Heimildir fréttastofu herma að málefnasamningur um nýtt meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og L-listans verði kynntur á föstudaginn. Flokkarnir hófu viðræður strax á sunnudagsmorgun um samstarf og hefur verið góður gangur í viðræðunum. Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur Akureyrar og þar á eftir L-listinn. Framsóknarflokkurinn er fjórði stærsti flokkurinn en allir listarnir fengu tvo fulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum liðna helgi. Samfylkingin fékk einnig tvo fulltrúa kjörna en fengu ekki sæti við borðið í meirihlutaviðræðum. Miðflokkurinn starfaði í meirihluta með L-lista og Sjálfstæðisflokki á síðasta kjörtímabili en sökum þess að L-listinn tapaði einum fulltrúa í kosningunum féll sá meirihluti. Úrslit kosninganna á Akureyri Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nánari greiningu má finna á ruv.is/kosningar . &>"' Staða bæjarstjóra óljós Á Akureyri hefur bæjarstjóri verið ópólitískur og ráðinn frá því 2010 þegar að L-listinn fékk hreinan meirihluta í sveitarstjórnarkosningum. Ásthildur Sturludóttir hefur verið bæjarstjóri frá árinu 2018. Framboð hafa oftar en ekki verið mjög afdráttarlaus með skoðanir sínar um það fyrirkomulag og sammála um að það ríki sátt með ópólitískan bæjarstjóra. Í oddvitaumræðum RÚV fyrir kosningar voru svör oddvitana ekki eins afdráttarlaus og áður um málefni bæjarstjóra þegar þau voru innt eftir svörum hver ætti að vera bæjarstjóri: „L-listinn hefur yfirleitt haft þá stefnu að auglýsa eftir bæjarstjóra sem hefur gengið vel en ég hef líka sagt að ef við færum í meirihlutaviðræður þar sem væri skorað á mig myndi ég ekki skorast undan því,“ sagði Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-listans. „Mér finnst líklegt að við myndum vilja auglýsa og svo bara velja einhverja manneskju sem er til í að fara í þá breytingar sem við myndum vilja fara í,“ sagði Sunna Hlín Jóhannesdóttir, oddviti Framsóknarflokksins „Þetta veltur bara á niðurstöðu kosninga og hvernig meirihlutaviðræður þróast eftir að við vitum hvað kemur upp úr kössunum“, sagði Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins. Hvernig verða helstu stólar mannaðir? Samkomulag um meirihlutasamstarf í sveitarstjórnum snúast að miklu leyti um tvo hluti: Málefnin sem á að vinna að á kjörtímabilinu og hvernig verður skipað í nefndir og ráð á vegum sveitarfélagsins, meðal annars hver er bæjarstjóri eða formaður bæjarráðs. Undanfarið kjörtímabil fór L-listinn með embætti forseta bæjarstjórnar á meðan Sjálfstæðisflokkurinn fór með embætti formanns bæjarráðs. Miðflokkurinn sinnti formennsku í stjórn Norðurorku.