Innlent | Kosningar | mbl | 21.5.2026 | 11:45 Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokks, og Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði, en meirihlutasamstarf flokkanna virðist á enda runnið. Samsett mynd Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Kominn tími á breytingar hjá Finni „Ég ætla ekki að segja að þetta sé í höfn“ Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Mest líkindi með Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Berglind sögð næsti bæjarstjóri » Fleiri tengdar fréttir Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slitu óvænt meirihlutaviðræðum við Framsóknarflokkinn í morgun. Ástæðan er sögð vera trúnaðarbrestur, þar sem framsóknarmenn hafi handsalað samkomulag um meirihlutaviðræður í tvær áttir. Eftir því sem mbl.is kemst næst leitaði Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokks og bæjarstjóri, samhliða hófanna um meirihlutasamstarf við Samfylkingu og Viðreisn. Í formlegum meirihlutaviðræðum felst jafnan að flokkar eiga ekki í viðræðum við aðra flokka á meðan. Allir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sendu frá sér yfirlýsingu um viðræðuslitin og hvernig komið væri nú í morgun. Slíkar viðræður byggðust á heilindum, en án þeirra gætu meirihlutaviðræður ekki haldið áfram. Framsókn lék tveimur skjöldum Orri Björnsson, oddviti sjálfstæðismanna, staðfestir við mbl.is að meirihlutaviðræður hafi farið út um þúfur eftir að í ljós kom að Framsókn hefði leikið tveimur skjöldum. „Við komumst að því um miðjan dag í gær að Framsókn hefði verið í samtali við aðra flokka, sem var komið mjög langt. Við það varð ekki unað.“ Formlegar meirihlutaviðræður Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hófust í gær, en meirihluti flokkanna hélt í kosningunum á laugardag, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn missti einn fulltrúa og Framsóknarflokkurinn vann einn. Flokkarnir tveir hafa átt með sér meirihlutasamstarf undanfarin tvö kjörtímabil. Orri Björnsson oddviti sjálfstæðismanna segir ekki marga kosti eftir til meirihlutamyndunar í 11 manna bæjarstjórn. Morgunblaðið/Eggert Áfram þarf að mynda meirihluta Orri segir óljóst hvað við tekur, en eftir sem áður þurfi að mynda meirihluta. „Nú þarf að einhenda sér í að finna starfhæfan meirihluta í bænum, það er okkar skylda. En við getum ekki unnið áfram með Framsóknarflokknum þegar ekki ríkir trúnaður.“ Ertu farinn að hugleiða hvert þú horfir í því? „Nei, við erum ekki farin að hugsa það. En það eru ekki margir kostir fyrir okkur.“ „Við þurfum bara að sjá hvað dagurinn ber í skauti sér. Ég veit ekki hvernig þetta mun þróast, en tíminn líður og við þurfum að mynda meirihluta. Fyrsti bæjarstjórnarfundur er 3. júní og við þurfum að vera með meirihluta þá.“ Ertu vongóður um að þér auðnist að mynda meirihluta? „Við erum opin fyrir öllu og viljum axla þá ábyrgð sem bæjarbúar hafa falið okkur. En það liggur ekkert fyrir um hvaða leið við getum farið í því.“ Yfirlýsingin í heild Yfirlýsing sjálfstæðismanna fer hér á eftir: „Heilindi skipta mestu máli þegar kemur að samstarfi í stjórnmálum. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hafa ákveðið að slíta viðræðum við Framsóknarflokkinn um meirihlutasamstarf í bænum vegna alvarlegs trúnaðarbrests. Eftir að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn handsöluðu samkomulag um að eiga viðræður um áframhaldandi meirihlutasamstarf kom í ljós að Framsóknarflokkurinn hafði handsalað sambærilegt samkomulag við aðra flokka í bænum. Það er því ljóst að grundvöllur meirihlutasamstarfs flokkanna er því ekki lengur fyrir hendi. Það er ljóst að það verður flókið að mynda meirihluta í bænum við þær aðstæður sem upp eru komnar og mikilvægt fyrir bæjarfulltrúa í Hafnarfirði að vanda til verka. Sú ábyrgð hvílir á bæjarfulltrúum að mynda starfhæfan meirihluta í bænum þar sem meginmálefnin eru að tryggja traustan rekstur og áframhaldandi uppbyggingu í Hafnarfirði. Að Hafnarfjörður verði áfram í fremstu röð og besti bærinn til að búa í. Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki láta sitt eftir liggja í þessum efnum.“ Þessa yfirlýsingu undirrituðu bæjarfulltrúarnir Orri Björnsson, Kristín María Thoroddsen og Viktor Pétur Finnsson. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Kominn tími á breytingar hjá Finni „Ég ætla ekki að segja að þetta sé í höfn“ Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Mest líkindi með Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Berglind sögð næsti bæjarstjóri » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aðeins stuðningsmenn KR ósammála Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Ásta Laufey nýr skólameistari Borgarholtsskóla Úrskurði um vanhæfi snúið við Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Úrskurði um vanhæfi snúið við Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Skatturinn birtir álagningu í dag „Mjög margir hringdu í 112“ Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og Gæslunni Hvati til að draga úr framlagi sínu Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Segja Ísland aldrei hafa verið dýrara Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Enginn mætti frá ríkisstjórninni Nýjast á mbl.is » Aðeins stuðningsmenn KR ósammála Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Ásta Laufey nýr skólameistari Borgarholtsskóla Úrskurði um vanhæfi snúið við Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögreglan óskar eftir vitnum og upplýsingum Úrskurði um vanhæfi snúið við Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð „Ég ætla ekki að segja að þetta sé í höfn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Skatturinn birtir álagningu í dag „Mjög margir hringdu í 112“ Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og Gæslunni Hvati til að draga úr framlagi sínu Hafna kvörtunum vegna ÁTVR Segja Ísland aldrei hafa verið dýrara Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Enginn mætti frá ríkisstjórninni