Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News RÚV

Íslendingur vann 336 milljónir

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 7 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Ís­lend­ing­ur vann 336 millj­ón­ir Sigrún Björk Hjartardóttir Íslendingur vann 336 milljónir í Eurojackpot í dag og var meðal þeirra tíu sem skipta með sér öðrum vinningi. Miðinn var keyptur í N1 við Austurveg á Selfossi. Hver vinningshafi fær 336.393.830 krónur í sinn hlut. Af vinningshöfunum voru fimm frá Þýskalandi, tveir frá Svíþjóð, og einn frá Slóveníu, Finnlandi og Íslandi. Níu voru með þriðja vinning og fær hver þeirra rúmar 35 milljónir. Enginn hlaut fyrsta vinning. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hvað er ebóla? Ebóla er aftur mætt í fréttirnar eftir faraldur í Kongó. En hvað er þetta eiginlega og af hverju erum við enn að tala um þessa veiru 50 árum eftir að hún fannst? Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tulsi Gabb­ard segir upp Yfirmaður leyniþjónustustofnana Bandaríkjanna ætlar að láta af embætti til að hlúa að krabbameinssjúkum eiginmanni sínum, að því er hún segir á samfélagsmiðlinum X. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Lars Løkke vill að Frede­rik­sen fái stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­ið Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Lars Løkke Rasmussen, formaður Moderaterne, vill að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og formaður Jafnaðarmanna, fái stjórnarmyndunarumboðið aftur á morgun. Hann neitar að styðja borgaralega minnihlutastjórn undir stjórn Troels Lund Poulsen, formanns Venstre, og þarf Poulsen því að skila stjórnarmyndunarumboðinu. Hann fer á fund konungs í kvöld. Rasmussen sagði við fjölmiðla að loknum fundi hans og Poulsens í dag að óráðlegt væri að mynda minnihlutastjórn úr bláu blokkinni. „Það er ekki það sem Danmörk þarf varðandi stöðu öryggismála.“ Rasmussen hafi viljað sjá Poulsen reyna að teygja sig meira yfir miðjuna. Lars Løkke Rasmussen, formaður Moderaterne, og Mette Frederiksen, formaður Jafnaðarmanna og forsætisráðherra. EPA / Mads Claus Rasmussen Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Stærstu út­gerð­irn­ar áttu 400 millj­arða í öðrum fé­lög­um Stærstu sjávarútvegsfyrirtæki landsins áttu rúma 400 milljarða í öðrum félögum í lok árs 2024. Fjórar útgerðir eiga þar stærstan hluta. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Hagfræðistofnun HÍ. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Breyt­ing­ar í for­ystu Grund­ar­fjarð­ar­bæj­ar Mist Þormóðsdóttir Grönvold Birkir Jón Jónsson verður næsti bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar. Hann tekur við af Björgu Ágústsdóttur sem gegnt hefur starfi bæjarstjóra frá 2018. Fram kemur í tilkynningu að samkomulag hafi náðst um að Birkir Jón taki við stöðu bæjarstjóra. Hann búi yfir fjölbreyttri reynslu úr stjórnsýslu og stjórnmálum. Ráðning Birkis verður formlega staðfest þegar ný bæjarstjórn tekur til starfa. Listi Framsóknar og félagshyggjufólks hlaut 56% atkvæða í Grundarfjarðarbæ í sveitarstjórnarkosningunum og fjóra fulltrúa í bæjarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn og óháðir fengu þrjá fulltrúa. Á myndinni eru þau sem skipta lista Framsóknar og félagshyggjufólks í Grundarfjarðarbæ ásamt Birki Jóni. Aðsend / Birkir Jón Jónsson Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Odd­vit­ar í Reykja­vík halda spil­un­um þétt að sér Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fundaði með oddvitum Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknar í dag um mögulega myndun meirihluta. Oddvitar flokkanna vildu ekki veita viðtöl að fundi loknum. Dregið gæti til tíðinda um helgina. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­ur í upp­námi – Lars Løkke neitar að styðja hægri­st­jórn Poul­sen Stjórnarmyndunarviðræður í Danmörku eru í uppnámi eftir að Lars Løkke Rasmussen, formaður miðjuflokksins Moderaterne, neitaði að styðja hægristjórn undir stjórn Troels Lund Poulsen, formanns Venstre. Hann missir því líklega stjórnarmyndunarumboðið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Lottó­vinn­ings­hafi á ní­ræð­is­aldri hyggur á ferða­lag til Asíu Íslensk kona á níræðisaldri hreppti stóran vinning í lottó á laugardag. Hún vann rúmar 130 milljónir króna. Konan segist vilja nota peninginn til góðs en hana langar jafnframt að ferðast til Asíu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Þróa bólu­efni gegn ebólu sem gæti verið til­bú­ið innan nokk­urra mánaða Vísindamenn í Oxford vinna að þróun bóluefnis gegn ebólu sem gæti verið tilbúið á næstu mánuðum. Þeir nota sömu tækni við þróun bóluefnisins og vísindamenn gerðu við þróun bóluefnis gegn COVID-19. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Skjóti skökku við að Tómas hafi ekki fengið að svara fyrir sig fyrir dómi Formaður Læknafélagsins segir koma á óvart að héraðsdómur hafi komist að annarri niðurstöðu um ábyrgð Tómasar Guðbjartssonar en plastbarkaskýrslan. Hún segir skjóta skökku við að hann hafi ekki verið kallaður fyrir dóm til að svara fyrir sig. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Fyrsta bókin á kín­versku til að hljóta al­þjóð­legu Booker-verð­laun­in Taívanski höfundurinn Yáng Shuāng-zǐ og þýðandinn Lin King hlutu hin virtu alþjóðlegu Booker-verðlaun fyrir bókina Taiwan Travelogue. Þær segja ómögulegt að aðskilja bókmenntir og pólitík. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Búa sig undir fyrstu hita­bylgju sum­ars­ins Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Íbúar í Portúgal, á Spáni, Frakklandi og Bretlandi búa sig undir fyrstu hitabylgju sumarsins. Hiti átti víða að fara yfir þrjátíu stig í París, Lundúnum og 35 stig í Suðvestur-Frakklandi. Hiti fór upp í tæplega fjörutíu stig á Suðvestur-Spáni strax í gær. Veðurstofa Frakklands sagði nánast öruggt að hitamet yrðu slegin fyrir maímánuð. Veðurstofa Bretlands hefur gefið út viðvaranir vegna hita fyrir helgina. Hiti gæti náð þrjátíu og þremur stigum á mánudag, sem er hæsti hiti sem mælst hefur í maí. Síðasta met er frá 1944 þegar 32,8 stiga hiti mældist. Manneskja hleypur með fram ströndinni og pálmatrjám við Southend-on-Sea í Essex í Bretlandi 22. apríl 2026. AP/PA / Stefan Rousseau Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Varmá breyt­ir um lit vegna meng­un­ar úr Skamma­dal Mengunar frá borvinnu Veitna í Skammadal hefur orðið vart í Varmá í Mosfellsbæ. Vinnan var stöðvuð fyrr í vikunni meðan Veitur leituðu lausna. Fyrirtækið fær frest fram á þriðjudag. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Logi lætur allan ágóða tón­leika sinna renna til liðs­fé­laga Knattspyrnu- og tónlistarmaðurinn Logi Tómasson heldur tónleika í Víkinni í júní. Allur ágóði tónleikana rennur til Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkings, sem greinst hefur með krabbamein. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Telur að náms­gagna­gerð ætti að vera á hendi hins op­in­bera Skólastjóri Lauganesskóla segir skort á námsgögnum auka álag á kennara og að of mikill tími fari í undirbúning námsefnis sem geti komið niður á kennslu. Hann kallar eftir að ríkið hefji á ný útgáfu á námsefni. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nýr meiri­hluti mynd­að­ur í Hörg­ár­sveit Brynjólfur Þór Guðmundsson Samkomulag hefur náðst um myndun meirihluta í sveitarstjórn Hörgársveitar. G-listi Grósku og H-listi Hörgársveitar mynda meirihlutann. Samanlagt fengu þeir 65,5 prósent í kosningunum og þrjár af fimm sveitarstjórnarmönnum. Sunna María Jónasdóttir af G-lista verður oddviti og Bjarki Brynjólfsson frá H-lista varaoddviti. Róbert Fanndal Jósavinsson frá G-lista verður formaður framkvæmda- og rekstrarnefndar. Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri gegnir því starfi áfram og hefur skrifað undir samning til starfa á þessu kjörtímabili. Hörgá í Hörgársveit. Aðsent / Elsa Þorvaldsdóttir Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Lýðstjórnarlýðveldið Kongó Kveiktu í sjúkra­tjöld­um þar sem sjúk­ling­um með ebólu er sinnt Mótmælendur kveiktu í tjöldum á sjúkrahúsi í Austur-Kongó þar sem sjúklingum með ebólu er sinnt. Yfir 130 hafa látist úr ebólu í landinu. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálf­stæð­is­menn hefja við­ræð­ur við Við­reisn í Mos­fells­bæ Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðið Viðreisn til meirihlutaviðræðna í Mosfellsbæ. Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í bæjarstjórn. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Patt­staða í Firð­in­um Óformlegar viðræður Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar hafa farið fram. Menn eru enn að átta sig á atburðum gærdagsins. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Fyr­ir­tæki Jims Ratclif­fe gefur Ung­menna­fé­lag­inu Ein­herja rútu: „Við erum hrika­lega þakk­lát“ Formaður Einherja er þakklátur fyrir Ford-rútuna sem verður merkt Six Rivers, fyrirtæki enska milljarðamæringsins. Rútan verður notað til að ferja íþróttalið Einherja í kappleiki. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Sigur fyrir fjöl­skyldu Ande­mar­i­ams og áfell­is­dóm­ur yfir fjöl­mörg­um í plast­barka­máli Lögmaður fjölskyldu Andemariams Beyene, sem lést eftir plastbarkaígræðslu, segir dóm yfir íslenska ríkinu vegna stórfellds gáleysis Tómasar Guðbjartssonar læknis mikinn sigur fyrir fjölskylduna en áfellisdóm fyrir ríkið, Landspítala og Læknadeild HÍ. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Eurovision Mögu­lega komið að enda­lok­um Euro­vi­sion: „Þetta er svindl“ Ísraelar fóru af stað með mikla auglýsingaherferð í aðdraganda Eurovision til að tryggja sér sem flest atkvæði. Ljóst er að viðhorf áhorfenda til keppninnar er breytt og komið að vatnaskilum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi „Viljum við ekki bera höf­uð­ið hátt í mögu­leg­um samn­inga­við­ræð­um?“ Síðari umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að ESB hélt áfram á Alþingi í morgun. Ráðherra varar við fyrirfram uppgjöf stjórnarandstöðunnar. Þingmaður Miðflokksins segir vinnubrögð ríkisstjórnar ótraustvekjandi. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Guðjón skip­að­ur for­stjóri Sjúkra­húss­ins á Ak­ur­eyri Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað Guðjón Hauksson í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Hann fer þangað frá Heilbrigðisstofnun Austurlands. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Hypjið ykkur, Banda­rík­in! Rúmlega

Share this article