Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Leit á samtal við Framsókn sem heiðursmannasamkomulag

Read Full Article →

Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði, segist hafa túlkað samkomulag sem gert var milli Framsóknarflokks, Samfylkingar og Viðreisnar um að fara í meirihlutaviðræður, sem heiðursmannasamkomulag. Það hafi svo komið flatt upp á þau, Viðreisn og Samfylkingu, að sjá tilkynningu í gær um að Framsókn ætli að ganga til viðræðna við Sjálfstæðisflokk. „Kannski upplifir Sjálfstæðisflokkurinn það sama, að þau hafi verið svikin.“ Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar, sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að samtal hans við Samfylkingu og Viðreisn hafi verið óformlegt . Hann segist miður sín yfir að hafa verið sakaður um trúnaðarbrest .

Share this article