Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ásthildur að hætta sem bæjarstjóri Akureyrar

Read Full Article →

Ásthildur Sturludóttir hefur tilkynnt um að hún muni láta af störfum sem bæjarstjóri Akureyrarbæjar eftir átta ára bæjarstjóratíð. Ásthildur var ráðin bæjarstjóri af L-lista, Framsóknarflokki og Samfylkingu sumarið 2018. Hún segir að það hafi komið mörgum á óvart að „innmúraður Sjálfstæðismaður“ væri ráðinn til starfans. „Við áttum hins vegar óaðfinnanlegt samstarf og komum fjölmörgu í verk á krefjandi tímum,“ skrifar hún í færslu á Facebook. Eftir kosningarnar 2022 hafi svo verið myndaður meirihluti Sjálfstæðismanna, L-lista og Miðflokks þar sem henni var áfram treyst fyrir bæjarstjórastólnum. „Samstarf mitt við meirihlutann hefur verið framúrskarandi gott og við höfum náð miklum árangri í uppbyggingu bæjarins og margt er enn á döfinni,“ segir Ásthildur. „Ég er stolt af verkum mínum í því krefjandi umhverfi sem rekstur sveitarfélaga ávallt er. Það er mikið ábyrgðarhlutverk og krefjandi að stýra fyrirtæki sem hefur á að skipa tæplega 2.000 starfsmönnum og veltir rúmum 40 milljörðum árlega.“ Í dag var greint frá því að Sjálfstæðisflokkur, L-listinn og Framsókn hafa náð saman um nýtt meirihlutasamstarf á Akureyri.

Share this article