Innlent | mbl | 22.5.2026 | 18:05 Sammála um að regluverkið sé gullhúðað Ráðherrann er sammála þingmanninum um að regluverkið sé gullhúðað. Samsett mynd Setja bókamerki Þingmaður Sjálfstæðisflokksins benti á það að fyrr í dag að það væri séríslensk gullhúðun á EES-reglum að flugvellir væru starfsleyfisskyldir gagnvart heilbrigðiseftirliti. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaðurinn sem um ræðir, beindi þeirri fyrirspurn til Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra hvernig hann hygðist bregðast við þessari stöðu. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fer með eftirlit á Reykjavíkurflugvelli en Njáll segir að taka þurfi mið af því að flugvöllurinn sé ekki venjulegt staðbundið athafnasvæði. Frétt af mbl.is Isavia fái starfsleyfi út árið 2032 Gríðarlega mikilvægt að íþyngja ekki að óþörfu Segir Njáll Karl Alvarsson, formann fagráðs um flugmál, hafa bent á að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fari út fyrir valdheimildir sínar ef það reynir að takmarka lendingar eða þrengja að starfsemi Reykjavíkurflugvallar. Eyjólfur segist hafa rætt málið við Karl og segist hann hafa gert Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, grein fyrir því að hann telji að um gullhúðun sé að ræða. Segir ráðherrann það gríðarlega mikilvægt að flugvöllum í landinu sé ekki íþyngt með óþarfa gullhúðun. Málið muni fá farsælan endi Þakkaði Njáll þá Eyjólfi fyrir skýr svör en sagði jafnframt brýnt að málið yrði rannsakað frekar. „Ég held að það væri mikilvægt að þetta mál verði rannsakað hreint og beint vegna þeirrar afskiptasemi sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur haft af starfsemi Reykjavíkurflugvallar í ár og áratugi. Þetta er skýrara dæmi um slæma stjórnsýslu og pólitísk afskipti en í nokkru máli sem er í gangi í íslensku samfélagi,“ sagði Njáll, sem bætti við að hann hefði fulla trú á því að ráðherrann myndi taka málið föstum tökum. Kom Eyjólfur þá í ræðustól öðru sinni og sagði fullur vonar um að málið fengi farsælan endi, í framtíðinni þyrfti aðeins að fá rekstrarleyfi en ekki starfsleyfi vegna flugvalla. „Varðandi stjórnsýslu heilbrigðiseftirlitsins og borgarinnar í þessu máli þá mun þetta bara vonandi heyra sögunni til. Við skulum sjá hvernig þetta verður. En við höfum þegar átt í erfiðleikum út af flugvellinum, rekstrarskilyrðum hans, út af trjágróðri og öðru slíku og ég vona að það muni heyra sögunni til í framtíðinni,“ sagði ráðherrann. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Besta deild karla, bein lýsing Breiðablik – KR kl. 19.15, bein lýsing Lars Løkke eyddi draumum Poulsens Tollgæslan sögð hafa skotið á bifreið Gæti misst af úrslitaleiknum og HM Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fá lágmarksframfærslu og aðstöðu til að elda Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Markleysið enn einn áfellisdómur Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Besta deild karla, bein lýsing Breiðablik – KR kl. 19.15, bein lýsing Lars Løkke eyddi draumum Poulsens Tollgæslan sögð hafa skotið á bifreið Gæti misst af úrslitaleiknum og HM Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Halda áfram eftir helgi: „Ágætis fundur“ Áhersla á húsnæðismál, skipulag og samgöngur Vona að öllum verði boðið starf hjá Íslandshótelum Aukið eftirlit yfir helgina Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?