Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stuttar og langar heimildarmyndir og nóg af sjávarfangi á Skjaldborg um helgina

Read Full Article →

Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg verður sett á Patreksfirði annað kvöld. Þetta er í 19. sinn sem hátíðin er haldin. Í ár keppa fimm íslenskar heimildarmyndir í fullri lengd og fimm stuttar heimildarmyndir til verðlauna. Að auki verður boðið upp á fjölda viðburða , þar á meðal kvikmyndir heiðursgesta hátíðarinnar sem koma frá Grænlandi, Færeyjum og Sápmi-héruðum Norður-Skandinavíu. „Þetta er skemmtilegasta hátíðin, allavega skemmtilegasta heimildarmyndahátíðin – og eina,“ segir Kristín Andrea Þórðardóttir stjórnandi Skjaldborgarhátíðarinnar. „Hún er svolítið svona vorboðinn, vorið er komið og sumarið er handan við hornið þegar hún byrjar,“ bætir Kristín við en Skjaldborg er iðulega haldin um hvítasunnuhelgina. Góður kjarni sækir hátíðina ár eftir ár „Þetta er í rauninni orðin hálfgerð árshátíð heimildarmyndafagsins og heimildarmyndaunnenda. Við erum með fasta gesti sem koma hérna ár eftir ár sem eru unnendur heimildarmynda. Það er alveg magnað að vera með svona góðan kjarna,“ segir Kristín, spurð að því hverjir það séu sem sæki hátíðina heim. Hún á líka von á góðum gestum erlendis frá, til dæmis úr hópi blaðamanna. Svo má ekki gleyma heiðursgestunum. „Við erum að kynna eins konar sameiginlegan heiðursgest, heimskautsraddir á jaðrinum. Við erum með ótrúlega magnaðar myndir frá þessum löndum og frá þessum svæðum.“ Kræsingar úr sjó stór hluti hátíðarinnar Hátíðarpassar veita aðgang að öllum viðburðum Skjaldborgar, auk gistingar á tjaldsvæðinu og þá fá handhafar frítt í sund. „Vesturbyggð er alveg frábær, hefur staðið með okkur alveg frá upphafi í alls konar svoleiðis til að greiða götu gesta okkar,“ segir Kristín. Matgæðingar geta líka hugsað sér gott til glóðarinnar því plokkfiskboð kvenfélagsins á laugardag og sjávarréttaveisla á sunnudag fylgja með í pakkanum. „Það er svolítið mikil áhersla á að borða fisk á þessari hátíð enda erum við í útgerðarplássi,“ segir Kristín. „Það eru allir saman frá morgni til kvölds, meðal annars á matartímum. Allir borða saman kvöldmáltíðirnar á laugardeginum og sunnudeginum, bæði heiðursgestir, leikstjórar og allir aðstandendur að myndum og hinn almenni áhorfandi.“ Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg verður haldin í 19. sinn á Patreksfirði um helgina. Tíu íslenskar heimildarmyndir keppa til verðlauna í ár. Þá verða sýndar kvikmyndir heiðursgesta frá nokkrum nágrannalöndum. Rætt var við Kristínu Andreu Þórðardóttur í Síðdegisútvarpinu á Rás 2. Hægt er að hlusta á viðtal Hrafnhildar Halldórsdóttur og Rúnars Róbertssonar við Kristínu í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article