Innlent | mbl | 20.5.2026 | 14:35 Mjög lítil hætta á Íslandi vegna ebólufaraldurs Faraldurinn stafar af Bundibugyoveiru sem er tegund ebólaveiru sem greindist fyrst í faraldri í Bundibugyohéraði í Úganda árið 2007. AFP/Jospin Mwisha Setja bókamerki Í nýrri tilkynningu á vef Embættis landlæknis kemur fram að að svo stöddu er talið að líkur á Ebólu-smiti á Íslandi séu mjög litlar. Á sunnudaginn lýsti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO faraldrinum yfir sem bráðri ógn við lýðheilsu þjóða. Yfirlýsingin þýðir þó ekki að um heimsfaraldur sé að ræða og felur ekki í sér að mælt sé með víðtækum ferðatakmörkunum eða viðskiptahömlum. Faraldurinn stafar af Bundibugyoveiru, tegund ebólaveiru sem fyrst greindist í faraldri í Bundibugyohéraði í Úganda árið 2007. Síðasti faraldur af völdum Bundibugyoveiru á undan þessum var tilkynntur í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó árið 2012. Engin bóluefni eða lyf Ólíkt hinni algengari Zaire-ebólaveiru eru sem stendur engin bóluefni eða sértæk lyf til við sjúkdómi af völdum Bundibugyoveiru. ECDC metur líkur á smiti hjá einstaklingum frá ESB/EES sem búa í eða ferðast til Ituri-héraðs litlar. Fyrir fólk sem býr innan ESB/EES, þar á meðal á Íslandi, eru líkur á smiti metnar mjög litlar, vegna þess að líkur á innfluttu smiti og áframhaldandi smiti í Evrópu eru taldar mjög litlar. Ólíkt inflúensu og covid-19 Sjúkdómurinn dreifist ekki með sama hætti og inflúensa eða Covid-19. Smit verður við beina snertingu við blóð eða aðra líkamsvessa frá einstaklingi sem er veikur af ebólu, frá látnum einstaklingi sem var smitaður eða frá smituðum dýrum. Einnig vegna neyslu á hráu og illa elduðu kjöti villtra dýra. Einstaklingar eru ekki taldir smitandi áður en þeir fá einkenni. Ráðleggingar til ferðamanna WHO mælir ekki með lokun landamæra, ferðabönnum eða viðskiptahömlum vegna þessa faraldurs, en ferðamönnum sem fara til áhættusvæðanna er ráðlagt að fylgja almennum varúðarráðstöfunum gegn ebólu. „Ferðamenn ættu að forðast snertingu við veika eða látna einstaklinga og almennt forðast snertingu við blóð og aðra líkamsvessa, forðast snertingu við villt dýr, þar á meðal leðurblökur, apa, antilópur og nagdýr, forðast hella og aðra staði þar sem leðurblökur kunna að vera, og hvorki meðhöndla, matreiða né neyta kjöts af villtum dýrum.“ Einkenni ebólusjúkdóms geta meðal annars verið hiti, slappleiki, höfuðverkur, vöðvaverkir, ógleði, uppköst, niðurgangur, kviðverkir eða óútskýrðar blæðingar, þar með talið útbrot. Þar sem malaría og aðrar sýkingar eru einnig algengar orsakir hita eftir ferðalög til Mið-Afríku er mikilvægt að leita mats læknis, jafnvel þótt ekki sé vitað um útsetningu fyrir ebólu. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » 60% slökkviliða landsins uppfylla ekki kröfur Efna til þríhliða samtals Íslenskættaði Daninn hættir 44 ára Drangey ferjar bryggju út í Drangey Mjög lítil hætta á Íslandi vegna ebólufaraldurs Umræðan Fræðsla umfram frasa Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 60% slökkviliða landsins uppfylla ekki kröfur Fyrirtæki verði að láta af óþörfum verðhækkunum Hægt landris og lítil skjálftavirkni Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Blóðugur reikningur á Tenerife Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Nýjast á mbl.is » 60% slökkviliða landsins uppfylla ekki kröfur Efna til þríhliða samtals Íslenskættaði Daninn hættir 44 ára Drangey ferjar bryggju út í Drangey Mjög lítil hætta á Íslandi vegna ebólufaraldurs Umræðan Fræðsla umfram frasa Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýr meirihluti á Akureyri „Klappstýrur stýrivaxta“ tali upp verðbólguvæntingar „Erfitt að sjá ljósið í myrkrinu“ 60% slökkviliða landsins uppfylla ekki kröfur Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Blóðugur reikningur á Tenerife Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar