Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hefja þríhliða samtal um verðbólguna

Read Full Article →

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA hafa ákveðið að hefja þríhliða samtal ríkisins, ASÍ og SA með það að markmiði að forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði haldi haustið 2026. Skipaður hefur verið stýrihópur með fulltrúum forsætisráðuneytisins, fjármálaráðuneytisins, ASÍ og SA og þrír undirhópar. BSRB, BHM, KÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga eiga fulltrúa í tveimur hópanna. Vinna hópanna er að hefjast og mun ljúka í byrjun september. Sjá einnig Hækka stýrivexti upp í 7,75% „Leitað verði leiða til að hemja verðbólgu og unnið að greiningum sem legið geta til grundvallar við frekara mat á stöðunni,“ segir í tilkynningu forsætis- og fjármálaráðuneytisins. Fyrsti undirhópurinn fær ‏að verkefni að vinna að greiningu á áhrifum vaxta, verðbólgu og verðtryggingar á mismunandi samfélagshópa, annar undirhópurinn vinnur að greiningu á valkostum til að draga úr sjálfvirkum verðlagsbreytingum og þriðji undirhópurinn vinnur að greiningu á leiðum til að styrkja launatölfræði. Einnig mun stýrihópurinn leita mats á áhrifum stríðsins við Persaflóa á verðlagsþróun hér á landi. Stýrihópurinn hefur yfirumsjón með vinnunni og staða greininga verður kynnt á fundum þjóðhagsráðs í júní og september.

Share this article