Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hver verður varaformaður Samfylkingarinnar?

Read Full Article →

Samfylkingin reið ekki feitum hesti frá borgar- og sveitastjórnarkosningunum um helgina. Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti flokksins í Hafnarfirði, hefur axlað ábyrgð á gengi flokksins á landsvísu og hyggst hann segja af sér varaformennsku flokksins og hætta afskiptum af stjórnmálum. Það vakti töluverða athygli að á kosningakvöldi lýsti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrum formaður Samfylkingarinnar, þeirri skoðun yfir að Guðmundur Árni hefði átt að axla þá ábyrgð fyrir löngu síðan. Eftir stendur þá spurningin hver verður varaformaður flokksins við hlið Kristrúnar Frostadóttur. Sigurbjörn Árni Arngrímsson, sérfræðingur Ríkisútvarpsins í frjálsum íþróttum, telur einsýnt að Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður, verði hlutskarpastur en hann hefur verið á mikilli sigurgöngu að undanförnu. Þó telja aðrir að Dagur B. Eggertsson, stuðningsfulltrúi Samfylkingarinnar á Alþingi, geti verið líklegur og kæmi það ekki hröfnunum á óvart að ef kjör hans gæti verið mikilvæg brúarsmíði á milli gömlu Samfylkingarinnar og þeirra nýju sem Kristrún skóp á sínum tíma. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjðórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 20. maí 2026.

Share this article