Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stór­sigrar Sjálf­stæðis­flokks

Read Full Article →

Óðinn fjallaði um sigur Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í Viðskiptablaðinu á miðvikudag. Nú má ætla að á morgun verði tilkynnt um með hvaða flokki eða flokkum Hildur Björnsdóttir og Sjálfstæðisflokkurinn í borginni mun vinna með á kjörtímabilinu. Hér á eftir er hluti pistilsins. Stór­sigrar Sjálf­stæðis­flokks og verðbólgu­draugurinn Það er langt síðan Sjálfstæðisflokkurinn hefur komið jafn samhentur til kosninga og í sveitarstjórnarkosningunum um síðustu helgi. Það hafði óskaplega jákvæð áhrif á útkomu flokksins, sem mældist einhvers staðar í kringum 36% á landsvísu. Auðvitað hjálpaði það flokknum mikið að stjórnarflokkarnir eru með vindinn í ­fangið og vita hvorki upp né niður hvernig þeir eiga að bregðast við stöðunni. *** Glæsilegur sigur Hildar Stærsti sigurinn er auðvitað Hildar Björns­dóttur í Reykjavík. Ekki vegna ­fylgisins, sem var þó alveg hreint stórgott, heldur þeirrar yfirburðastöðu sem flokkur­inn hefur við að mynda meirihluta í fyrsta skipti í tuttugu ár. Það munaði öllu um níunda borgarfulltrúann sem kom á lokametrum talningarinnar. Ef Hildur heldur rétt á spilunum og stendur við loforð um breytingar strax í borginni mun fylgið vaxa mikið og flokkurinn í borginni getur eygt 40% fylgi í fyrsta sinn í tvo áratugi. En það kostar blóð, svita og tár í ­fjögur ár að komast í þá höfn. *** Tveir kostir Það verður að segjast að framganga ­Hildar í kosningunum var um margt lands­föðurleg. Hún kom ákaflega vel fyrir í öllum ­þáttunum í aðdraganda kosninganna og kann þá list, sem er langt frá því allra, að vera kjarnyrt í framsögu – að tala umbúðalausa íslensku – auk þess halda ró sinni þegar að henni er sótt. Það eru tveir kostir við myndun meirihlutans. Það eru auðvitað rök með og móti báðum kostum. En er ekki líklegra að breyt­ingar strax séu líklegri með Miðflokki en Viðreisn og Framsókn? Jafnvel þó svo að furðufuglar eins og Helgi Áss Grétarsson og fleiri líkir séu á lista Miðflokksins. Það kæmi Óðni hins vegar ekki á óvart ef C og B yrðu fyrir valinu. En ákvörðunin er Hildar Björnsdóttur og hún verður að meta það hvor leiðin er lík­legri til árangurs. *** Er nýr formaður fæddur? Óðinn hefur enga trú á því Hildur sé með hugmyndir um formannsframboð í Sjálf­stæðisflokknum enda eru verkefni hennar í borginni ærin – og rétt að byrja. Ásdís Kristjánsdóttir vann stóran sigur í Kópavogi og náði meirihluta bæjarfulltrúa. Það var hart sótt að bæjarstjóranum og ­hennar fólki úr öllum áttum af vinstri mönnum í kosningabaráttunni og því var sigurinn stærri fyrir vikið. Í Kópavogi átti Ásdís í hörðum samræðum við Jónas Már Torfason Ölmuson ­Möller. Sá þóttist allt um rekstur Kópavogsbæjar vita en svo kom í ljós að hann þekkti ekki ­stefnuskrá eigin framboðs í Kópavogi. Langt er síðan annað eins pólitískt furðuverk hefur komið fram í íslenskum stjórnmálum. Ásdís hefur sýnt það fyrir margt löngu að hún er mikið efni í stærri verkefni og ­aftur og aftur er hún nefnd sem hugsanlegur formaður Sjálfstæðisflokksins. Leið hennar er greið í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur tilkynnt brotthvarf sitt í „gríðarlega mikilvæg“ störf í utan­ríkisþjónustunni. Umfjöllun um það má bíða betri tíma. Pistillinn birtist í Viðskiptablaðinu sem kom út þann 20. maí. Áskrifendur geta lesið blaðið hér og allan pistil Óðins hér .

Share this article