Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson ræddi opinskátt um sjálfsvígshugsanir og þunglyndi í dag. Vignir tjáði sig um málið á Instagram síðu sinni. Fyrir nokkrum árum var Vignir sjálfur í baráttu við sjálfsvígshugsanir. Hann veitti góð ráð í myndskeiðinu og sagði frá sögu sinni. „Hafið trú. Ekki gefast upp,“ sagði stórmeistarinn í skák. Vignir opnaði sig í kjölfarið á því að hafa skoðað Facebook-hópinn Börnin sem kerfið brást. „Þetta fór mikið fyrir hjartað mitt. Ég er maður sem reyndi að taka mitt eigið líf. Ég held að mér beri skylda með mína sögu að reyna að hjálpa. Ef ég get hjálpað einni manneskju þarna úti sem líður illa, sama á hvaða aldri, þá á ég að tala um þetta.“ Vignir talaði þannig í myndskeiðinu að hann talaði til fortíðar sjálfs síns og veitti sér ráð. Gaf góð ráð - heppinn að hafa skákina Vignir opnaði sig um þann tíma í lífi sínu þar sem hann var nærri því að taka sitt eigið líf. Stórmeistarinn talaði fyrir hreyfingu og að elta sína drauma. Þá talaði hann fyrir því að hugsa jákvætt til sjálfs síns og fara út fyrir þægindarammann. Myndskeiðið í heild sinni má sjá hér. „Ég var mjög heppinn að hafa skákina en það var tími á mínum unglingsárum þar sem ég ætlaði að hætta í skák. Það var ekki töff að vera í skák. Það var asnalegt. Ég var þessi feiti gæi með bauga sem tefldi og átti erfitt,“ sagði Vitnir sem sagði frá því hvernig hann elti skákdrauminn. „Hefði ég hlustað á fólk sem sagði við mig að ég yrði ekki stórmeistari svona hratt. Hefði ég hlustað á það þá væri ég ekki á staðnum sem ég er í dag. Þá veit ég ekki á hvaða stað ég væri í dag. Ég veit ekki hvort ég væri hérna. Ef þú hefur áhuga á einhverju eða elskar eitthvað. Box. Ballet. Breytir engu máli. Keyrðu á það. Ekki lifa í eftirsjá að hafa ekki keyrt á það.“ Hvert er hægt að leita? Ef þú eða einhver sem þú þekkir glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfskaðandi hegðun má alltaf hafa samband við Píeta-samtökin, pieta.is og í síma 552-2218. Þá er hjálparsími Rauða krossins opinn allan sólarhringinn í síma 1717 og netspjall á heimasíðunni 1717.is .