Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Slíkir skjálftar verða einu sinni á áratug

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 22.5.2026 | 11:35 Slíkir skjálftar verða einu sinni á áratug Jarðskjálftinn fannst vel í höfuðborginni en hans varð einnig vart í Noregi og Svíþjóð. mbl.is/Sigurður Bogi Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Jarðskjálftar líkir þeim sem reið yfir Danmörku, Noreg og Svíþjóð á miðvikudag verða um einu sinni á áratug að sögn Ólafs Guðmundssonar, prófessors emeritus í jarðfræði við Háskólann í Uppsölum í Svíþjóð. Ólafur, sem var að sinna bústörfum í sumarbústað sínum í Uppsölum er blaðamaður sló á þráðinn, segist ekkert hafa orðið skjálftans var, enda býr hann í um 800 kílómetra fjarlægð frá upptökunum. „Svona skjálftar verða ekki oft á þessu svæði en það verða þarna litlir skjálftar upp í þessa stærð eða stærri einu sinni á áratug eða svo,“ segir hann. Samkvæmt mælingum var skjálftinn, sem á upptök sín við bæinn Køge í Danmörku, 3,9 að stærð. Ólafur segir þá tölu ábyggilega nokkuð nákvæma þó að óvissan sé upp á 0,1 eða 0,2. Hann telur það ólíklegt að mikið tjón hafi orðið vegna skjálftans. Innanflekaskjálfti Hann segir að um svokallaðan innanflekaskjálfta sé að ræða. „Það er að segja, hann er ekki á virkum flekamótum og svona skjálftar verða víða um heim. Þarna er gamalt brotbelti og við í jarðfræðinni getum kortlagt gamlar sprungur. Þær urðu sennilega til fyrir einhverjum hundruðum milljóna ára þegar meginlandsblokk rakst utan í Evrópu og festist við hana.“ „Þarna er belti sem kennt er við Tornquist og Sorgenfrei sem hefur skilið eftir sig veikleika í jarðskorpunni, sem þýðir að spenna getur safnast saman og það verða stöku sinnum skjálftar á þessu belti, norðan úr Skagerrak um Kattegat og í gegnum Skán,“ segir hann. Sá þriðji stærsti „Hann er það lítill þessi skjálfti að hann hefur líklega ekki fundist yfir mjög stórt svæði. Það verða náttúrulega svona skjálftar í kringum Reykjavík. Ef skjálfti í kringum þessa stærð kæmi upp í Krýsuvík til dæmis gæti maður fundið fyrir honum í bænum,“ segir hann. Skjálftinn er sá þriðji stærsti sem mælst hefur í Danmörku. Árið 2010 mældist skjálfti 4,3 að stærð og árið 2008 mældist skjálfti af stærðinni 4,7. Þá voru upptök skjálftans á Skáni, um 60 kílómetra austur af Kaupmannahöfn. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Vonlaus samningur verður ekki lagður fyrir þjóðina Paul Watson boðar uppgjör í sumar Breytt borgarlandslag Selfyssingurinn verðlaunaður Slíkir skjálftar verða einu sinni á áratug Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Helgin blaut: „Þetta er í raun síðasti dagurinn“ Myndir: Sjálfstæðismenn funda og spennan magnast Vonlaus samningur verður ekki lagður fyrir þjóðina Bílasalar í sæti lögreglumanns Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Markleysið enn einn áfellisdómur Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir „Auðvitað myndi það hjálpa“ Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ Milljarðasektin lækkuð í Landsrétti Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Vonlaus samningur verður ekki lagður fyrir þjóðina Paul Watson boðar uppgjör í sumar Breytt borgarlandslag Selfyssingurinn verðlaunaður Slíkir skjálftar verða einu sinni á áratug Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hildur fundar í kvöld og á morgun Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Myndir: Sjálfstæðismenn funda og spennan magnast Helgin blaut: „Þetta er í raun síðasti dagurinn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Markleysið enn einn áfellisdómur Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir „Auðvitað myndi það hjálpa“ Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ Milljarðasektin lækkuð í Landsrétti Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?

Share this article