Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrsti deildarsigur Fram í ár

Read Full Article →

Sjötta umferð Bestu deildar kvenna hófst í dag og lýkur í kvöld. Fram vann Þór/KA 3-2 og ÍBV og Grindavík/Njarðvík skildu jöfn, 1-1 í dag. Fram var á botninum með eitt stig fyrir leikinn en Akureyringar sæti ofar með stigi meira fyrir leikinn. Margrét Árnadóttir kom Þór/KA yfir með marki á sjöundu mínútu í dag í 1-0 en heimakonur í liði Fram svöruðu þegar Alda Ólafsdóttir jafnaði metin fjórum mínútum síðar í 1-1. Þetta mark Öldu sló norðankonur greinilega alveg út af laginu, því aðeins andartökum síðar hafði Taylor Marie Hamlett komið Fram yfir í 2-1. Tvö mörk hjá Fram á tveimur mínútum. Mörkin komu á færibandi á fyrstu tæplega 20 mínútum leiksins því Margrét Árnadóttir skoraði annað mark sitt þegar hún jafnaði fyrir Þór/KA í 2-2 á 18. mínútu. En þá leið og beið eftir næsta marki sem kom ekki fyrr en á þriðju mínútu síðari hálfleiks. Þá skoraði Alda Ólafsdóttir annað mark sitt í leiknum fyrir Fram. Og þetta mark reyndist sigurmarkið. Fram vann 3-2 og þar með sinn fyrsta deildarleik í sumar og hefur nú fjögur stig í níunda sæti en Þór/KA er komið á botninn. Eyjakonum er svo farið að fatast flugið eftir frábæra byrjun í deildinni. ÍBV vann fyrstu fjóra leiki sína en tapaði í fimmtu umferð og í dag kom Natasha Anasi Grindavík/Njarðvík yfir í Vestmannaeyjum í 1-0 á 36. mínútu. ÍBV náði þó að bjarga stigi í blálokin þegar Allison Patricia Clark skoraði í uppbótartíma leiksins og úrslitin urðu 1-1. Sjöttu umferð lýkur í kvöld með þremur leikjum sem allir hefjast klukkan korter yfir sjö

Share this article