Innlent | Morgunblaðið | 22.5.2026 | 9:42 Andlát: Jóhannes Einarsson Jóhannes Einarsson. Setja bókamerki Jóhannes Einarsson vélaverkfræðingur, fv. framkvæmdastjóri Loftleiða, Flugleiða og Cargolux, lést á heimili sínu í Lúxemborg í faðmi fjölskyldunnar 19. maí sl., 96 ára að aldri. Jóhannes fæddist í Reykjavík 6. júlí 1929, sonur hjónanna Einars S. Jóhannessonar vélstjóra og Karolínu Guðmundsdóttur vefnaðarkonu. Hann fór til Bandaríkjanna að læra vélaverkfræði eftir stúdentspróf frá MR og árið 1954 hóf hann störf hjá Íslenskum aðalverktökum. Tveimur árum síðar var hann ráðinn verksmiðjustjóri hjá Coldwater Seafood í Maryland, fisksölufyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Bandaríkjunum. Árið 1962 var hann ráðinn til Loftleiða. Þar ýtti hann mörgum verkefnum úr vör og hafði m.a. umsjón með smíði flugstöðvarbyggingar og skrifstofu á Reykjavíkurflugvelli og seldi DC-9 flugvélar til hjálparflugs. Þegar honum var falið það verkefni að selja Rolls Royce-flugvélar Loftleiða lagði Jóhannes til að stofnað yrði vöruflutningafélag um kaupin á vélunum, Cargolux, og var hann í stjórn félagsins í Lúxemborg. Fyrir tilstuðlan Jóhannesar fór Cargolux í gott samstarf við Boeing-fyrirtækið, sem hann hafði unnið með á Loftleiðaárunum, og þeir fengu fyrstu breiðþotuna 1979. Í því samstarfi varð góður persónulegur vinskapur milli Jóhannesar og Joe Shutter, aðalhönnuðar Boeing 747, og tók Cargolux þátt í þróun vélarinnar sem fraktvélar. Í dag rekur Cargolux 30 slíkar vélar og er nú eitt stærsta fraktflugfélag Evrópu. Þegar Loftleiðir og Flugfélag Íslands sameinuðust 1973 var Jóhannes ráðinn sem framkvæmdastjóri flugrekstrar- og viðhaldsdeildar Flugleiða og sinnti hann því starfi um fimm ára skeið þar til hann tók við framkvæmdastjórastarfi hjá Cargolux árið 1978. Þegar hann fór á eftirlaun 1994 hóf hann störf hjá Atlas Air og síðustu árin sinnti hann ráðgjöf á sviði flugrekstrar, auk þess að vera ræðismaður Íslands í Mónakó. Jóhannes hefur sett svip sinn á sögu flugreksturs Íslendinga og árið 2020 gaf Forlagið út Æviminningar Jóhannesar Einarssonar, Minningabrot, sem Jakob F. Ásgeirsson ritaði. Eiginkona Jóhannesar, Ingibjörg Ólafsdóttir, lifir mann sinn. Þau eignuðust fjögur börn: Elínborgu, Einar, Stellu og Jóhannes Inga, og eiga tíu barnabörn og sex barnabarnabörn. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mætti með trúð á fund þar sem honum var sagt upp Djúp hjólför í Ártúnsbrekkunni grafin í malbikslagið Fjórði fundurinn í deilunni hafinn Andlát: Jóhannes Einarsson Hvernig tókst Vigdísi að beisla Svein Andra? Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mestu sérhagsmunir í sögunni Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Úrskurði um vanhæfi snúið við Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Markleysið enn einn áfellisdómur Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina „Auðvitað myndi það hjálpa“ Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Mestu sérhagsmunir í sögunni „Ég rauk á fætur“ Tókst að koma í veg fyrir útbreiðslu eldsins Námsgögn fjársvelt í áratugi Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Mætti með trúð á fund þar sem honum var sagt upp Djúp hjólför í Ártúnsbrekkunni grafin í malbikslagið Fjórði fundurinn í deilunni hafinn Andlát: Jóhannes Einarsson Hvernig tókst Vigdísi að beisla Svein Andra? Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Valdimar hafnar ásökunum um trúnaðarbrest Bílasalar í sæti lögreglumanns Mestu sérhagsmunir í sögunni Vill að nefndin fjalli um löggjöfina gullhúðuðu Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Markleysið enn einn áfellisdómur Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina „Auðvitað myndi það hjálpa“ Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Mestu sérhagsmunir í sögunni „Ég rauk á fætur“ Tókst að koma í veg fyrir útbreiðslu eldsins Námsgögn fjársvelt í áratugi Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?