Allur ágóði af tónleikum Loga Tómassonar í Víkinni í júní rennur til Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings, sem nýlega greindist með krabbamein. Þeir Logi og Ingvar spiluðu saman með fótboltaliði Víkings um tíma. Þetta kemur fram í færslu sem Logi birti á Instagram-reikningi sínum í dag. Logi, sem gengur undir listamannsnafninu Luigi, heldur tónleika í Víkingsheimilinu 18. júní. Þar flytur hann lög af nýrri níu laga plötu sem kom út í dag en hann hefur unnið að tónlist undanfarin ár samhliða knattspyrnuferlinum. Logi spilar fyrir hjá Samsunspor í Tyrklandi og er einnig leikmaður íslenska landsliðsins. „Nýverið greindist fyrrum liðsfélagi og góður vinur óvænt með krabbamein,“ skrifar Logi á Instagram. „Við Ingvar spiluðum saman í meistaraflokki Víkings og óhætt er að segja að eftir að hafa kynnst honum á því tímabili að það er ekki hægt að finna meiri toppmanneskju, bæði innan sem utan vallar. Til að styðja við bakið á honum og hans fjölskyldu hef ég ákveðið að láta allan ágóða af tónleikunum mínum í Víkingsheimilinu 18. júní renna til hans.“