„Ísland er og verður sem fyrr mjög mikilvæg starfsstöð fyrir JBT Marel,“ segir Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marel, spurður um framtíð starfseminnar hér á landi. Þrátt fyrir að á tyllidögum tali margir fyrir aukinni erlendri fjárfestingu á Íslandi virðist ótti við að missa stórfyrirtæki úr landi innprentaður í huga marga landsmanna. „Nú starfa vel yfir 600 starfsmenn á starfsstöðinni á Íslandi, eða sem nemur um 5% af heildarstarfsmannafjölda félagsins. Það sem gerir starfsstöðina á Íslandi svo mikilvæga og um leið áhugaverða er sú verðmæta og breiða þekking sem starfsfólkið býr yfir. Við höfum lengi sérhæft okkur í þjónustu við íslenskan sjávarútveg og hefur það góða samstarf leitt af sér lausnir sem eru ekki aðeins seldar inn á heimamarkaðinn heldur einnig á markaði vítt og breitt um heiminn. Tenging starfsstöðvarinnar á Íslandi við alþjóðlegan sjávarútveg er því mjög sterk. Þá hafa einnig verið þróaðar lausnir á Íslandi sem notaðar eru við matvælaframleiðslu í kjúklingi, kjöti og fleiri mörkuðum úti um allan heim. Dæmi um slíkt er Sensor X-beinaleitarvélin, sem átti metár í sölum á liðnu ári. Að sama skapi erum við með mjög öfluga hugbúnaðarstarfsemi á Íslandi. Þetta er hugbúnaður sem er í stöðugri þróun og er nýttur til að stýra framleiðslulínum og tækjum hjá viðskiptavinum. Það eru því fjölbreyttir og mikilvægir og mismunandi þættir í starfseminni sem tengjast starfsstöðinni á Íslandi með beinum hætti. Því til viðbótar erum við með frábært og reynslumikið starfsfólk á Íslandi sem hefur vaxið og dafnað með félaginu og þekkir iðnaðinn og lykilmarkaði okkar út og inn.“ Áhyggjur sumra af því að starfsemin flytjist úr landi eru því að sögn Árna óþarfar. „Þegar horft er til fyrirtækja sem framleiða tæki, þróa hugbúnað og veita þjónustu til matvælaframleiðsluiðnaðar er markaðurinn ekkert sérstaklega stór. Þar af leiðandi er þekking starfsfólks einn allra mikilvægasti þátturinn í starfseminni. Í rúmlega fjóra áratugi hefur þessi þekking byggst upp innan raða Marel á Íslandi. Íslenski nýsköpunarkrafturinn og hugverkatengda þekkingin hefur verið hjartað í starfsemi Marel í gegnum tíðina og það stendur svo sannarlega til að halda ótrauð áfram á þeirri vegferð.“ Aðspurður segir Árni helstu breytinguna á starfseminni hér á Íslandi eftir samrunann felast í því að starfsstöðin á Íslandi sé ekki lengur höfuðstöðvar félagsins, en við sameiningu Marel og JBT færðust þær til Chicago. „Fyrir vikið færast sum störf, t.d. í fjármáladeild, nær forstjóra og fjármálastjóra sem eru með aðsetur í Chicago. Það hafa því einhverjir einstaklingar leitað á ný mið og þótt það sé erfitt að kveðja öflugt samstarfsfólk og vini erum við stolt af því að sjá fólk sem starfaði hjá Marel taka við stórum og fjölbreyttum stöðum í íslensku atvinnulífi. Sú þekking og reynsla sem þessi hópur býr yfir er afar verðmæt fyrir framgang og vöxt atvinnulífsins.“ Nánar er rætt við Árna í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér .