Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 32 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Herjólfur siglir frá Þorlákshöfn Erla María Markúsdóttir Herjólfur sigldi frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar í morgun og lagði af stað frá Þorlákshöfn til Eyja klukkan 11. Aðstæður í Landeyjahöfn eru erfiðar. Aðrar ferðir til og frá Landeyjahöfn falla niður þar til tilkynning verður send út síðdegis. Landeyjahöfn hefur verið meira og minna lokuð það sem af er ári og bilun í Herjólfi gerir siglinguna lengri en vanalega. Herjólfur við bryggju í Þorlákshöfn. RÚV / Guðmundur Bergkvist Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Samninganefndir sendar inn í helgina með heimavinnu Samningaviðræðum við Icelandair miðar ágætlega, segir formaður atvinnuflugmanna. Hægt þokast hjá flugvirkjum. Fyrir 27 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Samfélagsmiðlar Gera grín á samfélagsmiðlum Miðstöðin forvitnaðist um Sketsagerðina, grínhóp á samfélagsmiðlum, á dögunum. Fyrir 35 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Enn verið að meta stöðuna í borginni Anna Lilja Þórisdóttir Enn er verið að meta stöðuna varðandi mögulegar formlegar viðræður um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum fréttastofu er staðan óbreytt eftir fundahöld síðustu viku þar sem Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna átti einkafundi með oddvitum Miðflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar í fyrradag. Ekki er vitað um frekari fundahöld í dag. Oddvitar flokkanna í Reykjavík sem hafa rætt um mögulega meirihlutamyndun. Fréttagrafík / Kristrún Eyjólfsdóttir Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Miðausturlönd Óvissa um hvað er fólgið í hugsanlegu friðarsamkomulagi Vonir hafa vaknað um að samkomulag um frið við Persaflóa náist strax í dag og að opnað verði fyrir siglingar um Hormússund. Óvissa er um innihaldið. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Afganistan Spá því að tæpur helmingur þjóðarinnar þurfi á mannúðaraðstoð að halda Talibanar hafa verið við völd í Afganistan í tæp fimm ár. Mikill skortur er á mannúðaraðstoð í landinu, en fátækt, hungur, atvinnuleysi og mannleg eymd hefur aukist verulega á þessum árum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Eldurinn reyndist vera eldamennska Brynjólfur Þór Guðmundsson Skemmtanahald gærkvöldsins og næturinnar virðist hafa verið friðsælt, að því sem ráða má af samtölum fréttastofu við lögreglu í morgun. Tveir voru handteknir vegna slagsmála fyrir utan skemmtistað í Reykjavík og lögregla hjálpaði húsráðendum við að vísa gestum á braut eftir að partí í heimahúsi fór úr böndunum. Enginn fékk þó að gista fangaklefa í nótt. Rólegt var á Akureyri og Egilsstöðum. Erill var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þegar kom að sjúkraflutningum. Minna reyndi á dælubílana sem fóru í fjögur útköll. Á einum stað var tilkynnt um eld en síðan kom í ljós að meira fjör hafði færst í leikinn í eldamennsku en til stóð. Eldamennskan endar stundum með útkalli slökkviliðs. Pxhere Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Pistill Feneyjatvíæringurinn: Pólítík þjóðanna gleypir listina Er hægt að eiga í diplómatískum samskiptum á sviði lista í skugga þjóðarmorðs? Nína Hjálmarsdóttir rýnir í ólympíuleika myndlistarinnar, Tvíæringinn í Feneyjum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Rubio vonast eftir góðum fréttum í dag Brynjólfur Þór Guðmundsson Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir hugsanlegt að í dag verði tilkynnt um endalok stríðsins milli Bandaríkjanna og Írans. „Ég held að það sé kannski möguleiki á því á næstu klukkustundum að heimsbyggðin fái góðar fréttir,“ sagði Rubio þegar hann ræddi við fréttamenn í Nýju Delí á Indlandi. Hann sagði að í samningi yrði tekið á siglingum um Hormús-sund og kjarnorkuvopnaþróun Írana. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, fagnaði því að árangur virtist vera að nást í friðarviðræðum Írana og Bandaríkjamanna. Hann sagði að í framhaldinu yrði reynt að tryggja frið til langrar framtíðar. Eldsneytisverð hefur hækkað mikið á heimsvísu vegna stríðsins við Persaflóa. EPA / JIM LO SCALZO Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Skutu ofurhljóðfrárri eldflaug á Úkraínu Rússar skutu 600 drónum og 90 eldflaugum að Úkraínu í nótt. Meðal eldflauganna var ein sem getur borið kjarnorkusprengjur. Fjórir voru drepnir í árásunum og 60 særðust. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Neyðarástandi lýst yfir vegna eiturefnaleka Gavin Newsom ríkisstjóri Kaliforníu hefur lýst yfir neyðarástandi vegna eiturefnaleka í Garden Grove-svæðinu. Mikil hætta er talin á að tankurinn springi. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Hvernig fóru Blikar svona illa með KR-inga? Breiðablik fór illa með KR í Bestu deild karla og vann 6-3 sigur, sem hefði getað verið stærri. Anton Logi Lúðvíksson fór á kostum í leiknum. Hér ræðir hann tímabil Blika hingað til, meiðslasögu sína og hvernig Blikum tókst að fara svona illa með KR. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Úrkoma í flestum landshlutum Blautt verður víðast hvar um landið. Úrkoman nær þó líklega ekki yfir á Austurland. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Filippseyjar Tugir verkamanna sagðir fastir í rústum níu hæða húss Brynja Dögg Friðriksdóttir Húsið er rústir einar og aðstæður til björgunar eru afar erfiðar. AP / Uncredited Óttast er um tugi verkamanna eftir níu hæða hús hrundi til grunna í Angeles City, norður af Manilla á Filippseyjum í dag. Húsið var í byggingu og 22 verkamönnum tókst að komast undan rústunum, en talið er að milli 30-40 séu enn fastir í þeim. Aðstæður til björgunar eru mjög erfiðar en húsið var steypt. Ekki er vitað hvað olli slysinu. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fimleikar Verður Ísland Evrópumeistari í fimmta skiptið? Íslensku landsliðin í hópfimleikum undirbúa sig nú af kappi fyrir Evrópumótið. Kvennaliðið er ríkjandi meistari og hefur alls unnið fjórum sinnum. Landsliðsþjálfararnir segja afar strembið að velja hópinn. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Jarðskjálfti af stærðinni 3,5 Brynja Dögg Friðriksdóttir Stærsti skjálftinn í jarðskjálftahrinunni mældist 3,5. Veðurstofa Íslands / Náttúruvárvakt Jarðskjálfti af stærðinni 3,5 varð kl. 05:56 í morgun. Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg, tæplega 10 km vestur af Reykjanestá, upp úr kl. 21:00 í gærkvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands hafa yfir 120 skjálftar mælst síðan. Veðurstofunni hafa ekki borist tilkynningar um að sjálftarnir hafi fundist í byggð. Ekki mælist órói á svæðinu og GNSS-stöðvar á svæðinu sýna ekki markverðar breytingar í bakgrunni. Síðast varð svipuð hrina á þessu svæði í febrúar og apríl á þessu ári og vörðu þær frá nokkrum klukkustundum upp í nokkra daga, segir í upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Árásarmaðurinn hafði áður reynt að fara inn í Hvíta húsið Árásarmaðurinn sem skaut leyniþjónustumann við Hvíta húsið í gærkvöld reyndi að fara í Hvíta húsið í júlí. Hann er talinn hafa verið andlega veikur. Bandaríkjaforseti þakkaði lögregluyfirvöldum fyrir skjót og góð viðbrögð. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Serbía Mikil mótmæli í Belgrad Tugir þúsunda komu saman í gær til að kalla eftir því að þingkosningum verði flýtt í landinu. Forsætisráðherrann hefur sagt að þær verði í haust. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Fjörður vann Gullpálmann Norsk-rúmenska kvikmyndin Fjörður vann Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gærkvöld. Kvikmyndin Minotaure hlaut Grand-Prix verðlaun hátíðarinnar. 24. maí 2026 kl. 1:52ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Einn drepinn og 20 særðir eftir miklar árásir á Kyiv Rússar hafa gert miklar árásir á Kyiv í nótt með flugskeytum og drónum. Almennum borgurum hefur verið ráðlagt að halda sig í loftvarnarbyrgjum. 23. maí 2026 kl. 23:46ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Skothvellir við Hvíta húsið - byssumaðurinn látinn og einn særður Tugir skothvella heyrðust við Hvíta húsið í kvöld. Bandaríkjaforseti var í Hvíta húsinu þegar skothvellirnir heyrðust. Mikill viðbúnaður var á vettvangi. 23. maí 2026 kl. 23:20INNLENDAR FRÉTTIR Skólahreysti Grunnskóli Húnaþings vestra sigraði í Skólahreysti Grunnskóli Húnaþings vestra stóð uppi sem sigurvegari með 60 stig í úrslitakeppninni í Skólahreysti sem fram fór í íþróttahöllinni að Varmá í kvöld. Laugalækjarskóli endaði í öðru sæti og Víðistaðaskóli hafnaði í því þriðja. 23. maí 2026 kl. 22:28INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Maðurinn fundinn Sigrún Björk Hjartardóttir Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gærkvöld er fundinn. Í tilkynningu lögreglu sem send var á fjölmiðla nú í morgun var greint frá því að hann væri kominn í leitirnar. Lögregla þakkar veitta aðstoð. 23. maí 2026 kl. 21:01ERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Dularfull fækkun broddgalta Broddgöltum í Svíþjóð hefur fækkað hratt og enginn veit hvers vegna. 23. maí 2026 kl. 20:05MENNING OG DÆGURMÁL Menning Tölvuleikir og list renna saman í Bíó Paradís Leikjahátíðin Isle of Games fer fram í Bíó Paradís þessa hvítasunnuhelgi. Þar má finna blöndu af tölvuleikjum, list, sýndarveruleika og tónlist. 23. maí 2026 kl. 19:55INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Sjö flugferðum aflýst á einum sólahring Icelandair hefur þurft að aflýsa sjö flugferðum á einum sólarhring, þar af fjórum vegna manneklu. Þrjár flugferðanna voru til Evrópu og fjórar til Bandaríkjanna. Tvær flugferðir hafa bæst við síðan fyrr í dag. 23. maí 2026 kl. 19:49ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Segja að þokast hafi í viðræðum Stjórnvöld í Pakistan telja að þokast hafi í viðræðum Bandaríkjanna og Írans. Hótanir ganga þó enn á milli ríkjanna. 23. maí 2026 kl. 18:44ERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Þrjú ný ebólusmit í Úganda Ebólufaraldur geisar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og Úganda. Yfirmaður sóttvarnastofnunar Afríku segir tíu ríki vera í hættu á að veiran smitist þangað. 23. maí 2026 kl. 17:56ÍÞRÓTTIR Fótbolti P-in tvö tryggðu Barcelona sigur í Meistaradeildinni Barcelona vann Meistaradeild Evrópu í fótbolta eftir 4-0 sigur