Litarmengun hefur sett mark sitt á Varmá í Mosfellsbæ síðustu daga. Mengunin berst úr Skammadal þar sem Veitur eru að bora eftir heitu vatni. Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, segir að mengunin sé borsvarf sem komist hefur í gegnum mengunarvarnir. Mengunar frá borvinnu Veitna í Skammadal hefur orðið vart í Varmá í Mosfellsbæ. Vinnan var stöðvuð fyrr í vikunni meðan Veitur leituðu lausna. Fyrirtækið fær frest fram á þriðjudag. Framkvæmdir Veitna í Skammadal voru stöðvaðar í byrjun vikunnar eftir að mengunarinnar varð vart. Þegar fyrirtækið taldi sig vera búið að bæta mengunarvarnir nægilega var því leyft að hefja borun á ný. Þá kom í ljós að enn barst mengun í Varmá. Veitur fengu þá frest fram á þriðjudag til að gera úrbætur. Hörður segir að ekki sé búið að taka sýni en segir vonandi að mengunin sé ekki það mikil að hún hafi áhrif á lífríki árinnar. Hann segir að efnið sem berst í ána og valdi mengun sé náttúrulegt efni, berg sem verið er að bora.