Innlent | mbl | 21.5.2026 | 13:51 Svör um ESB-aðlögun „málum blandin“ Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur fengið svör frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. mbl.is/Karítas Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Vill að nefndin fjalli um löggjöfina gullhúðuðu Telja líkur á aðildarviðræðum fara dvínandi Sjávarútvegsyfirráðin færast til Brussel Taldi utanríkisráðherra veigra sér við fyrirspurn Svipuð samningsmarkmið og síðast » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Ekki efnahagsstefna heldur fullkomin uppgjöf Taldi utanríkisráðherra veigra sér við fyrirspurn Afhjúpa málverk af Unni Brá Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Sést ekki fyrir í ríkisútgjöldum » Fleiri tengdar fréttir Evrópusambandið Telja líkur á aðildarviðræðum fara dvínandi 49% Norðmanna andvígir inngöngu í ESB Fimm ESB-ríki gegn raforkuneti ESB ESB býður talíbönum til viðræðna Svíþjóð hættir við sæstreng vegna ESB » Fleiri tengdar fréttir Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir svar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir utanríkisráðherra við fyrirspurn hennar bera með sér að fullyrðingar ráðherra um að engin aðlögun eigi sér stað samhliða aðildarviðræðum séu málum blandnar. Ráðherrann segir í svari sínu að ef upp kæmu tilvik þar sem þörf væri talin á breytingum samhliða aðildarviðræðum yrði ekki ráðist í þær án samráðs við Alþingi, sem Hildur segir liggja í augum uppi enda væri annað andstætt stjórnarskrá. Frétt af mbl.is Krefur ráðherra svara um ESB-aðlögun Vildi svör um aðlögun Fyrirspurn Hildar var svo hljóðandi: Kemur til greina af hálfu ráðherra að leggja til aðlögun íslenskra laga og reglna að reglum Evrópusambandsins, umfram það sem leiðir beint af EES-samningnum, samhliða aðildarviðræðum við Evrópusambandið áður en aðildarsamningur er lagður í þjóðaratkvæðagreiðslu? Í svari Þorgerðar Katrínar er vísað í skýrslu utanríkisráðuneytisins Aðildarviðræður Íslands og ESB: Framvinda og staða, sem gefin var út í apríl 2013. Hún bendir á að þar komi fram að snemma í aðildarviðræðuferlinu á árunum 2009– 2013 hafi íslensk stjórnvöld og Evrópusambandið (ESB) náð saman um að Ísland myndi ekki ráðast í breytingar á stofnunum og þær lagabreytingar sem af aðild myndu leiða fyrr en fyrir lægi að Ísland yrði aðildarríki. „Það myndi í grundvallaratriðum liggja fyrir að afstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning. Breytingar sem af aðild leiddu ættu því ekki að eiga sér stað fyrr en íslenska þjóðin hefði tekið afstöðu til aðildarsamnings.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í ráðuneyti sínu. mbl.is/Ólafur Árdal Unnið út frá nálgun Jóhönnustjórnar Ráðherrann segir að verði aðildarviðræðum við ESB fram haldið, yrði unnið út frá sömu nálgun og í viðræðuferlinu á árunum 2009–2013, sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur leiddi. „Áhersla yrði lögð á að vinna undirbúning að þeim breytingum sem ráðast þyrfti í þannig að hægt yrði að hrinda þeim hratt í framkvæmd þegar lægi fyrir að Ísland yrði aðili að sambandinu. Ráðherrann útilokar þó ekki að aðlögun gæti átt sér stað á viðræðutímanum. „Ef upp kæmu tilvik þar sem þörf væri talin á breytingum samhliða aðildarviðræðum og það væri talið þjóna sjálfstæðum innlendum markmiðum, yrði ekki ráðist í þær án samráðs við Alþingi,“ segir í svari Þorgerðar Katrínar. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur leiddi ESB-viðræður á árunum 2009-2013. Hér situr hún við hlið Kristrúnar Frostadóttur en ríkisstjórn hennar ætlar að taka upp þráðinn þar sem Jóhönnustjórn hafði frá horfið. mbl.is/Kristinn Magnússon Svar ráðherrans er einfaldlega já Hildur Sverrisdóttir segir í samtali við mbl.is svar ráðherrans vera allrar athygli vert. „Ráðherrar hafa hingað til sagt að engin aðlögun muni eiga sér stað í viðræðunum sjálfum. Þegar ég fæ svo þetta formlega svar kemur í ljós að það er greinilega málum blandið,“ segir hún. Hún gefur lítið fyrir „meint“ samkomulag sem ráðherrann vísar til frá síðustu viðræðum um að engar breytingar eða aðlögun verði, enda hafi enginn séð þetta samkomulag og engar heimildir til fyrir því. „Í samkomulaginu segi þó jafnframt að aðlögun í viðræðunum verði ef þörf sé á henni. Ég verð að viðurkenna að það er ekki ýkja mikill burður í samkomulagi sem er um að eitthvað verði ekki nema það sé þörf á því. Varla hefði hvarflaði að nokkrum manni að einhverjum dytti í hug að aðlagast reglum sem ekki væri þörf á,“ segir hún. Frétt af mbl.is Engin gögn til um samning við ESB Spurningin hafi einfaldlega snúið að því hvort það kæmi til greina að aðlaga regluverkið að ESB í viðræðunum burtséð frá meintri þörf. „Svar ráðherra er því einfaldlega já“. Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eyþór Alþingi stimpilpúðastofnun ráðherrana Hvað varnagla ráðherrans um að engin aðlögun verði í nema í samráði við Alþingi segir Hildur: „Það segir sig auðvitað sjálft að lagabreytingar eru að sjálfsögðu ekki gerðar nema í samráði við Alþingi nema ríkisstjórnin ætli sér að brjóta stjórnarskrána. Og við vitum vel hvers konar stimpilpúðastofnun fyrir ráðherrana Alþingi er orðin og því á kristaltæru að allt það sem ráðherra telur þörf á að aðlaga á meðan á viðræðunum stendur verður breytt möglunarlaust af meirihluta þingsins og því heldur tilgangslaus varnagli það.“ Fyrir vikið segir hún skýrt að ríkisstjórnin gefi sér svigrúm til að aðlaga íslenskt regluverk að reglum ESB strax í viðræðunum sjálfum og það áður en þjóðin fær að segja hug sinn um hvort hún vilji aðlagast því regluverki. „Það er áhyggjuefni,“ segir Hildur. Frétt af mbl.is Sakar Kristrúnu um óheiðarlegan málflutning Tengdar fréttir Ísland og ESB Vill að nefndin fjalli um löggjöfina gullhúðuðu Telja líkur á aðildarviðræðum fara dvínandi Sjávarútvegsyfirráðin færast til Brussel Taldi utanríkisráðherra veigra sér við fyrirspurn Svipuð samningsmarkmið og síðast » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Ekki efnahagsstefna heldur fullkomin uppgjöf Taldi utanríkisráðherra veigra sér við fyrirspurn Afhjúpa málverk af Unni Brá Ætla að afgreiða ESB-tillögu í dag Sést ekki fyrir í ríkisútgjöldum » Fleiri tengdar fréttir Evrópusambandið Telja líkur á aðildarviðræðum fara dvínandi 49% Norðmanna andvígir inngöngu í ESB Fimm ESB-ríki gegn raforkuneti ESB ESB býður talíbönum til viðræðna Svíþjóð hættir við sæstreng vegna ESB » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Svör um ESB-aðlögun „málum blandin“ Lést á fótboltaleik í Noregi „Hún er næstum því á sama aldri og ég var“ Rannsókn á fósturforeldri miðar vel Góðar fréttir fyrir íslenska landsliðið Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Enginn mætti frá ríkisstjórninni Úrskurði um vanhæfi snúið við Ekki efnahagsstefna heldur fullkomin uppgjöf Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Skatturinn birtir álagningu í dag „Mjög margir hringdu í 112“ Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli Margir prestar óska nafnleyndar Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og Gæslunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Enginn mætti frá ríkisstjórninni Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Nýjast á mbl.is » Svör um ESB-aðlögun „málum blandin“ Lést á fótboltaleik í Noregi „Hún er næstum því á sama aldri og ég var“ Rannsókn á fósturforeldri miðar vel Góðar fréttir fyrir íslenska landsliðið Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Nauðsynlegt að samræma störf slökkviliða Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Skatturinn birtir álagningu í dag „Mjög margir hringdu í 112“ Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli Margir prestar óska nafnleyndar Eigendur snekkjunnar stefna ríkinu og Gæslunni Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Enginn mætti frá ríkisstjórninni Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð