Innlent | mbl | 20.5.2026 | 20:46 Krefst rannsóknar á Suðurnesjamálinu Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson segir lögreglu hafa látið vitni eyða eina hlutlæga sönnunargagni málsins og til þess hafi hún ekki haft neinar valdheimildir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Umbjóðandi minn var fluttur með sjúkraflugi til Noregs í gær og er búinn að vera í aðgerð þar í allan dag,“ segir Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður í samtali við mbl.is en hann fer með umboð foreldra manns sem kviknaði í með alvarlegum afleiðingum við afskipti lögreglunnar á Suðurnesjum í gamla kirkjugarðinum í Reykjanesbæ á mánudagsmorgun. Vilhjálmur segir manninn með annarrar og þriðju gráðu bruna á um helmingi líkamans og ástand hans sé grafalvarlegt. Í frétt mbl.is á mánudaginn kom fram, samkvæmt lögreglunni á Suðurnesjum, að maðurinn hefði hellt bensíni yfir sig og hótað að kveikja í sér – hafði lögreglu þá borist tilkynning um mann í ójafnvægi upp úr klukkan níu og voru lögreglumenn sendir á vettvang. Frétt af mbl.is Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Kvaðst lögregla hafa beitt rafstuðbyssu í því skyni að yfirbuga manninn en það virtist ekki hafa borið tilætlaðan árangur og hefði hann náð að bera eld að sjálfum sér með kveikjara sem hann hafði meðferðis. Þetta segir lögmaðurinn rangt, rafstuðbyssa lögreglu hafi kveikt í eldfimum vökvanum í klæðum mannsins og á líkama hans og lögregla eytt eina haldbæra sönnunargagninu sem til staðar var. Engar valdheimildir til að takmarka tjáningarfrelsi „Lögreglu tókst nú að koma hlutunum þannig fyrir að hún lét eyða eina hlutlæga sönnunargagninu sem lá fyrir í málinu, upptöku á síma vitnis sem var á vettvangi. Sú aðgerð lögreglu var kolólögleg per se [í sjálfu sér], lögregla hefur engar valdheimildir til að takmarka tjáningarfrelsi og láta eyða myndskeiðum sem fólk tekur upp einhvers staðar í almenningi,“ segir Vilhjálmur. Að auki eigi lögreglu að vera það ljóst að hlutverk hennar sé að afla sönnunargagna í stað þess að eyða þeim. Frétt af mbl.is Myndefni eytt til að gæta hagsmuna mannsins „Það er ekki traustvekjandi að þeir hafi fyrirskipað þessu vitni sem tók þetta upp að eyða myndskeiðinu. Það elur á tortryggni um hvað raunverulega átti sér stað og gerðist þarna. Það er algjörlega óumdeilt að þeir skutu úr rafbyssum á umbjóðanda minn. Jafnvel ungabörnum á að vera það ljóst að ef maður er löðrandi í eldfimum efnum og skotið er á hann úr rafbyssu breytist hann í eldbolta,“ segir Vilhjálmur af málsástæðum sín megin í málinu. Eftir því sem honum skiljist, eftir að hafa rætt við viðkomandi vitni á vettvangi og foreldra mannsins sem brenndist, hafi beiting rafstuðbyssu verið fullkomlega ástæðulaus. Krefst rannsóknar héraðssaksóknara „Þarna voru margir lögreglumenn á vettvangi og engin ógn stóð af umbjóðanda mínum. Hafi hann, eins og liggur fyrir í málinu, verið búinn að setja þennan eldfima vökva á sig er hlutverk lögreglu á vettvangi frekar að koma í veg fyrir að kvikni í honum en að kveikja í honum,“ heldur lögmaðurinn áfram. Frétt af mbl.is Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hann telur ljóst að lögregla hafi gerst sek um lögbrot, nú eigi eftir að koma í ljós hve alvarlegt það brot hafi verið. „Ég sendi héraðssaksóknara erindi í gær og gerði kröfu um að rannsókn yrði hafin á málinu, meðal annars á því hvort um brot á 23. kafla almennra hegningarlaga hafi verið að ræða, brot í opinberu starfi og eftir atvikum brot á lögreglulögum. Ég treysti héraðssaksóknara fyrir því að hefja þessa rannsókn og ég vakti athygli á því hvernig lögregla hefði gengið fram, hennar fyrsta verk hefði verið að láta eyða lykilsönnunargagni í málinu. Eigi ein lög að gilda um alla sé brýnt að grípa til rannsóknaraðgerða til að tryggja að sönnunargögn færu ekki forgörðum, meðal annars með því að leggja hald á upptökur úr búkmyndavélum og myndavélum í lögreglubifreiðum, ráðast þegar í stað í skýrslutökur og öflun annarra sönnunargagna,“ segir Vilhjálmur. Hann segir héraðssaksóknara hafa staðfest móttöku kröfunnar um rannsókn og að sannarlega sé hér fullt tilefni til miðað við fyrirliggjandi upplýsingar. „Það er ljóst að umbjóðandi minn getur ekki gætt hagsmuna sinna í þessu máli, honum hefur verið haldið sofandi síðan þetta átti sér stað, en foreldrar hans leituðu til mín og ég geri þessa kröfu í þeirra umboði,“ segir Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ný frjósemisvernd hjá Verði Aston Villa Evrópudeildarmeistari eftir öruggan sigur Þakkar Trump fyrir dýrmæta gjöf Krefst rannsóknar á Suðurnesjamálinu Meira en helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur: Gagnlegt samtal Lögreglan óskar eftir vitnum og upplýsingum Nýr meirihluti á Akureyri Veik staða slökkviliða á Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Fær 10 milljónir í bætur Klemmdist undir rútu Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Ný frjósemisvernd hjá Verði Aston Villa Evrópudeildarmeistari eftir öruggan sigur Þakkar Trump fyrir dýrmæta gjöf Krefst rannsóknar á Suðurnesjamálinu Meira en helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað Lögreglan óskar eftir vitnum og upplýsingum Fyrirtæki verði að láta af óþörfum verðhækkunum Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Fær 10 milljónir í bætur Klemmdist undir rútu Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?