Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 20.5.2026 | 23:20 Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast Karen Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans, kynnti nýjustu útgáfu Peningamála í dag. mbl.is/Hákon Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Ekki efnahagsstefna heldur fullkomin uppgjöf Hefur verulegar áhyggjur af vegferð Seðlabankans Gætu ekki setið á sér í haust ef verðbólga eykst Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Þjóðarsátt gegn þrálátri verðbólgu » Fleiri tengdar fréttir Líkur á því að forsendur kjarasamninga bresti eru 70% miðað við verðbólguspá Seðlabankans og hafa líkurnar tvöfaldast frá því í febrúarspá bankans. Þetta kemur fram í Peningamálum, riti Seðlabankans, þar sem ársfjórðungslega er gerð grein fyrir horfum í peningamálum. Forsenduákvæði kjarasamnings kveður á um að heimilt sé að segja þeim upp ef verðbólga í ágúst mælist yfir 4,7% en verðbólga er nú 5,2%. Frétt af mbl.is Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Samningar muni að mestu halda Mælist verðbólga yfir 4,7% í ágúst ber launa- og forsendunefndum að semja um viðbrögð en náist ekki sátt verður heimilt að segja samningunum upp. Seðlabankinn telur þó ekki að svigrúm sé til frekari launahækkanna. „Lítið svigrúm virðist hins vegar til staðar enda hefur launakostnaður þegar aukist verulega og langt umfram það sem til langs tíma samrýmist verðbólgumarkmiði Seðlabankans og umfram það sem þekkist í öðrum löndum enda er launakostnaður á Íslandi orðinn sá hæsti í Evrópu í evrum talið,“ segir í Peningamálum. Gerir Seðlabankinn ráð fyrir því að forsendurnar brestir en að leyst verði úr forsendubrestinum með samkomulagi sem verði í takt við verðbólgu umfram forsenduákvæðið. Að öðru leyti muni samningarnir halda. Frétt af mbl.is Gætu ekki setið á sér í haust ef verðbólga eykst Stjórnendur fyrirtækja svartsýnir Kemur fram í ritinu að samkvæmt nýlegri könnun Seðlabankans geri markaðsaðilar ráð fyrir því að verðbólga verði 3,9% eftir eitt ár, sem er 0,2 prósentustigum meira en gert var ráð fyrir í febrúar. Markaðsaðilar vænta þess aftur á móti að verðbólga verði 3,1% eftir tvö ár, sem er óbreytt milli kannana. Stjórnendur fyrirtækja eru aftur á móti svartsýnni þegar kemur að verðbólguhorfunum. Búast þeir við því að á næstu fimm árum verði verðbólga 4% en heimilin búast við því að verðbólgan verði 4,3%. Markaðsaðilar vænta þess að hún verði um 3%. Frétt af mbl.is Þjóðarsátt gegn þrálátri verðbólgu Verðbólgumarkmiði náð snemma árs 2028 Verðbólguhorfur hafa versnað í kjölfar þeirra átaka sem brutust út í Mið-Austurlöndum í lok febrúar. Samkvæmt grunnspá bankans mun tímabundin lækkun virðisaukaskatts hafa áhrif til lækkunar á verðbólgu til skamms tíma en áhrifin munu ganga til baka í september. Telur Seðlabankinn að á þriðja ársfjórðungi þessa árs muni verðbólga koma til með að verða 5,2%, sem er hið sama og hún er nú, en það er rúmu prósenti meira en gert var ráð fyrir í febrúar. Gerir Seðlabankinn ráð fyrir því að verðbólga minnki hægar en gert hefði verið ráð fyrir en að hún verði þó komin niður fyrir 4% um mitt næsta ár. Þá verði verðbólgumarkmiðinu loks náð snemma árs 2028. Tekur bankinn þó fram að líklegra sé að verðbólgan sé vanmetin á samningstímanum heldur en að hún sé ofmetin. Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Ekki efnahagsstefna heldur fullkomin uppgjöf Hefur verulegar áhyggjur af vegferð Seðlabankans Gætu ekki setið á sér í haust ef verðbólga eykst Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Þjóðarsátt gegn þrálátri verðbólgu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Endalok Pírata? Sigurður Már Jónsson Vélin eða velferðarkerfið Fleira áhugavert Útbreiðslan hófst fyrir nokkrum mánuðum Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast Hefur verulegar áhyggjur af vegferð Seðlabankans Lögreglan óskar eftir vitnum og upplýsingum Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Tveir lífeyrissjóðir sameinast Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Anna Hildur til Ísland Duty Free Jónína Guðný nýr forstöðumaður Segir seinustu hækkun hafa dugað vel til Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Efna til þríhliða samtals Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Advania og Keystrike í samstarf Arnaldur skipaður nýr formaður Þórir og Ómar til Vettvangs Careflux og Bara tala hljóta Gervigreindarverðlaun Íslands 2026 Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Var skárri en ekkert fyrir neytendur Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Daníel verður forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Tveir lífeyrissjóðir sameinast Var skárri en ekkert fyrir neytendur Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Pistlar » Sigurður Már Jónsson Endalok Pírata? Sigurður Már Jónsson Vélin eða velferðarkerfið Fleira áhugavert Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast Brýnt að nýjar sveitarstjórnir taki á málaflokknum Nauðsynlegt að samræma störf slökkviliða Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Tveir lífeyrissjóðir sameinast Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Anna Hildur til Ísland Duty Free Jónína Guðný nýr forstöðumaður Segir seinustu hækkun hafa dugað vel til Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Efna til þríhliða samtals Beint: Ásgeir fer yfir stöðuna Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Advania og Keystrike í samstarf Arnaldur skipaður nýr formaður Þórir og Ómar til Vettvangs Careflux og Bara tala hljóta Gervigreindarverðlaun Íslands 2026 Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Var skárri en ekkert fyrir neytendur Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Daníel verður forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Tveir lífeyrissjóðir sameinast Var skárri en ekkert fyrir neytendur Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti

Share this article