Innlent | mbl | 20.5.2026 | 15:34 Hildur: Gagnlegt samtal Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Nýr meirihluti á Akureyri Meirihlutaviðræður ganga vel á Akranesi Sjálfstæðisflokkurinn í viðræðum til vinstri Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hefja formlegar viðræður Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað » Fleiri tengdar fréttir Ekki var um eiginlegar meirihlutaviðræður að ræða þegar oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar, Viðreisnar og Miðflokks hittust á fundi í hádeginu. Aðeins var um óformlegan hádegisverð að ræða, að sögn Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, en fundurinn stóð í um tvo tíma. „Mér fannst eðlilegt að gera til þess tilraun að setja þetta fólk saman í herbergi og eiga samtal um framtíð borgarinnar og brýnustu verkefnin. Mér fannst það gagnlegt. Svo þarf ég bara að vinna úr því í framhaldinu,“ segir Hildur eftir fundinn, en vel fór á með oddvitunum og hláturinn heyrðist fram á gang. Málefnin rædd „Við ræddum málefnin. Tilgangur þessa fundar var auðvitað að setja við eitt borð, þessi borgaralegu öfl í Reykjavík. Þessa flokka sem ég lýsti því yfir fyrir kosningar að ég sæi fyrir mér samstarf við. Þannig að við vorum að ræða sameiginlega fleti sem eru fjölmargir, nánast allir, og fara auðvitað yfir líka þar sem kannski birtist fólki sem núningsfletir í kosningum, hvort möguleiki væri að slétta úr krumpunum.“ Bendir hún á að allir þessir flokkar hafi í kosningabaráttunni talað fyrir stjórnkerfisbreytingum og niðurskurði, aukinni skilvirkni og að betur væri farið almannafé. Það hafi hins vegar birst kjósendum með skýrum hætti að ólíkar áherslur væru í samgöngumálum. Bæði Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur hafa talað fyrir endurskoðun samgöngusáttmálans og borgarlínu en bæði Viðreisn og Framsókn hafa stutt við sáttmálann og borgarlínu óbreyttri mynd. Hildur telur þó vel hægt að ræða það mál frekar. Mikilvægt að stöðugur meirihluti verði við völd Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, hefur lýst því yfir að Viðreisn muni ekki taka þátt í meirihlutasamstarfi með Miðflokknum. Það er því ljóst að þessir fjórir flokkar munu ekki allir mynda nýjan meirihluta. Stendur Hildur því frammi fyrir því að velja annað hvort meirihlutasamstarf með Miðflokki eða Framsókn og Viðreisn. Að Framsókn komi inn í meirihluta með Sjálfstæðisflokki og Miðflokki er líka annar valkostur. Spurð hvort það flæki málin eða auðveldi að Sjálfstæðismenn séu á lista Miðflokksins, sem hafi jafnvel ekki vandað henni kveðjurnar, segir Hildur þurfa að ræða það, en það skipti miklu máli að á næsta kjörtímabili verði við stjórn borgarinnar stöðugur meirihluti. „Ég held að borgarbúar kalli ekki eftir þeim óstöðugleika sem við höfum búið við núna síðasta kjörtímabil, þar sem hafa verið tíð borgarstjóraskipti og annað slíkt. Þannig að það þarf auðvitað að vera vissa fyrir því að menn hlaupist ekki auðveldlega undan merkjum. Allra síst ef að um er að ræða eins manns meirihluta,“ segir Hildur. Nú hyggst hún leggjast yfir það sem rætt var á fundinum og í framhaldinu taka ákvörðun um næstu skref. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Nýr meirihluti á Akureyri Meirihlutaviðræður ganga vel á Akranesi Sjálfstæðisflokkurinn í viðræðum til vinstri Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hefja formlegar viðræður Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stuðningsmenn Arsenal trylltust af fögnuði Hildur: Gagnlegt samtal Breytingar á íslenska landsliðshópnum Fær 10 milljónir í bætur Fannst í Danmörku, Svíþjóð og Noregi Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gætu ekki setið á sér í haust ef verðbólga eykst Nýr meirihluti á Akureyri Veik staða slökkviliða á Íslandi Hægt landris og lítil skjálftavirkni Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Nýjast á mbl.is » Stuðningsmenn Arsenal trylltust af fögnuði Hildur: Gagnlegt samtal Breytingar á íslenska landsliðshópnum Fær 10 milljónir í bætur Fannst í Danmörku, Svíþjóð og Noregi Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýr meirihluti á Akureyri Fá 470 milljarða í júní Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Útbreiðslan hófst fyrir nokkrum mánuðum Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar „Ég og Orri höfum starfað mjög vel saman“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar „Háir vextir í svona langan tíma hafa áhrif“ Hildur ræðir við aðra oddvita í dag Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar