Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 7 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Enn skelfur jörð á Reykjaneshrygg Brynjólfur Þór Guðmundsson Íbúar á Reykjanesskaga urðu varir við jarðskjálfta um klukkan hálf sjö í kvöld. Sá var 2,9 að stærð og átti upptök sín um tíu kílómetra vestur af Reykjanestá. Skjálftinn er hluti af hrinu á Reykjanesskaga sem hófst um klukkan níu í gærkvöld. Alls hafa um 180 skjálftar mælst á tæplega sólarhring. Skjálftinn sem fólk fann fyrir um kvöldmatarleytið er næststærsti skjálftinn í hrinunni. Aðeins skjálfti upp á 3,5 sem reið yfir upp úr klukkan fimm í morgun hefur verið stærri. NASA Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Annar bátur flytur farþega milli Eyja og Landeyjahafnar Farþegabátur sigldi milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar í dag. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir aðstæður í höfninni kalla á fleiri lausnir. Fyrir 34 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Elín Klara Svíþjóðarmeistari Hans Steinar Bjarnason Elín Klara Þorkelsdóttir varð í dag sænskur meistari í handbolta með Sävehof. Elín Klara skoraði 8 mörk í sigri á Skara í framlengdum leik, 29-28. Sävehof vann úrslitaeinvígið 3-0 og vann alla sína leiki í úrslitakeppninni. Elín Klara (t.h.) með verðlaunagripinn í dag. IMAGO / Bildbyran Lena Margrét Valdimarsdóttir leikur með Skara og skoraði tvö mörk í leiknum. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bretland Unglingspiltar dæmdir fyrir tvær hópnauðganir Vægur dómur yfir unglingspiltum vegna nauðgana hefur valdið hneykslan í Bretlandi. Piltarnir hópnauðguðu tveimur stúlkum og deildu upptökum af því á samfélagsmiðlum. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Eitt erfiðasta sópranhlutverk óperubókmenntanna Að kvöldi hvítasunnudags verður flutt óperan „La Sonnambula“ eftir Vincenzo Bellini, hljóðritun frá sýningu Metrópólitan-óperunnar í New York, 18. október á liðnu ári. Nadine Sierra syngur aðalhlutverkið sem er eitt erfiðasta sópranhlutverkið. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti West Ham féll og þessi lið náðu Evrópusætum West Ham féll úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en Tottenham bjargaði sér frá falli þegar lokaumferðin var leikin. Liverpool náði meistaradeildarsæti, Sunderland og Bournemouth komust í Evrópudeildina og Brighton í Sambandsdeildina. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Heyrðu skothvell og sáu blóð á hurð Íbúar í Kársnesi lýsa partístandi í nótt og heyrðu skothvell í dag. Einn viðmælandi sagðist ekki hafa áttað sig á að hljóðið sem hann heyrði væri skothvellur fyrr en lögreglan mætti á staðinn. Lögregla hefur fundið skotvopn. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump segir samningamönnum að flana ekki að neinu Brynjólfur Þór Guðmundsson Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag hafa fyrirskipað samningamönnum Bandaríkjanna að fara sér að engu óðslega í viðræðum við Írani. Þetta sagði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum. Hann sagði að viðræðurnar gengju vel og skipulega fyrir sig. „Ég hef sagt fulltrúum mínum að fara sér að engu óðslega því tíminn vinnur með okkur.“ Trump sagði jafnframt að hafnbann Bandaríkjanna á Íran yrði í fullu gildi þar til samningar hefðu náðst, þeir verið undirritaðir og staðfestir. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði fyrr í dag að góðar fréttir af viðræðum við Íran gætu borist á næstu klukkustundum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. EPA / WILL OLIVER Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Íran flytur HM-búðir sínar frá Bandaríkjunum til Mexíkó Íranska karlalandsliðið í fótbolta verður með æfingabúðir sínar í Mexíkó á HM í sumar þó svo að leikir liðsins verði í Bandaríkjunum. FIFA samþykkti beiðni Írana þess efnis. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla leiddi mann út í járnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra voru í aðgerðum á Kársnesi í Kópavogi upp úr hádegi. Handjárnaður maður var leiddur út úr húsi. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Lögreglan braust inn í höfuðstöðvar stjórnarandstöðunnar Tyrkneskur dómstóll ógilti í vikunni formannskosningar í helsta stjórnarandstöðuflokknum. Lögregla braut sér í dag leið inn í höfuðstöðvar hans. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Skýr tengsl milli kæfisvefns og ofþyngdar hjá börnum Niðurstöður viðamikillar rannsóknar á vegum Sjúkrahússins á Akureyri leiddu í ljós skýr tengsl á milli ofþyngdar og kæfisvefns hjá börnum. Kæfisvefn meðal barna er vangreindur að mati rannsakenda. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Samninganefndir sendar inn í helgina með heimavinnu Samningaviðræðum við Icelandair miðar ágætlega, segir formaður atvinnuflugmanna. Hægt þokast hjá flugvirkjum. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Samfélagsmiðlar Gera grín á samfélagsmiðlum Miðstöðin forvitnaðist um Sketsagerðina, grínhóp á samfélagsmiðlum, á dögunum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Herjólfur siglir frá Þorlákshöfn Erla María Markúsdóttir Herjólfur sigldi frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar í morgun og lagði af stað frá Þorlákshöfn til Eyja klukkan 11. Aðstæður í Landeyjahöfn eru erfiðar. Aðrar ferðir til og frá Landeyjahöfn falla niður þar til tilkynning verður send út síðdegis. Landeyjahöfn hefur verið meira og minna lokuð það sem af er ári og bilun í Herjólfi gerir siglinguna lengri en vanalega. Herjólfur við bryggju í Þorlákshöfn. RÚV / Guðmundur Bergkvist Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Enn verið að meta stöðuna í borginni Anna Lilja Þórisdóttir Enn er verið að meta stöðuna varðandi mögulegar formlegar viðræður um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum fréttastofu er staðan óbreytt eftir fundahöld síðustu viku þar sem Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna átti einkafundi með oddvitum Miðflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar í fyrradag. Ekki er vitað um frekari fundahöld í dag. Oddvitar flokkanna í Reykjavík sem hafa rætt um mögulega meirihlutamyndun. Fréttagrafík / Kristrún Eyjólfsdóttir Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Miðausturlönd Óvissa um hvað er fólgið í hugsanlegu friðarsamkomulagi Vonir hafa vaknað um að samkomulag um frið við Persaflóa náist strax í dag og að opnað verði fyrir siglingar um Hormússund. Óvissa er um innihaldið. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Afganistan Spá því að tæpur helmingur þjóðarinnar þurfi á mannúðaraðstoð að halda Talibanar hafa verið við völd í Afganistan í tæp fimm ár. Mikill skortur er á mannúðaraðstoð í landinu, en fátækt, hungur, atvinnuleysi og mannleg eymd hefur aukist verulega á þessum árum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Eldurinn reyndist vera eldamennska Brynjólfur Þór Guðmundsson Skemmtanahald gærkvöldsins og næturinnar virðist hafa verið friðsælt, að því sem ráða má af samtölum fréttastofu við lögreglu í morgun. Tveir voru handteknir vegna slagsmála fyrir utan skemmtistað í Reykjavík og lögregla hjálpaði húsráðendum við að vísa gestum á braut eftir að partí í heimahúsi fór úr böndunum. Enginn fékk þó að gista fangaklefa í nótt. Rólegt var á Akureyri og Egilsstöðum. Erill var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þegar kom að sjúkraflutningum. Minna reyndi á dælubílana sem fóru í fjögur útköll. Á einum stað var tilkynnt um eld en síðan kom í ljós að meira fjör hafði færst í leikinn í eldamennsku en til stóð. Eldamennskan endar stundum með útkalli slökkviliðs. Pxhere Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Pistill Feneyjatvíæringurinn: Pólítík þjóðanna gleypir listina Er hægt að eiga í diplómatískum samskiptum á sviði lista í skugga þjóðarmorðs? Nína Hjálmarsdóttir rýnir í ólympíuleika myndlistarinnar, Tvíæringinn í Feneyjum. 24. maí 2026 kl. 8:57ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Rubio vonast eftir góðum fréttum í dag Brynjólfur Þór Guðmundsson Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir hugsanlegt að í dag verði tilkynnt um endalok stríðsins milli Bandaríkjanna og Írans. „Ég held að það sé kannski möguleiki á því á næstu klukkustundum að heimsbyggðin fái góðar fréttir,“ sagði Rubio þegar hann ræddi við fréttamenn í Nýju Delí á Indlandi. Hann sagði að í samningi yrði tekið á siglingum um Hormús-sund og kjarnorkuvopnaþróun Írana. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, fagnaði því að árangur virtist vera að nást í friðarviðræðum Írana og Bandaríkjamanna. Hann sagði að í framhaldinu yrði reynt að tryggja frið til langrar framtíðar. Eldsneytisverð hefur hækkað mikið á heimsvísu vegna stríðsins við Persaflóa. EPA / JIM LO SCALZO 24. maí 2026 kl. 8:20ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Skutu ofurhljóðfrárri eldflaug á Úkraínu Rússar skutu 600 drónum og 90 eldflaugum að Úkraínu í nótt. Meðal eldflauganna var ein sem getur borið kjarnorkusprengjur. Fjórir voru drepnir í árásunum og 60 særðust. 24. maí 2026 kl. 8:16ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Neyðarástandi lýst yfir vegna eiturefnaleka Gavin Newsom ríkisstjóri Kaliforníu hefur lýst yfir neyðarástandi vegna eiturefnaleka í Garden Grove-svæðinu. Mikil hætta er talin á að tankur springi. 24. maí 2026 kl. 8:01ÍÞRÓTTIR Fótbolti Hvernig fóru Blikar svona illa með KR-inga? Breiðablik fór illa með KR í Bestu deild karla og vann 6-3 sigur, sem hefði getað verið stærri. Anton Logi Lúðvíksson fór á kostum í leiknum. Hér ræðir hann tímabil Blika hingað til, meiðslasögu sína og hvernig Blikum tókst að fara svona illa með KR. 24. maí 2026 kl. 7:44INNLENDAR FRÉTTIR Veður Úrkoma í flestum landshlutum Blautt verður víðast hvar um landið. Úrkoman nær þó líklega ekki yfir á Austurland. 24. maí 2026 kl. 7:10ERLENDAR FRÉTTIR Filippseyjar Tugir verkamanna sagðir fastir í rústum níu hæða húss Brynja Dögg Friðriksdóttir Húsið er rústir einar og aðstæður til björgunar eru afar erfiðar. AP / Uncredited Óttast er um tugi verkamanna eftir níu hæða hús hrundi til grunna í Angeles City, norður af Manilla á Filippseyjum í dag. Húsið var í byggingu og 22 verkamönnum tókst að komast undan rústunum, en talið er að milli 30-40 séu enn fastir í þeim. Aðstæður til björgunar eru mjög erfiðar en húsið var steypt. Ekki er vita