Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrsti bæjarfulltrúinn á bæjarstjórastóli í 16 ár

Read Full Article →

Nýr meirihluti í bæjarstjórn Akureyrar var kynntur í hádeginu. Sjálfstæðisflokkurinn, L-listinn og Framsóknarflokkurinn starfa saman í bæjarstjórn á kjörtímabilinu. Hluti af samkomulaginu er að Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, verður bæjarstjóri; Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-lista, verður formaður bæjarráðs og Gunnar Már Gunnarsson, sem skipaði annað sæti á lista Framsóknar, verður forseti bæjarstjórnar. Berglind Ósk er fyrsti bæjarstjórinn á Akureyri í sextán ár sem er jafnframt bæjarfulltrúi. Síðustu tveir bæjarstjórar hafa báðir verið utanaðkomandi.

Share this article