Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Mjög margir hringdu í 112“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.5.2026 | 21:41 „Mjög margir hringdu í 112“ Guðný Ingimarsdóttir lá og hvíldist í sófa sínum í Skælskør rúma hundrað kílómetra suðvestur af Kaupmannahöfn, þegar 3,9 stiga jarðskjálfti með upptök undir hafsbotni Køge-flóa reið yfir síðdegis í dag og áttaði hún sig ekki á að um jarðskjálfta væri að ræða fyrr en hún fór inn í Facebook-hóp Íslendinga í Danmörku, taldi helst að stór vörubifreið hefði ekið hjá húsinu. Ljósmynd/Aðsend Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Ég lá bara í sófanum og var að hvíla mig og mér fannst þetta mjög skrýtið, maður hefur nú ekki heyrt um marga jarðskjálfta hérna í Danmörku,“ segir Guðný Ingimarsdóttir í Skælskør, rúma hundrað kílómetra suðvestur af Kaupmannahöfn, sem fann glöggt fyrir 3,9 stiga jarðskjálfta, þeim sterkasta í Danmörku í fjórtán ár, með upptök sín í Køge-flóa við norðurmynni Eyrarsunds upp úr klukkan 16 í dag að dönskum tíma. Gengur flóinn inn í Sjáland austanvert, sunnan dönsku höfuðborgarinnar, og liggur eyjan Amager í Suður-Kaupmannahöfn á mörkum hans og Eyrarsunds. Frétt af mbl.is Stór jarðskjálfti fannst í Kaupmannahöfn Þar sem Guðný lá í makindum í sófanum fannst henni í fyrstu sem stór vöruflutningabifreið hefði ekið hjá húsinu en áttaði sig þegar hún opnaði samfélagsmiðilinn Facebook. Áttaði sig á staðreyndum málsins „Þegar ég fór inn í hóp Íslendinga í Danmörku á Facebook var fólk þar að spyrja hvert annað hvort það hefði fundið skjálftann. Þá fór ég að átta mig á að þetta hefði verið jarðskjálfti. Ég bý í Skælskør sem er alveg klukkutíma og korter frá Kaupmannahöfn,“ segir Guðný. Aðspurð segir hún enga innanstokksmuni hafa hreyfst úr stað í einnar hæðar húsi hennar og tekur enn fremur fram að maður hennar, sem stóð uppréttur á heimili þeirra þegar skjálftinn reið yfir, hafi ekki tekið eftir neinu. Frétt af mbl.is Sá mann baða út öllum öngum „Mjög margir hringdu í 112 og það var einkum fólk hér á Sjálandi, virðist vera, sem fann fyrir þessu. Ein íslensk hérna á sama stað og ég skrifaði líka í Facebook-hópnum og sagðist hafa fundið vel fyrir þessu,“ segir Guðný Ingimarsdóttir í Skælskør, ein fjölmargra Íslendinga sem fundu fyrir sjaldgæfum jarðskjálfta í Danmörku í dag en þess má geta að um var að ræða sterkasta skjálfta sem mælst hefur í Danmörku síðan árið 2012 þegar 4,3 stiga jarðskjálfti varð þar með upptök undir hafsbotni Kattegat, sundsins milli Jótlands og vesturstrandar Svíþjóðar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ferðamönnum fækkar í Japan Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og gæslunni Haukar á toppnum með fullt hús stiga „Mjög margir hringdu í 112“ Útskrifaðist úr skóla 68 ára Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nauðsynlegt að samræma störf slökkviliða Hildur: Gagnlegt samtal Nýr meirihluti á Akureyri Við viljum finna skjól og öryggi Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Ferðamönnum fækkar í Japan Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og gæslunni Haukar á toppnum með fullt hús stiga „Mjög margir hringdu í 112“ Útskrifaðist úr skóla 68 ára Umræðan Fræðsla umfram frasa En hvað það var skrítið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Útbreiðslan hófst fyrir nokkrum mánuðum Sjálfstæðisflokkur og Framsókn hefja formlegar viðræður Veik staða slökkviliða á Íslandi Fyrirtæki verði að láta af óþörfum verðhækkunum Mest lesið Í gær Í vikunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi Vill skoða borgarstjórn án meirihluta „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?

Share this article