Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í gæsluvarðhald vegna skotárásar í Kópavogi

Read Full Article →

Karlmaður um fertugt var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins vegna rannsóknar á skotárás í Kársneshverfi í Kópavogi í gær. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að karlmaður á sextugsaldri hafi komið inn í bakarí í hverfinu með skotsár og illa á sig kominn. Maðurinn var fluttur á Landspítalann og gekkst þar undir aðgerð í gær, en hann er ekki í lífshættu. Lögreglan var með mikinn viðbúnað og naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Böndin beindust fljótt að fjölbýlishúsi skammt frá. Í íbúð í húsinu var karlmaður um fertugt handtekinn og hefur nú verið úrskurðaður í gæsluvarðhald „Rannsókn málsins er umfangsmikil, en miðar ágætlega. Við hana hefur verið lagt hald á skotvopn, en rannsóknin beinist m.a. að því hvort það hafi verið notað í málinu,“ segir í tilkynningunni.

Share this article