Innlent | Morgunblaðið | 23.5.2026 | 19:46 „Í dauðafæri til að klára þetta“ Húsið er tilbúið og búið er að hanna sýninguna. mbl.is/Sigurður Bogi Örn Óskar P. Blöndal [email protected] Setja bókamerki Byggingin sem mun hýsa Náttúruminjasafnið á Seltjarnarnesi er tilbúin, en starfsemi þar getur ekki hafist þar sem safnið bíður eftir fjárheimildum frá fjármálaráðuneytinu til að flytja inn og hefja uppsetningu sýningar. Þar verður meðal annars sérrými tileinkað geirfuglinum, sem varð útdauður á Íslandi. Ragnhildur Guðmundsdóttir, forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands, segir í samtali við Morgunblaðið að hönnun sýningarinnar sé tilbúin. „Þetta tengist hallalausum fjárlögum 2027, sem hefur í raun sett verkefnið á ís þessa stundina,“ segir Ragnhildur. Snýst um að klára verkefnið Höfuðstöðvarnar sem safnið hyggst flytja í voru upphaflega byggðar árið 2007 í Bygggörðum á Seltjarnarnesi, en framkvæmdir hófust á ný undir lok árs 2023. „Hönnun sýningarinnar er tilbúin, en það á eftir að fjármagna framkvæmd hennar. Ef við fáum fjármagn getum við hafið uppsetningu sýningarinnar og flutt starfsemina yfir eins og áður stóð til,“ segir Ragnhildur. Verulegur kostnaður hefur farið í verkefnið að sögn Ragnhildar og snýst þetta bara um að klára það. „Það er mikil samkeppni um þetta fjármagn og mörg önnur brýn verkefni. Aðstæður í samfélaginu eru ekkert sérstaklega hagstæðar núna með verðbólguna eins og hún er þannig að við vitum að staðan er ekki einföld en við teljum að þetta fari inn í fjárlög á næsta ári,“ bætti hún svo við. Náttúrufræðifélagið var stofnað fyrir 137 árum með það markmið að opna náttúruminjasafn á Íslandi. „137 árum síðar erum við enn að vinna í þessu verkefni, við erum komin með húsnæði og í raun bara í dauðafæri til að klára þetta,“ segir Ragnhildur. Geirfuglinn var keyptur á uppboði árið 1971 í Bretlandi og verður herbergi tileinkað þessum merka grip á safninu. Það verður svo hluti af stærri sýningu sem heitir Hafið. Þar verður meðal annars beinagrindin af íslandssléttbaknum sem er útdauður og kúfskel sem er elsta þekkta dýr í heiminum og varð 512 ára gamalt. Staðsetning safnsins þykir afar heppileg, enda er Seltjarnarnes umlukið hafi og húsið stendur á friðlandinu með útsýni að Gróttuvita. Þrátt fyrir að húsið sé tilbúið og hönnun sýningarinnar klár bíður safnið enn fjárheimilda áður en hægt verður að flytja starfsemina út á nes og opna dyrnar fyrir almenningi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Teitur rosalegur í sigri Íslendingaliðsins „Í dauðafæri til að klára þetta“ Fjölbrautaskólinn við Ármúla útskrifaði af fjölda brauta Heppinn spilari 11 milljónum ríkari Síðasti leikur fyrirliðans í Madríd Umræðan Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Í dóm þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óku á gangandi vegfaranda og vistaðir í fangageymslu Áhersla á húsnæðismál, skipulag og samgöngur Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar Hernaðardróni brotlenti rétt hjá Íslendingi í hjólaferð Mest lesið Í gær Í vikunni „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Óhljóð í nýjum sætum Icelandair Flak Víkartinds kemur undan svörtum sandi Háfsfjöru Afleit reynsla af Skattinum Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Byggingarfyrirtæki gætu farið í þrot Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður Miklu munar á hlutfalli útskrifaðra milli skóla Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Teitur rosalegur í sigri Íslendingaliðsins „Í dauðafæri til að klára þetta“ Fjölbrautaskólinn við Ármúla útskrifaði af fjölda brauta Heppinn spilari 11 milljónum ríkari Síðasti leikur fyrirliðans í Madríd Umræðan Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Í dóm þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aukið eftirlit yfir helgina Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Hernaðardróni brotlenti rétt hjá Íslendingi í hjólaferð Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Mest lesið Í gær Í vikunni „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Óhljóð í nýjum sætum Icelandair Flak Víkartinds kemur undan svörtum sandi Háfsfjöru Afleit reynsla af Skattinum Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Byggingarfyrirtæki gætu farið í þrot Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður Miklu munar á hlutfalli útskrifaðra milli skóla Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?