Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 22.5.2026 | 15:37 Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Daði Már Kristófersson. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti kom ekki á óvart en var þó ekki það sem ríkisstjórnin hefði viljað sjá að sögn Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. „Hún var náttúrulega fyrirsjáanleg og við sjáum að seðlabankarnir í kringum okkur gera ráð fyrir hækkandi vöxtum í kjölfarið á þessari hækkun á olíuverði og við sjáum það líka verðlagt inn í skuldabréf nágrannaríkjanna,“ segir Daði Már í samtali við blaðamann mbl.is í fjármálaráðuneytinu. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentustig á miðvikudaginn. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, eru því orðnir 7,75%. Frétt af mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Gjaldskrárhækkanir á ábyrgð sveitarfélaga Voru þær gjaldskrárhækkanir og þeir skattar sem hafa verið innleiddir rétt tímasettir? „Þær gjaldskrárhækkanir sem hafa verið að hækka vísitölu neysluverðs núna upp á síðkastið eru náttúrulega að stórum hluta ákvarðanir sveitarfélaganna. Ég verð auðvitað að halda því til haga að hækkanir opinberra gjalda eru ekki verðbólguhvetjandi þó að þær hækki verðbólgu,“ segir hann. „Ég held að ofan á þessa ókyrrð á alþjóðlegum mörkuðum sé mjög mikilvægt að í því þríhliða samtali sem er komið af stað með aðilum vinnumarkaðarins axli allir aðilar ábyrgð á verðlagsstöðugleika á komandi misserum,“ bætir hann við. Frétt af mbl.is Efna til þríhliða samtals Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentustig á miðvikudaginn. mbl.is/Árni Sæberg Mikilvægt að standa við loforðin Hann segir að á komandi misserum sé það mikilvægt að stjórnvöld haldi sig við það sem þau hafa lofað og einsett sér með hallalaus fjárlög. „Við höfum auðvitað brugðist við hækkunum á olíuverði með skammtímaaðgerðum, með lækkun á virðisaukaskatti, en okkar mikilvægasta verkefni núna til að styðja Seðlabankann er að standa við það að skila hallalausum fjárlögum.“ Frétt af mbl.is Ekki efnahagsstefna heldur fullkomin uppgjöf Við bjuggum þetta vandamál til Er planið að virka? „Ekki eins vel og við hefðum viljað,“ segir Daði Már. Hann segir þær aðgerðir sem ráðist var í þegar Covid-faraldurinn geisaði hafa verið of umfangsmiklar. „Hér hækkuðu laun í gegnum Covid-krísuna og ég held að við þurfum að viðurkenna það núna að að einhverju leyti bjuggum við þetta vandamál til, stuðningur ríkisins í tengslum við Covid, hinar svokölluðu Covid-aðgerðir ríkisstjórnarinnar, voru of umfangsmiklar og stóðu of lengi.“ „Það sem gerist þá er að verðbólguvæntingar losna upp af akkerinu og það að ná þeim niður aftur hefur reynst okkur mjög erfitt,“ segir hann að lokum. Frétt af mbl.is Gætu ekki setið á sér í haust ef verðbólga eykst Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dótakassar borgarstjórans Sigurður Már Jónsson Endalok Pírata? Fleira áhugavert Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Sjálfstæðisflokkur og Viðreisn í meirihlutaviðræður „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni „Við hefðum kannski viljað gera þetta öðruvísi“ Ný stjórn FKA Launavísitalan hækkar enn Tveir lífeyrissjóðir sameinast Uppfylla kröfur um stafræna umbreytingu Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Greinin stendur á tímamótum Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast Ný frjósemisvernd hjá Verði Hagar borga 3,3 milljarða í arð Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast Uppfylla kröfur um stafræna umbreytingu Tveir lífeyrissjóðir sameinast Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Ný frjósemisvernd hjá Verði Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Anna Hildur til Ísland Duty Free Hentar sérstaklega vel í sjávarútvegi Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Tveir lífeyrissjóðir sameinast Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Arnaldur skipaður nýr formaður Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dótakassar borgarstjórans Sigurður Már Jónsson Endalok Pírata? Fleira áhugavert Þúsundir mótmæltu í Nuuk Hernaðardróni brotlenti rétt hjá Íslendingi í hjólaferð Vonlaus samningur verður ekki lagður fyrir þjóðina Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni „Við hefðum kannski viljað gera þetta öðruvísi“ Ný stjórn FKA Launavísitalan hækkar enn Tveir lífeyrissjóðir sameinast Uppfylla kröfur um stafræna umbreytingu Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Greinin stendur á tímamótum Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast Ný frjósemisvernd hjá Verði Hagar borga 3,3 milljarða í arð Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Líkur á því að kjarasamningar bresti tvöfaldast Uppfylla kröfur um stafræna umbreytingu Tveir lífeyrissjóðir sameinast Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Ný frjósemisvernd hjá Verði Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Anna Hildur til Ísland Duty Free Hentar sérstaklega vel í sjávarútvegi Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum Skilar inn leyfinu í kjölfar mótmæla Tveir lífeyrissjóðir sameinast Miklar nýjungar í starfsemi Bakka Kaupmáttur aukist með fordæmalausum hætti Sjóvá og Icelandair hefja samstarf um Vildarpunkta Friðrik Þór nýr framkvæmdastjóri Arnaldur skipaður nýr formaður Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig

Share this article