrr en við fórum inn í EES. Reyndar þurfum við að ýta enn frekar undir og átta okkur á sérstöðunni hérna heima og einfalda regluverkið, fara yfir alla bannsetta gullhúðunina og efla atvinnulífið. Það er það sem ríkisstjórnin er að gera. Þegar við höfum aðildarsamninginn sjáum við hvað það þýðir fyrir landsbyggðina, fyrir atvinnulífið og fyrir heimilin í landinu. Ég er bjartsýn á að við náum samstöðu um að fara með okkar ýtrustu kröfur og ná góðum samningi. Ég er bara sannfærð um það og ég mun óhikað leita til þeirra sem ég tel best til þess fallna. Fyrir Ísland.“ Þýðing þjóðaratkvæðagreiðslu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði á kosninganótt að kosningin í sumar myndi snúast um Evrópusambandsaðild, ekki aðeins viðræður. Að þeir sem segðu nei væru að hafna aðild. Ert þú sama sinnis? „Já, ég margítreka það og ég sakna þess að heyra það ekki frá vinum mínum í stjórnarandstöðunni, að segja að þeir muni ekki virða niðurstöðuna. Og bara þessi tónn sem kom frá formanni Heimssýnar finnst mér mjög varhugaverður, að boða ofbeldi ef niðurstaðan verður já. Ég vil ekki að við förum þangað. Það má ekki, þú veist, ég bara sé það að ef það verður nei, þá bara vinnum við með það og höldum áfram.“ En þurfið þið ekki líka að vera skýrari með það hvað nei þýðir? „Nei, það þýðir að við förum og þá verður þessu lagt.“ Lagt, sett á ís eða formlega slitið fyrir fullt og allt? „Nei frá þjóðinni þýðir að við erum ekki að fara í þetta. Við erum ekki að fara af stað í viðræður aftur. Og þá verður það bara annarrar ríkisstjórnar að ákveða það.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB 49% Norðmanna andvígir inngöngu í ESB Vinnubrögðin vanvirðing við skyldu nefndarinnar Fella niður fund þótt 300 síður ESB-gagna séu óræddar Leggja til ítarleg samningsmarkmið og breytta spurningu Mótmæla hastarlegri afgreiðslu á ESB-tillögu » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hefja formlegar viðræður Við viljum finna skjól og öryggi Leikmenn fögnuðu fram á morgun Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Erfitt að sjá ljósið í myrkrinu“ 25 punktar muni merja sigurinn á morgun Við viljum finna skjól og öryggi „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Andlát: Elín R. Líndal Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Hildur ræðir við aðra oddvita í dag „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar Vara við svikapóstum í nafni Skattsins Öryggistilfinning bæjarbúa undir Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Blóðugur reikningur á Tenerife Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Nýjast á mbl.is » Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hefja formlegar viðræður Við viljum finna skjól og öryggi Leikmenn fögnuðu fram á morgun Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Útbreiðslan hófst fyrir nokkrum mánuðum „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ 25 punktar muni merja sigurinn á morgun Öryggistilfinning bæjarbúa undir Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Andlát: Elín R. Líndal Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum „Ég og