200 mílur | mbl | 25.5.2026 | 18:44 Óveruleg fjárfesting í stóra samhengi hlutanna Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. mbl.is Setja bókamerki Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir ekkert í niðurstöðum skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um eignarhald stærstu útgerðanna koma samtökunum á óvart. Heiðrún segir þó í samtali við mbl.is að athyglisvert sé að árið 2021 hafi Hanna Katrín Friðriksson, þáverandi þingmaður, komið fram með sambærilega fyrirspurn til þáverandi matvælaráðherra og þá hafi verið unnin skýrsla af hálfu Skattsins sem var skilað til þingsins sem leiddi til sambærilegrar niðurstöðu og Hagfræðistofnun komist að nú. „Árin líða og nú er nýr þingmaður að spyrja matvælaráðherra, sem núna vill svo til að er Hanna Katrín Friðriksson, fyrirspyrjandi í fyrri spurningu, og niðurstaðan er enn sú sama og það vekur athygli mína að umræðan sem hefur orðið í kjölfar skýrslunnar og um helgina er að skýrslan sé ófullnægjandi. Þegar í tvígang er búið að spyrja og núna er matvælaráðherra sem áður spurðist fyrir um málið og virðist enn ekki ná utan um það, þá veltir maður einfaldlega fyrir sér hvort það sé ekki heppilegra að finna einhvern sem er tilbúinn til að búa til skýrslu sem er í samræmi við pantaðar niðurstöður þessara þingmanna,“ segir Heiðrún. Frétt af mbl.is Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Kannski ekki rétt að sjávarútvegurinn sé að eignast Ísland Hún segist mjög hugsi yfir þessum vangaveltum þegar fyrir liggja tvær skýrslur, annars vegar frá Skattinum og hins vegar frá Hagfræðistofnun sem aldrei virðast fullnægja fyrirspurnarþörf umræddra þingmanna eða annarra, „líklega vegna þess að niðurstaðan er ekki í samræmi við kenninguna um að sjávarútvegurinn sé að eignast Ísland,“ eins og framkvæmdastjórinn orðar það. Veltir hún fyrir sér hvort það sé ekki einfaldlega vegna þess að það sé ekki rétt. Heiðrún segir hægt að líta til skýrslunnar frá 2021 en þá hafi verið skoðaður eignarhluti útgerðarfélaga, tengdra eignarhaldsfélaga útgerðarfélaga, dótturfélaga útgerðarfélaga og dótturfélaga tengdra eignarhaldsfélaga útgerðarfélaga. Allt leiði það að sambærilegri niðurstöðu að fjárfestingar í ótengdum rekstri séu óverulegar og í fyrirspurninni frá 2021 segir hún aftur tekið fram að stór hluti fjárfestinganna séu fjárfestingar í virðiskeðju sjávarútvegs, svo sem í fiskvinnslu og þjónustu við sjávarútveg og markaðsstarfi, þ.e. sölu- og dreifingarfélögum og nýsköpun. „Þannig að sjávarútvegur er að langmestu leyti að fjárfesta í virðiskeðju og framtíðarverðmætasköpun sjávarútvegs,“ segir Heiðrún og svarar því til aðspurð að það virðist ekkert hafa breyst síðan 2021 miðað við nýja skýrslu Hagfræðistofnunar. Arðsemi áþekk því sem gerist á innlánsreikningum Heiðrún segist ekki geta séð að tilefni hafi verið til þeirra fyrirsagna sem sést hafi um helgina á miðlunum um að áhyggjur þurfi að hafa af stöðunni út frá því að sjávarútvegur eigi eða hafi fjárfest fyrir 129 milljarða í ótengdum atvinnurekstri. „Það er einfaldlega óverulegt í stóra samhengi hlutanna.“ Segir Heiðrún að einnig megi horfa á málin í stærra samhengi. „Við höfum séð mýmargar skýrslur og ágæt nokkurra daga gömul greining frá Jakobsson Capital þar sem farið er yfir arðsemi liðins áratugar frá fiskveiðiauðlindinni og orkuauðlindinni. Niðurstaðan er einfaldlega sú að arðsemin sé áþekk því sem gerist á innlánsreikningum. Þannig að ef að það er verið að reyna að vefa þá þræði að sjávarútvegur sé svo arðsamur að með fjármunum frá sjávarútvegi sé verið að fjárfesta í verulegu og einhverju óeðlilegu mæli í ótengdum rekstri að þá fær það heldur ekki stað í þeim niðurstöðum. Það er einfaldlega eðlileg og hefðbundin og jafnvel stundum óviðunandi arðsemi frá sjávarútvegi en að sjálfsögðu hafa einstakir hluthafar í sjávarútvegi notið af fjárfestingu sinni og áhættu.“ Heiðrún segir það með öllu óskiljanlegt ef ekki eigi að nýta þá fjármuni til frekari verðmætasköpunar í íslensku atvinnulífi. „Ég hefði talið það styrkleikamerki fyrir íslenskt atvinnulíf að fjármunir sem eru þá ekki lengur nýttir í sjávarútvegi, að þeir nýtist í annarri atvinnustarfsemi. Að fjármunirnir fari í vinnu við að skapa störf og verðmæti í öðrum atvinnugreinum.“ Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Kvartar til umboðsmanns og ESA Gagnrýnir fjölmiðlaumfjöllun um Watson Paul Watson boðar uppgjör í sumar Boðuðu verkfalli aflýst SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Watson á radar Landhelgisgæslunnar Gott samstarf við lögreglu sjaldséð Móta fiskveiðistefnu til framtíðar Snýr aftur eftir 1,1 milljón ára Myndskeið: Norska stjarnan þjófstartar í Vör Gagnrýnir fjölmiðlaumfjöllun um Watson Paul Watson boðar uppgjör í sumar SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Watson á radar Landhelgisgæslunnar Boðuðu verkfalli aflýst Móta fiskveiðistefnu til framtíðar Snýr aftur eftir 1,1 milljón ára Gott samstarf við lögreglu sjaldséð Myndskeið: Norska stjarnan þjófstartar í Vör Farmannastétt útrýmt með útvistun SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Snýr aftur eftir 1,1 milljón ára Paul Watson boðar uppgjör í sumar Watson á radar Landhelgisgæslunnar Gagnrýnir fjölmiðlaumfjöllun um Watson Áhafnir þriggja björgunarskipa í aðgerðum Farmannastétt útrýmt með útvistun Allt að 40 milljarða tap út af óveiddum ufsa Boðuðu verkfalli aflýst Drangey ferjar bryggju út í Drangey Fleira áhugavert Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Sér ekki fyrir endann: „Mjög langt á milli manna“ Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 22.5.26 580,72 kr/kg Þorskur, slægður 22.5.26 684,76 kr/kg Ýsa, óslægð 22.5.26 414,66 kr/kg Ýsa, slægð 22.5.26 364,22 kr/kg Ufsi, óslægður 22.5.26 236,12 kr/kg Ufsi, slægður 22.5.26 299,31 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 22.5.26 93,19 kr/kg Litli karfi 20.5.26 5,00 kr/kg Blálanga, óslægð 19.5.26 136,40 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 25.5.26 Fjóla SH 7 Grásleppunet Grásleppa 3.498 kg Samtals 3.498 kg 25.5.26 Björt SH 202 Grásleppunet Grásleppa 3.756 kg Samtals 3.756 kg 25.5.26 Anna Karín SH 316 Grásleppunet Grásleppa 2.545 kg Samtals 2.545 kg 25.5.26 Kóngsey ST 4 Grásleppunet Grásleppa 4.146 kg Þorskur 397 kg Skarkoli 65 kg Steinbítur 38 kg Þykkvalúra 16 kg Samtals 4.662 kg 25.5.26 Vestmannaey VE 54 Botnvarpa Ýsa 30.198 kg Þorskur 4.688 kg Karfi 572 kg Samtals 35.458 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Kvartar til umboðsmanns og ESA Gagnrýnir fjölmiðlaumfjöllun um Watson Paul Watson boðar uppgjör í sumar Boðuðu verkfalli aflýst SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Watson á radar Landhelgisgæslunnar Gott samstarf við lögreglu sjaldséð Móta fiskveiðistefnu til framtíðar Snýr aftur eftir 1,1 milljón ára Myndskeið: Norska stjarnan þjófstartar í Vör Gagnrýnir fjölmiðlaumfjöllun um Watson Paul Watson boðar uppgjör í sumar SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Watson á radar Landhelgisgæslunnar Boðuðu verkfalli aflýst Móta fiskveiðistefnu til framtíðar Snýr aftur eftir 1,1 milljón ára Gott samstarf við lögreglu sjaldséð Myndskeið: Norska stjarnan þjófstartar í Vör Farmannastétt útrýmt með útvistun SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Snýr aftur eftir 1,1 milljón ára Paul Watson boðar uppgjör í sumar Watson á radar Landhelgisgæslunnar Gagnrýnir fjölmiðlaumfjöllun um Watson Áhafnir þriggja björgunarskipa í aðgerðum Farmannastétt útrýmt með útvistun Allt að 40 milljarða tap út af óveiddum ufsa Boðuðu verkfalli aflýst Drangey ferjar bryggju út í Drangey Fleira áhugavert Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Einn með skotáverka og annar handtekinn Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 22.5.26 580,72 kr/kg Þorskur, slægður 22.5.26 684,76 kr/kg Ýsa, óslægð 22.5.26 414,66 kr/kg Ýsa, slægð 22.5.26 364,22 kr/kg Ufsi, óslægður 22.5.26 236,12 kr/kg Ufsi, slægður 22.5.26 299,31 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 22.5.26 93,19 kr/kg Litli karfi 20.5.26 5,00 kr/kg Blálanga, óslægð 19.5.26 136,40 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 25.5.26 Fjóla SH 7 Grásleppunet Grásleppa 3.498 kg Samtals 3.498 kg 25.5.26 Björt SH 202 Grásleppunet Grásleppa 3.756 kg Samtals 3.756 kg 25.5.26 Anna Karín SH 316 Grásleppunet Grásleppa 2.545 kg Samtals 2.545 kg 25.5.26 Kóngsey ST 4 Grásleppunet Grásleppa 4.146 kg Þorskur 397 kg Skarkoli 65 kg Steinbítur 38 kg Þykkvalúra 16 kg Samtals 4.662 kg 25.5.26 Vestmannaey VE 54 Botnvarpa Ýsa 30.198 kg Þorskur 4.688 kg Karfi 572 kg Samtals 35.458 kg Skoða allar landanir »